Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Page 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST1984. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Bannað að selja kartöflur í lausu Nú í sumar hafa kartöflur víða verið seldar í lausu í verslunum. Snemma í sumar ræddi neytendasíðan við nokkra neytendur og var ekki annað aö heyra en að þessi nýbreytni heföi mælst vel fyrir. Það eru þó margir sem muna þá tíð þegar kartöflurnar voru seldar hér í lausu. Þá þótti vera mikill sóðaskapur af því og mótmæltu kaupmenn kröftug- lega. Þau mótmæli urðu til þess að settar voru reglur um pökkun kart- aflna. Samkvæmt núgiidandi reglum er því bannað aö selja kartöflur í lausu. Nýlega mátti heyra í útvarpi tilkynn- ingu frá Heilbrigöiseftirlitinu þar sem kaupmenn voru minntir á aö óheimilt væri aö selja kartöflur í lausu. Hróbjartur Lúthersson heilbrigðis- fulltrúi sagði aö hugsanlegt væri að undanþágur yrðu gefnar frá þessum reglum þar sem aöstæður byðu upp á slíkt. Þar yrðu kartöflumar aö vera langt frá öðmm matvælum og að kart- öflumar yrðu ekki settar í hillurnar inni í versluninni, því annars væri hætt við því að ryk þyrlaðist upp þar. Hann sagði aö enn hefði ekkert verið ákveðið í þessu máli og væri ætlunin að bíða eftir því að íslenskar kartöflur kæmu á markaðinn. APH. Góð reynsla „Reynslan hefur verið mjög góð og hafa neytendur verið mjög ánægöir með það úrval af kartöflum sem hefur veriö boðiö upp á,” sagði Gísli Blöndal í Hagkaupi er hann var spuröur um hver reynsla Hagkaups heföi verið af því að flytja inn kart- Öflur, en Hagkaup er eitt þeirra fyrirtækja sem flutt hafa inn kartöfl- ur í sumar. ,,Ég er mjög ánægður með þennan innflutning og hef ur hann tekist mjög vel. Viöskiptavinir okkar hafa fagn- aö því aö geta valiö á milli tegunda af kartöflum og grænmeti,” sagði Gísli V. Einarsson hjá Eggert Krist- jánssyni. Hann sagði að þeir hefðu farið í þennan innflutning með mjög litlum fyrirvara og ekki ólíklegt að fariö yrði öömvísi aö næst þegar þeir flyttu inn. En innflytjendum hefur nú verið bent á að fylg jast með markaö- inum og verður innflutningur á kart- öflum stöðvaður þegar íslenskir kartöfluframleiðendur anna eftir- spurninni hér. APH AUKAEFNII MATVÆLUM Hvað eru aukaefni? Aukaefni eru efni sem em sett í matvæli í þeim tilgangi að vernda matvælin gegn skemmdum, auka bragðgæði þeirra, bæta útlit og auka næringargildi. Upphaf nútímanotkunar á auka- efnum má rekja allt til iðnbyltingar- rnnar. Þá streymdi fólk úr sveitum til borga. Þessir flutningar og mynd- un borga kröföust aukinnar mat- vælaframleiðslu, verslunar með matvæli og innflutnings á matvæl- um frá fjarlægum löndum svo sem frá Bandaríkjunum til Bretlands. Auk þessa breyttust kröfumar smám saman í átt að fjölbreyttari matvælaframleiðslu. UpplýsingaseðiU til samanbuiðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- 11 andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar .1 fjölskvldu af sömu stærð og vðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis- tæki. Nafn áskrifanda Heimili Sími Fjöldi heimilisfólks---- Kostnaður í júlí 1984. Matur og hreinlætisvörur kr. Annað kr. Nútíma allsnægtaþjóðfélag hefur mótað matvælaiðnaöinn. Þessi iön- aður verður aö mæta þeim þörfum, sem þjóöfélagiö fer fram á, á eins hagkvæman hátt og unnt er. Mat- vælaiönaðurinn verður aö framleiða matvöru sem er allt í senn, aðlað- andi, lystaukandi og næringarfræði- lega vel samansett. Matvaran eyði- leggst þó auðveldlega, ef ekki koma til tæknilegar aðferðir til aö koma í veg fyrir slíkt og lengja geymsluþol .vörunnar. Þær aðferöir sem hér um ræðir eru að bæta í vöruna aukaefn- um. Maðurinn hefur verið sér þess meðvitandi gegnum aldirnar að þörf hefur veriö á aö varðveita matvöru frá skemmdum. Hér á landi settu menn matvæli í súr og virkaði súrinn (mysan) þá sem aukaefni Einnig vemdaði fólk matvæli sín hér meö reykingu (eða þurrkun) og söltun. Til eru 5000 ára gamlar heimildir um að Fornegyptar notuðu ger bæöi til þess aö brugga bjór úr byggi og til þess að búa til súrdeigsbrauð. Með því aö nota ger við þessa framleiðslu bættu þeir öðrum efnum í vöruna sem jók næringargildiö, en þaö eru B-vítamín. Þetta sýnir okkur að hægt er að breyta mjög illmeltanlegri framleiðslu í auömeltanlega afurö meðhjálp aukaefna. Ef skoðuð er þróun brauðsins með tilliti til þeirra aukaefna sem bætt var í brauðið til aö auka næringar- gildi þess, sést að fyrst er notaö ger og salt og dugði það fólki í margar aldir. Þegar menn fóru að mala Heimilisbókhald DV: Hækkun um tæp 17 prósent Niðurstöður í heimdisbókhaldi DV tæp35% frá janúar meðaltali. Lands- í júní sýna mikla hækkun á milli meðaltal var 2.753 krónur í mars- mánaða. Hækkun á landsmeðaltali mánuði og er því nú í júní aðeins einstaklinga er 16,5%. Landsmeöal- rúmlega 3% hærra. Frá meðaltali í talið var 2.443 krónur í maí en er mars varð lækkun í apríl og maí en 2.846 krónur í júní, eða 16,5% hærra. núí júní verður stórt stökk uppaftur. Hefur landsmeðaltaliö hækkað um _þg Afrit skal tekið af innleggsnótum Þegar seldum vörum er skilað er iöu- lega gefin út innleggsnóta (kredit- nóta). Frumbækur í verslunum eiga að vera í tvíriti þannig aö ávallt sé til staðar afrit í bókhaldi fyrirtækis. Hafi neytandi eitt sinn fengið innleggsnótu, sem síðar glatast, þá ætti afrit nótunn- ar að koma að sama gagni. En þaö getur verið erfitt að sanna inneign ef kredit-nótan hefur ekki verið skráð á nafn. Þetta er ábending til viðskipta- manna um aö skrá nafn neytandans á innleggsnótu og eiga afrit af henni. Samkvæmt 8. grein reglugerðar um bókhald ber að gefa út innleggs- nótu (kredit-nótu)þegarvörumerskil- aö. Samkvæmt 4. málsgrein 7. greinar sömu reglugerðar þá eiga allar frum- bækur eða reikningar að vera að minnstakostifærðirítvíriti. -RR / -MATUROG HOLLUSTA- Gunnar Kristinsson matvælafræðingur Ingredients: Maltodextrin, food starch, hydrolysed protein, salt.vegetable fat, dried chicken, flavourings including Leek, flavourenhancer (monosodium glutamate), dried leek, gelling agent(E415), colour(E 102) and antioxidant (E320/E321). Innihaldsmerkingar á umbúðum gefa tii kynna hvaða efni, auka- efni, eru i matvæiunum. Ákveðnar töiur gefa til kynna hvaða auka- efni eru i viðkomandi matvælum. Á meðfylgjandi mynd má sjá töl- urnar E415, E102 og /320/E321, sem eru á ákveðnum matvælaum- búðum, súputegund. Til skýringar þá gefur talan /415 tíl kynna hvaða hleypiefni er notað í vöruna og E102 hvaða tegund af iitarefni, sem dæmi um hvernig eigi að lesa úr tölunum. Til eru listar eða skrár, staðlaðar yfir merkingar talnanna. hveitiö um miðja 19. öld tapaðist mikiö af næringarefnum, sérstak- lega B-vítamínum og jámi. Það var svo á miðri 20. öld, þegar mikilvægi þessara næringarefna varð þekkt, að farið var að bæta þeim í hveitið. Einnig hefur verið bætt í hveitið kalki og soja-próteini. En próteinið var sett í til þess aö auka mýkt brauðsins. Þýðing þessa próteins var þó ekki eingöngu aö auka mýktina, heldur fylgdu því lífsnauðsynlegar amínósýrur sem juku næringargild- ið. Nú hin seinni ár er farið að bæta rotvamarefnum í brauð til þess að koma í veg fyrir aö þau mygli. Hér á landi er þó, sem betur fer, mjög lítiö gert að því að bæta rotvamarefnum í brauðin. Líklega hefur salt verið fyrsta aukaefnið, ekki af því að þaö gerði matinn lystugri, heldur vegna þess aö líkaminn þarf á salti að halda til þess aðhann starfi eðlilega. Helstu flokkar aukaefna Helstu flokkaraukaefna eru: Rotvamarefni til að koma í veg fyrir skemmdir í matvælum. Litar- efni til að gefa ákveðnum matvælum sölulegra útlit. Bragðefni til að gefa matvörunni bragö. Bindiefni koma í veg fyrir að fituefhi t.d. mayonaise skilji sig og efni sem koma í veg fyrir að ómettuðfitaþránl Bragöefni sem notuð eru td. í gos- drykki eða djús eru yfirleitt tilbúnar . bragðlausnir, sem gerðar eru úr miklum fjölda bragðefria. Til dæmis hindberjabragðlausn (essense) inni- heldur allt að 29 bragðefrium Litarefni sem notuö em í gos- drykki og djús eru gerviefni að und- anskildum karamellulit, sem notað- ureríkóladrykki. Aukaefni og merkingar matvæla Þau aukaefni sem eru hvað mest notuð við íslenska matvælafram- leiðslu em rotvamarefni, litarefni, bragðefni og bindiefni. A vörumerk- ingum hafa þó upplýsingar um inni-. hald þessara efna verið vægast sagt lélegar. Kemur þetta sér sérstaklega illa fyrir fólk sem hefur ofnæmi fyrir aukaefnum, og er þá algengast að of- næmiö sé gagnvart litar- og rotvam- arefnum. Em upplýsingar um þessi efni annaðhvort engar eða þá svo lé- legar að þær koma að litlu haldi. Ættu framleiöendur að sjá sóma sinn í þvi að hafa vörumerkingar sínar þannig úr garði gerðar að auðvelt sé að sjá innihald vörunnar. Eg vil þó taka fram að þetta er ekki algilt og eru vörumerkingar sumra framleið- enda þeim til mikils sóma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.