Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Síða 14
14
DV. LAUGARDAGUR 28. JULl 1984.
ROKKSPILDAN - ROKKSPILDAN - ROKKSPILDAN - ROKKSPILDAN — ROKKSPILDAN — ROKKSPILDAN
Tíbrá:
Fyrsta
íslenska
„breik”-
lagið
Hljórn.sveitin Tíbrá frá Akra-
nesi hefur sent frá sér sína aöra
breiðskífu sem ber heitið Tibrá 2.
A henni eru aðeins tvö lög en
annað þeirra mun vera fyrsta ís-
lenska „breik" lagiðsem gefið er
út hérlendis og heitir Hreik-dans.
Hitt lagið er Föstudagsreggí.
Otgefandi plötunnar er Dolbit
hf. á Akranesi en Tíbrá skipa nú
þeir:
Eðvarð Lárusson, gitar, hljóm-
borð,
Eiríkur Guömundsson, Simmons
trommur,
Flosi Einarsson, ýmsir hljóð-
gervlar,
GylfiMár, söngur,
Jakob Garðarsson, bassi, söngur.
liiu luunfw
Nýtt
popp-
blaö
Innan skamms kemur á
markað nýtt tímarit, Poppblaðið
Hjáguð. Ritstjóri er Jens Kr. Guö
og útgefandi er O.P. útgáfan.
í fyrsta tbl. Poppblaðsins
Hjáguðs verður nákvæm lýsing á
æskuárum Bobs Marley og póst-
áritanir allra helstu popparanna
verða taldar upp. Opnuviðtal blaðs-
ins verður við Einar örn
Benediktsson, Kuklsöngvara og
fyrrverandi Purrk. Dagskrá rásar
2 verður skoðuð og skilgreind og
bandaríska söngkonan Joan Baez
lýsir næturævinýri sem hún átti
meö John heitnum Lennon á upp-
hafsárum Bítlanna. Sagt verður
frá ömurlegum örlögum Lísu
Presley, einkadóttur rokkkonungs-
ins sáluga, og vinsælustu popp-
stjömurnar, s.s. Michael Jackson,
Bubbi og Kiss, veröa kynntar
nokkuð nákvæmlega. Þá bendir
Poppblaðið Hjáguð á bestu fáan-
legu kassetturnar hérlendis og
segir frá ýmsum fréttum úr popp-
heiminum. Plötudómar verða
birtir og vinsældalistar. Þá veröa í
blaðinu smásögur, krossgátur,
skrýtlur, rokkljóö og margt fleira
viöallra hæfi.
Poppblaðið Hjáguðmun koma út
á 6 vikna fresti. Fyrsta tbl. er
væntanlegt á markað í byrjun sept-
ember.
Listamiðstöðin:
Þjóðlaga
og
vísna-
I sumar verður sérstök dagskrá
hjá Listamiöstöðinni hf. í nýja
húsinu á Lækjartorgi, 2. hæð, sem
einkum er ætluð ferðamönnum og
þeim sem hafa skemmtun af þjóð-
laga- og vísnatónlist. Það verður
boðið upp á þjóölagadagskrá
minnst tvisvar í viku, þ.e. á
fimmtudögum og sunnudögum kl.
20.30.
Þau sem sjá um dagskrána eru
Berþóra Ámadóttir, Gísli Helga-
son, Ingi Gunnar Jóhannsson,
Steingrímur Guömundsson og
örvar Aöalsteinsson. Þau flytja
þjóðlög frá ýmsum tímum og tölu-
vert af nýlegu efni sem telst til
visnatónlistar.
Þessar skemmtanir fara fram í
húsnæði Listamiðstöövarinnar viö
Lækjartorg, í sýningarsal fyrir-
tækisins.
da&ŒMtal
Bubbi Morthens heldur
sama nafni á hljómsveit sinni
hér og átti aö nota vestur í
Bandaríkjunum. Þeir félagar
voru ekki ýkja hrifnir af viðtali
við RS svo ekki var um annað að
ræða en bregöa sér á æfingu hjá
þeim í Safari þar sem þeir,
ásamt Megasi, eru að undirbúai,
sig fyrir hátíðina á Laugum um
V erslunarmannahelgina.
Er undirritaður gekk inn í sal-
inn glumdi lagið „Love will tear
us apart” í söngkerfinu en síðan
komu þeir lögum og reglu á
hlutina, prógrammið greinilega
blanda af ýmsu, eftir Lög og
regla tóku þeir nýtt lag, Jolly
Chili, sérhannað fyrir útihátíð,
Mexíkanahattur fer ágætlega
með því, en er hér var komið
sögu var tekið hlé þar sem
Megas var mættur til skrafs og
'ráðagerða.
Megas mun verða með ca 20
laga prógramm á hátíðinni á
Laugum, blöndu af gömlu og
nýju og það væri sennilega vel
virði flugfarsins báðar leiðir að
sjá kappann taka lagið .Jírókó-
dílamaðurinn” á sviði enda
hefur lagið til að bera einhvern
léttasta húmor í dægurlagi hér-
lendis á seinni árum, slær jafn-
vel út margt af því besta hjá
Stuðmönnum.
I hléinu viöraði Bubbi þá hug-
mynd að Das Kapital væri ekki
eingöngu hljómsveit heldur ætti
að standa í blaðaútgáfu þar sem
innvígðum yrði gefinn kostur á
að fylgjast með ýmsum bráð-
nauðsynlegum hlutum sem ekki
var farið nánar út í.
Eftirminnilegasti hluti kvölds-
ins var dúndurgott blúslag sem
Kapitalið tók eftir hlé, léttur,
skemmtilegur og, eins og ég
sagði einhvern tímann um Egó á
tónleikum, álíka sleipur og
kattarskítur á flísagólfi.
-FRI
Samningar eru
í gangi
Eins og greint var frá í DV fyrr í
vikunni eru talsverðar líkur á að gamli
bítillinn Ringo Starr komi á útihátíðina
í Atlavík um næstu helgi. Hann hefur
gefið jákvætt svar en samningar eru í
gangi á milli Ungmennafélags Austur-
lands og umboðsmanns hans um
greiðslur og annað sem tengist ferð-
inni. Rokkspildan hefur heyrt að áður
hafi víurnar verið bornar í þýska
dúndrið Ninu Hagen en sú reynst of
dýrkeypt.
Stuðmenn munu leika fyrir dansi í
Atlavík eins og fyrr og er hlutdeild
Ringo Starr komin óbeint í gegnum þá
en hann mun, að sögn eins Stuömanns,
vera Islandsvinur í gegnum kynni sín
af Tómasi Tómassyni og Ragnhildi
Gísladóttur sem bæði hafa tekið upp í
heimastúdíói hans. Hlutverk hans á
hátíðinni, ef af verður, er aö veita
verðlaunin í hljómsveitakeppninni
sem haldin veröur að venju og vera
sérstakur gestur hátíðarinnar.
Mjög mikið veröur lagt í hátíðina í
Atlavík því að fyrir utan hljómsveita-
keppnina mun leikhópurinn Svart og
sykurlaust verða með stórt prógramm
á henni og standa m.a. fyrirheljar-
miklum grímudansleik auk annarra
uppákoma.
Hvað Ringo Starr varðar þá hefur
hann ekki gert stóra hluti í tónlist á
undanförnum árum heldur hefur hann
snúið sér aö nokkru leyti að kvik-
myndaleik með misjöfnum árangri.
Meðal þeirra mynda sem hann hefur
leflúð i, er Caveman sem sýnd hefur verið
hérlendis, en þar lék hann á móti nú-
verandi konu sinni, Barböru Bach.
Meöal mynda sem hann gerði í byrjun
áttunda áratugarins, og ekki hafa
verið sýndar hérlendis svo mér sér
kunnugt, má nefna vestrann Blindman
og myndina „That’ll be the day” sem
hann hlaut nokkurt lof fyrir.
Hvað tónlistina varðar þá virtist
hann vera sá af Bítlunum sem hvað
minnsta möguleika átti eftir að hljóm-
sveitin var lögð niöur, og raunar náði
hann aldrei þeim vinsældum sem sjálf-
stæður tónlistarmaður sem hinir þrír
hlutu upp úr 1970. Þó má nefna tvær
ágætar smáskífur, sem báðar náðu á
topp 5 í Bretlandi og Bandaríkjunum,
,,It don’t come easy” og „Back off
Boogaloo”. Skömmu síðar kom svo lp-
platan Ringo en nokkur lög af henni
náöu í fyrsta sæti vinsældalistans í
Bandaríkjunum. Þetta var árið 1973.
Hann reyndi sama leikinn aftur með
plötunni „Goodnight Vienna” en sú
plata varð hálfgert flipp þó eitt laga
hennar næði í fyrsta sæti í Banda-
ríkjunum en þaö var No No Song
samið af Hoyt Axton.
Á síöustu árum má segja aö kappinn
hafi verið önnum kafinn við að gera
ekki neitt og gert það vel.
-FRI
Ringo Starr í Atlavík?