Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Side 5
DV. LAUGARDAGUR 28. JULl 1984.
5
Þrírmenn
frá sjón-
varpinuí
Danmörku
— vegna ólympíu-
leikanna íLos Angeles
Bjarni Felixson, iþróttafréttamaður
sjónvarpsins, er farinn til Danmerkur
ásamt tveimur tæknimönnum til að
velja efni frá ólympíuleikunum til sýn-
ingar í sjónvarpinu hér.
Munu þremenningarnir vera með
mikla tækjasamstæðu með sér til að
vinna úr efni sem sýnt er í sjónvarpinu
danska, annaðhvort beint, en Danir
sýna töluvert beint, bæði nótt og dag,
eða þá samantektir sem byrja á
morgnana klukkan 7.
Bjami mun sjálfur tala inn á bandið
og ættu sendingar frá Danmörku að
vera komnar hingaö um kl. 18 sam-
dægurs og vera svo sýndar um k völdið.
Það er því um nokkuð snögga þjónustu
að ræða hjá sjónvarpinu, en að meðal-
tali verða þrír tímar á dag helgaðir
ólympíuleikunum, alls 60 klukkutímar.
SigA
Vigdís tekur
við embætti
öðru sinni
Frú Vigdís Finnbogadóttir tekur á
ný við forsetaembætti miðvikudaginn
1. ágúst nk. Athöfnin hefst í dómkirkj-
unni klukkan hálffjögur en afhending
kjörbréfs fer síðan fram í Alþingishús-
inu. Er kjörbréf hefur verið afhent
mun forseti koma fram á svalir þing-
hússins.
Þeir sem ætla að vera við kirkju-
athöfnina eru beðnir að vera komnir í
sæti fyrir klukkan hálffjögur. I
Alþingishúsinu rúmast ekki aðrir en
boðsgestir. Gjallarhomum verður
komið fyrir úti svo að menn geti fylgst
með því sem fram fer í kirkju og þing-
húsi. Lúðrasveit mun leika á Austur-
velli.
Eggleikhúsið
sýnirKnallá
Norðurlandi
Eggleikhúsiö, öðm nafni Viðar
Eggertsson leikari, er að fara í leikför
um Norðurland. Viðar sýnir Knall eftir
Jökul Jakobsson. Sýningin tekur
aðeins hálfa klukkustund og er verkið
eintal manns sem dvelur á stofnun.
„Fyndið verk en öðrum þræði svolítið
sorglegt,” segir leikarinn sjálfur um
það.
Sýningar Viðars verða á Akureyri í
Samkomuhúsinu 28. og 29. júlí, 30. i
Hrísey og 31. á Dalvík. Til Olafsfjarðar
fer hann 1. ágúst og ferðalaginu lýkur
á Húsavík 3. ágúst. Ailar byrja
sýningarnar klukkan 22.00 og miða-
verðið er svipað og á bíómiðum.
JBH/Akureyri.
Aðstoöarfor-
stjórarHafrann-
sóknastofnunar
Að fengnum tillögum forstjóra og
stjómar Hafrannsóknastofnunar hefur
ráðherra skipað dr. Jakob Magnússon
aðstoðarforstjóra á sviði hafrann-
sókna og Vigni Thoroddsen aöstoðar-
forstjóra á sviði rekstrar, frá 1. ágúst
1984 tii 30. júni 1989.
Sfldveiðar
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að síldveiðar í lagnet megi
hefjast 10. ágúst næstkomandi. Síld-
veiðar í lagnet eru leyfisbundnar og
skal sækja um leyfi til sjávarútvegs-
ráðuneytisins. Leyfi til síldveiða í lag-
net eru bundin viö báta minni en 50
brúttórúmlestir.
Láttu Samvinnubankann sjá um gjaldeyrlsvlðskiptln
Samvinnubankinn
W SYNUM W
KK STANZA %
LAUGARDAG
OGSUNNUDAG
KL. 14-17 AÐ
MELAVÖLLUM
VIÐ
gk RAUÐAGERÐI.
WkA
■ -
m INGVAR HELGASON HF
[BH[ Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.
^jjjjjJJjjjjj
NISSAN STANZA 1800 GL
Nissan Stanza er bíll þeirra sem gera
ekki bara kröfur um fegurð, þægindi og
endingu eins og flestir láta sér nægja, heldur gera
líka miskunnarlausar kröfur um mikinn
kraft, óaðfinnanlegan frágang og JS
síðast en ekki síst að bíllinn hafi þetta -
alveg sérstaka sem ekki er hægt að
skýra og aðeins örfáir bílar í heiminum
hafa. Einn þeirra er Nissan Stanza,
framhjóladrifinn, 5 gíra,
með geipiskemmtHegri
1800 cc vél.
Bíll sem veitir þér
miklu meira en bara að
komast frá einum
stað til annars.
FYRIR ÞÁ
SEM GERA KRÖFUR
- MISKUNNARLAUSAR KRÖFUR
Tökum
Jiesta etdrí
HJÁ OKKUR FJÖLBREYTNIN MEST OG KJÖRIN BEST bíla upp ínýja.