Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1984, Qupperneq 17
DV. LAUGARDAGUR 28. JULÍ1984.
17
Yngsti stór-
melstari heims
— Nigel Short sigraði á Norðursjjávarmátinu í Esbjerg
og náði síðasta áfanga sínum að stðrmeistaratitli
Eftir fyrstu umferö 9. Noröur-
sjávarskákmótsins í Esbjerg var
Englendingurinn Nigel Short ekki
líklegur til stórræðanna. Hann mis-
reiknaöi sig meö hvítu mönnunum
gegn Svíanum Wiedenkeller og fékk
stórt núll skráð viö hliðina á nafninu
sínu í mótstöflunni. Short lét mótbyr-
inn þó ekkert á sig fá og tókst að snúa
vörn í sókn, svo um munaði. Er upp
var staðið var hann einn í efsta sæti
og hafði náð sínum síðasta áfanga að
stórmeistaratitli. Short veröur því
væntanlega útnefndur stórmeistari á
Fide-þinginu í Grikklandi í haust. Þá
verður hann yngsti stórmeistari
heims í dag, aöeins 19 ára gamall.
I síðustu umferð tefldi Short viö
Ole Jakobsen, alþjóölegan meistara
frá Danmörku, sem teflt hafði langt
undir styrkleika og var einn'í neðsta
sæti. Jakobsen var með hvítt og hafði
fram að skákinni tapað öllum
skákum sínum meö þeim lit, en
fengið vinninga sína með svörtu. Því
er óhætt að segja að Short hafi ekki
verið í skemmtilegri aðstöðu enda
fór svo að skákin varð æði jafnteflis-
leg. Jakobsen hefði getað þvingað
fram jafntefli en á elleftu stundu lék
hann af sér og Short tókst að knýja
framsigur.
Á meðan þessu fór fram tefldu
Mestel og Lars Karlsson, sem ásamt
Short voru jafnir og efstir. Skák
þeirra lauk með jafntefli eftir harða
baráttu og þeir deildu því öðru sæti.
Lokastaðan:
1. Short (Englandi) 71/2 v.
2. -3. Mestel (Englandi) og Karlsson
(Svíþjóð)7v.
4.-5. Miles (Englandi) og Csom
(Ungverjalandi) 61/2 v.
6.-7. Jón L. Árnason og Wiedenkeller
(Svíþjóð)51/2v.
8.-9. C .Hansen og J. Kristiansen
(Danmörku) 5 v.
10.-11. Mortensen og Fries-Nielsen
(Danmörku)4v.
12.0. Jakobsen (Danmörku) 21/2 v.
Danir.voru að vonum óánægðir
með frammistöðu sinna manna —
eins og sjá má rööuðu útlendingarnir
sér í efstu sætin. Curt Hansen, sem
varðNorðurlandameistarií Esbjerg í
fyrra, náði sér nú aldrei á strik og
Mortensen, sem stóð sig vel á sterku
móti í Leningrad um daginn, fékk
hálfan vinning úr sex síðustu skák-
unum.
Taflmennska mín var ósköp bág-
borin og var ég lengst af um miöbik
mótsins. Eg náöi 50% vinningshlut-
falli með því aö vinna Mortensen í
síðustu umferð í skák þar sem ég
stóð lengst af höllum fæti. Annars
var ég óheppinn að tapa tveimur
góöum stöðum gegn Kristiansen og
Fries-Nielsen. Sigrar í þeim skákum
heföu jú breytt stöðu minni á mótinu
allverulega.
öllum bar saman um að þetta
hefði verið skemmtilegt mót. Stór-
meistarajafntefli sást varla og ef
skákum lauk með jafntefli á annað
borð var þaö ekki fyrr en eftir mikla
baráttu. Aðeins einn keppandi slapp
taplaus, Ungverjinn Csom, sem
þekktur er fyrir varfæmislega tafl-
mennsku. Hann var aldursforseti
mótsins, 44 ára gamall!
Aumingja Mestel, sem er þekkt
andlit í Esbjerg, hefur hvaö eftir
annaö or6i í 2. sæti en aldrei hefur
honum tekist að sigra. Svo fór einnig
að þessu sinni en hann átti góða
spretti. Hið sama má segja um Lars
Karlsson, sem tefldi afar frísklega.
Miles tókst honum að sigra í vel út-
færðu hróksendatafli og Mortensen
mátaöi hann laglega í Drekaaf-
brigðinu alræmda af Sikileyjarvörn-
inni. Þaö eru einmitt slíkar skákir
sem gert hafa þetta afbrigði svo vin-
sælt. Mortensen tefldi undarlega og
hvíta sóknin komst aldrei af stað.
Hvítt: Erling Mortensen
Svart: LarsKarlsson
Sikileyjarvörn
l.e4 c5 2.RÍ3 d6 3.d4 Rf6 4.Rc3 cxd4 5.
Rxd4 g6 6.Be3 Bg7 7.f3 Rc6 8.Dd2 0-0
9.Bc4 Bd7 10.0-0-0 Hc8 ll.Bb3 Re5
12.g4.
Mortensen hefur án efa átt von á
að þurfa að kljást við Drekaafbrigðiö
og hefur undirbúið sjaldséða leið.
Varla á þessi leikur þó eftir að ná
vinsældum.
12.-b513.h4 b414.RbI a515.a4
Svartur getur unnið þetta peð með
15.-De8 en það tekur tíma og á meðan
fengi hvíta sóknin vind í seglin.
Svartur tekur rétta ákvörðun: Opnar
línur drottningarmegin á hernáms-
svæði hvíta kóngsins.
15.-bxa3! 16.Rxa3 Db6 17.Ba2 Db7
18.Dg2 Hb819.c3 Hfc8 20.h5.
Nákvæmara en 27.-Bc3+ 28.Ka2
Be6+29.Bd5
28.Kcl Da3+
Og hvítur gafst upp, enda mát í
næstaleik.
Sigurvegari mótsins taldi eftir-
farandi skák vera sína bestu.
Reyndar er nokkuð augljóst að
hvítur brýtur allar brýr að haki sér
með 17. leik sínum en skákin er þó
gott dæmi um yfirvegaða og vandaða
taflmennsku Short í þessu móti.
Hann fer sér að engu óðslega, byggir
upp trausta stöðu og sér svo hvað
verða vill.
Hvitt: TonyMiles
Svart: Nigel Short
Nimzo indversk vöm.
1. d4 e6 2. c4 Rf6 3. Rc3 Bb4 4. e3 c5
5. Rge2 cxd4 6. exd4 d5 7. c5 Re4 8.
Bd2 Bxd2 9. Dxd2 a5 10. a3 Bxc3 11.
y-A-
Nigel Short.
Sti / l 3 V 6 7 9 V 10 /t V.
>J. snonr 25-10 s Zz / 1 Zi 1 0 L 1 z, z, 1 TL
3. uittíTBL (bh^/a+J) '/l % •h o ;/z 'h í 1 'L 1 7L 1 T-
L. Kjmlíscs/ (Svi'/ýiíJ ÍGOO O ’k % 1 •h 'h •k 'k L 1 1 1 ?
R. JAílBS ( 2C-66- O 1 o L o •k 1 1 'h 1 1 C'k
X. (Sory, C 3tfoo 7i •k 'k ‘h % 'k 1 L 'k 1 L 'k í'k
JeÁ/ L. 'Tf'ntJnsorf o ‘í L 1 'h % L O L 1 0 1 S'Á
M. (Sv'kj'J) JVLo 1 0 'h. L 0 L % o i O 1 1 S'/x
3. Ai RilTiftklSBU (D*»*Sri ) •k o 'k o 'k 1 1 o O 1 h s
<£. (Vo*ntí>rlr) 2GOC 0 'L L 0 L L 0 1 45- L 'k f s
£• Mo AT£N&£*J (DmttntírL) avvc ‘k o o L 0 0 1 1 •h K o L H
JT O. (D&imíA) 219o ‘k ‘h 0 o 7i 1 0 0 •h 0 Z
o. JAHoasetJ (DtrrUJri') 2ÍSC 0 0 o o ’h 0 o L 0 •k 1 k íZ,
Loks er hvíta sóknin aö fara í
gang. Svartur hefur hins vegar
þegar komið mönnum sínum í
ógnandi aðstöðu og lætur nú kné
fylgja kviði.
abcdefgh
20.-Rxf3! 21.hxg6 hxg6 22.Rxf3
Auðvitað ekki 22.Dxf3? ? Dxb2+og
mát.
22. -Rxe423.Bd5?
Leiðir beint til taps en hvítur átti
úr vöndu að ráða. Karlsson hafði
hugsað sér að svara 23. Rd4 með 23,-
Rxc3 24.Dxb7 Rxa2+ 25JKbl Hxb7
26,Kxa2 Bxg4 með fjögur peð fyrir
mann og frumkvæðið. Besta vömin
er fólgin í 23.Hd3 en eftir 23.Db4!
virðist svo sem hvítur eigi afar erfitt
uppdráttar.
23. -Db4 24.Bxe4 Hxc3+! 25.Rc2
Hxc2+! 26.Dxc2 Bxb2+ 27.Kbl
Bd4+!
Rxc3 a412. Bb5+ Bd713.0-0 0-014. f4
g6 15. Hael Bxb5 16. Rxb5 b6 17. g4
bxc5 18. f5 exf5 19. dxc5 Ra6 20. gxf5
Rxc5 21. fxg6 hxg6 22. Dh6 Re4 23.
He3 Hab8 24. Rc3 Hxb2 25. Khl Dg5
26. Dxg5 Rxg5 27. Rxd5 Hfd8 28. Hd3
Kg7 29. Hf4.
f
9 h
29. - Rh3 30. Hxh3 Hxd5 31. Hhf3
Hdl+ 32. Hfl Hxfl+ 33. Hxfl Ha2 34.
Hf3 g5 35. Hc3 Kg6 36. Kgl f5 37.
Hc6+ Kh5 38. Hc3 f4 39. Hd3 Kg4 40.
Hc3 Hb2 41. Hc4 Hb3 42. Hxa4 Kf3 43.
Hb4 Hxb4 44. axb4 Ke2 og hvítur
gafst upp.
Skák
Jón L. Ámason
SAMTÖK PSORIASIS
OG EXEMSJÚKLINGA
Baðhúsið við Bláa lónið hefur veriö opnað aftur eftir viðgerðir
og endurbætur. Þeir félagsmenn sem vilja notfæra sér aðstöðu
í húsinu hafi samband við skrifstofu félagsins, Síðumúla 27,
sími 83920, mánudaga og fimmtudaga milli kl. 14.00 og 16.00.
STJÓRNIN.
HUSBYGGJENDUFf
AFGREIÐUM EINANGRUNARPLAST
Á BYGGINGARSTAÐ VIÐSKIPTAMÖNNUM AÐ
KOSTNAÐARLAUSU Á STÓR-REYKJAVÍKURSVÆÐINU/
AÐRAR SOLUVORUR:
PlPUEINANGRUN: FRAUÐPLAST/GLERULL
SPÓNAPLÖTUR: VENJULEGAR/RAKAÞOLNAR
ÞAKPAPPI • PLASTFÓLÍA • ÁLPAPPIR • STEINULL
/GLERULL • MÚRHÚÐUNARNET • ÚTLOFTUNARPAPPI1
r PLASTRÖR (PVC) OG TENGISTYKKI TIL FRÁRENNSLISLAGNA1
HAGKVÆMT VERÐ OG GREIÐSLUSKILMÁLAR VIÐ FLESTRA HÆFI
-7-
SERGREIN OKKAR ER
AÐ HALDA AÐ YKKUR HITA
BORGARPLAST
SIMI 93-7370. KVOLD- OG HELGARSIMI: 93-7355.
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
HALLDÓR BRYNJÚLFSSON.
Vesturvör 27, Kópavogi
sími 91-46966
NEWYO
BEIIMT FRÁ
:roxy diskótekiimu
í NEW YORK,
ÍBEST
THE TWIN CITYS
BREAKERS
SÝNA BREAK EINS OG
HANN GERIST BESTUR
í BEST í KVÖLD.