Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Page 12
12
DV. LAUGARDAGUR 28. JULÍ1984.
Helene Karusoog
Kostas Paskalis
sem leiðbeina
íslenskum
söngvurum í
Óperunni:
Operan hápunktur í menn-
ingu hverrar þjóðar
Niöri í Operu stendur nú yfir söng-
námskeiö Kostas Paskalis og Helene
Karuso. Námið stunda um tuttugu ís-
lenskir söngvarar sem bæði eru hér
heima og erlendis viö nám eöa söng.
Hópurinn ráögerir aö halda konsert 2.
ágúst næstkomandi.
Helene Karuso er aö koma hingað í
þriöja skiptið til aö kenna íslenskum
söngvurum á námskeiöi. Hún er grísk,
fædd í Aþenu og lauk píanónámi þar.
Hún lærði síðan söng í Vín og upp úr
því var hún ráðin við fleiri en eitt
óperuhús og starfaði sem söngvari.
Síöan var hún fengin sem söngkennari
viö tónlistarháskóla í Vín.
Hvernig stóð á því að hún kom hing-
aö til að kenna?
Margir íslenskir söngvarar hafa lært
hjá henni. Már Magnússon söngvari
byrjaði aö vera hjá henni í námi í Vín,
Olöf Kolbrún, Júlíus Vífill, Garðar
Cortes og Kristinn Sigmundsson hafa
til dæmis öll stundaö nám hjá henni. I
framhaldi af því var hún fengin hing-
aö.
Kostas Paskalis er mjög þekktur
óperusöngvari og hefur sungið við öll
helstu óperuhús í heimi: Vínaróper-
una, Scala, Covent Garden, Parísar-
óperuna, Metrópolitan.
Hann er barýton og hefur fyrst og
fremst sungið í ítölskum óperum.
'Fyrir nokkru lauk hann ferli sínum
sem óperusöngvari og hefur síöan
fylgst með ungu fólki, unnið og fylgst
með þar sem hann hefur séö eitthvaö
áhugavert og hjálpaö til á eigin veg-
um.
Þaö er fyrst og fremst í sambandi
viö túlkun og stíl í tónlist sem hann
hefur látið hjálp sína í té. Hann hefur
ekki veriö aö kenna söng sem radd-
þjálfun.
Hann er eins og Helene Karuso fædd-
ur í Aþenu og byrjaöi mjög ungur.
„Deputeraöi” í Rigoletto, stökk inn í,
eins og það er kallaö, og var ráðinn viö
Aþenuóperuna upp frá því. Seinna var
hann ráðinn viö ríkisóperuna í Vín og
var þar fastráðinn í 10 ár. Síðan hefur
hann sungiö um allan heim.
Námskeiðið sem þau halda núna er
haldið á vegum þátttakendanna
sjálfra.
— Hvaö finnst þeim Karuso og
Paskalis um íslenskt óperulíf?
Paskalis ræskti sig. Þau hafa ekki
séö sýningu í Islensku óperunni en
sögöu aö hér heföu verið sýndar óperur
viö góöar undirtektir. Allir væru mjög
áhugasamir og aösóknin góð. Slíkt sé
mjög áhugavert og vert stuðnings.
Nemendumir á námskeiöinu séu efni-
viöur í næstu kynslóð söngvara og þeir
séu áhugasamir og hafi hæfileika.
— Hvaö höfðu þau um framtíð Is-
lensku óperunnar að segja ?
Paskalis sagöi að hér væri búiö aö
stofna lifandi óperuhús. Miöaö viö þá
fjölbreytni og áhuga sem hann hefði
orðiö var við hér væru möguleikar á aö
hafa óperuhús, eins og búiö er aö
stofna, og því þurfi aö halda áfram.
En til þess aö halda svona stofnun lif-
andi þarf peninga og eins og alls staðar
annars staðar í heiminum er nauðsyn-
legt aö ríkiö komi til og hjálpi viö
reksturinn.
„Þetta er hápunkturinn í menning-
arlífi hverrar þjóöar og okkur er þaö
öllum þekkt staðreynd aö óperuhús
getur ekki lifað án þess aö hafa stuðn-
ing,” sagöi Paskalis aö lokum.
SGV
Signý og Viðar stunda bæði söngnám erlendis.
DV-mynd GVA
Viðar og Signý, ungir söngnemar:
AFAR GAGNLEGT
ðlöf Kolbrún
Harðardóttir:
Betra að
söngvarar
sameinist
um að fá
kennara
„Mér finnst alveg nauösynlegt aö
halda svona námskeið,” sagöi Olöf
Kolbrún Harðardóttir sem er einn
nemenda á námskeiðinu. Aö fá kenn-
ara hingað heim eða fara utan til aö
halda sér viö,” hélt hún áfram.
Eg rak þetta af staö ásamt Má
Magnússyni. Lagöi mig niður viö að
safna söngvurum saman til að fá
kennslu heim. Það er dýrt aö fara út og
betra aö söngvarar sameinist um aö fá
kennara.
Viö erum tuttugu virkir þátttakend-
ur og svo eru 10 óvirkir. Þeir sitja á
námskeiöinu sem áheyrendur. Þaö er
eiginlega flest þaö fólk sem er í söng-
námi eöa söngkennslu á þessu nám-
skeiði.
Operan stendur aö námskeiðinu aö
hluta. Hún hjálpar okkur um húsnæöi
og kennararnir búa hér. Að öðru leyti
stöndum viö þátttakendumir straum af
kostnaði. Feröaskrifstofan Farandi
hjálpaöi okkur viö að fá ódýrt f ar.”
— Er þetta ekki dýrt?
„Einkanám er náttúrlega alltaf dýrt.
En ég myndi segja að þaö væri mjög
hagstætt þegar fólk sameinast svona.
Héma er unnið „intensivt” á hverjum
degi í þrjár vikur. Og þaö er ströng
vinna.”
— Hvernig fer kennslan fram?
„Viö erum daglega í tímum og þess á
milli hlustum viö á hina þátttakend-
uma og læmm ekki síður á því.
— Þurfa söngvarar ekki helst aö fara
reglulega út til að fylgjast meö?
Söngvarar þyrftu sjálfsagt, ekki
síöur en fólk í öörum starfsgreinum, aö
fylgjast með með því aö rækta eigið
nám og fylgjast meö kollegum.
Við höfum til margra ára sótt mennt-
un erlendis. Núna er þaö mikil söng-
mennt í landinu að við getum miölaö
hvert öörumiklu í dag,” sagöi Olöf.
SGV
Viðar Gunnarsson söngnemi kom
gagngert til Islands frá Svíþjóð til aö
vera á námskeiðinu.
„Þetta eru virkilega góðir kennar-
ar,” sagði hann. Signý Sæmundsdóttir,
söngnemi í Vín, sagðist ekki hafa kom-
iö beinlínis til Islands til aö vera á
nárnskeiðinu. Hún væri í sumarfríi frá
skóla sínum í Vin þar sem hún hefur
reyndar verið nemandi Helene
Karuso. Signý er búin aö vera eitt og
hálft ár við nám, Viöar þrjú ár.
Signý sagði að svona námskeið gæti
verið afar gagnlegt. Það væri afar
„intensivt” og í stuttan tíma. Þannig
væri hægt aðlæra mikiö.
Þau kváöu bæöi já við því aö nám
þeirra væri dýrt. Viðar er í einkanámi
og því fýlgir mikill námskostnaður.
Signý er í tónlistarháskólanum í Vín.
Bæöi fá þau námslán héðan að heiman
til aö kljúfa kostnaðinn við námið.
SGV