Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Blaðsíða 10
10
DV. FIMMTUDAGUR 2. ÁGUST1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Nú eru tæpir þrír mánuðir liðnir
frá því að sovéski andófsmaðurinn
Andrei Sakharov fór í hungurverk-
fall. Engar fréttir berast af heilsu
andófsmannsins og ekki er vitaö með
vissu hvar hann er niður kominn.
Sömu sögu er að segja um eiginkonu
hans, Yelenu Bonner. Sakharov hóf
hungurverkfallið til aö mótmæla því
að sovésk stjórnvöld neituðu konu
hans um að leita sér lækninga á
Vesturlöndum.
Andsovéskur áróður
Vestrænir diplómatar í Moskvu
halda því fram að sú leynd sem hvílir
yfir heilsufari Sakharovs bendi til
þess að honum hafi hrakaö og að
sovéskir ráðamenn telji ráðlegt að
láta hann ekki sjást á opinberum
vettvangi. Diplómatarnir fullyrða að
augljóst sé aö Kremlverjar hafi ekki
fulla stjóm á málinu og að frétta-
leyndin bendi eindregið til þess aö
Sakharov sé enn í hungurverkfalli en
matur sé neiddur ofan í hann. Þeir
benda ennfremur á að ef Sakharov
hefði hætt í hungurverkfallinu og
væri viö góða heilsu myndu sovésk
stjómvöld vitaskuld notfæra sér þaö
og benda á að málið hafi allt veriö
tilbúningur vestrænna fréttastofa og
að tiigangurinn hafi einungis verið
sá að sverta Sovétríkin. Raunin hef-
ur hins vegar orðið allt önnur og
engar fréttir berast frá stjórnvöld-
um og áskoranir þúsunda manna á
Vesturlöndum um að Sovétmenn
leysi frá skjóðunni hafa hingað til
veriö algjörlega hunsaðar.
Samsæri
Þann 4. maí síðastliðinn birtust
fyrstu viðbrögð Sovétmanna í máli
Sakharovs. Þá skýrði sovéska frétta-
stofan Tass frá því að upp hefði kom-
ist um samsæri milli hjónanna og
bandaríska sendiráðsins í Moskvu.
Samkvæmt frétt Tass átti Yelena
Bonner aö sækja um hæli í banda-
ríska sendiráöinu og Sakharov að
fara í hungurverkfall — sem hann og
geröi. Með þessu móti átti aö þvinga
sovésk stjómvöld til að hleypa
Bonner úr landi. Bandaríkjamenn
harðneituðu því að hafa átt nokkurn
þátt í slíkri áætlun en viðurkenndu að
í apríl heföi Bonner skilið eftir bréf í
bifreið sendiráðsins sem hafði að
geyma beiðni hennar um að þetta
yröi framkvæmt.
Fjórum dögum eftir frétt Tass —
eða 8. maí — kom vinur Sakharovs
þeim skilaboðum til vestrænna
fréttamanna að andófsmaðurinn
væri kominn í hungurverkfall í borg-
inni Gorky og myndi halda því áfram
þar til konu sinni yrði heimilað að
leita sér lækninga á Vesturlöndum.
Eftir það hættu sovéskir fjölmiðlar
að fjalla um mál Sakharovs.
Andrei Sakharov og Yelena Bonner, eiginkona hans. Þau hafa háð marga baráttuna gegn sovéska
kerfinu. Nú veit enginn hvað orðið er afþeim eða hvernig þeim líður.
Er Sakharov
neyddur
til að nærast?
— enn fást engar upplýsingar
um afdrif sovéska andófsmannsins
Vinur Sakharovhjónanna, Irina G.
Kristi, heimsótti þau á heimili þeirra
í Gorky skömmu eftir frétt Tass og
staðfesti Sakharov í samtali við hana
að hann hefði byrjað hungurverkfall
og hann kvaðst ekki ætla að neyta
matar þó það kostaði sig lífið. Kristi
hafði þó ekki talað nema í þrjár
mínútur við hjónin þegar fundur
þeirra var truflaður af útsendurum
KGB — sovésku leyniþjónustunnar,
og síöan hefur engum vini Sakharov-
hjónanna tekist að setja sig í sam-
band við þau að því er taliö er.
Nokkru síðar fréttist að Sakharov
hefði verið fluttur frá Gorky og
komst þá sá orðrómur á kreik aö
hann hefði verið fluttur á sjúkrahús
þar sem han væri neyddur til að mat-
ast. Sovésk stjómvöld neituðu þess-
um fullyrðingum og staðhæfðu að
Sakharov væri hættur í hungurverk-
fallinu og væri viö góða heilsu.
Þessum fullyrðingum Sovétmanna
taka flestir með varúð enda geta þær
varla talist trúverðugar úr því að
Sakharov fær ekki að koma fyrir
almenningssjónir.
Sigur á alræðinu
Sakharovhjónin fóru í hungur-
verkfall árið 1981 og þá unnu þau
sigur í baráttunni gegn sovéska
álræðinu. Þá kröfðust þau þess að
fósturdóttir Yelenu Bonner fengi
brottfararleyfi frá Sovétríkjunum.
Sovésk stjómvöld gengu að þessum
kröfum og hjónin hættu í hungur-
verkfallinueftir 17 daga.
Margir áttu von á að úr málinu
leystist þegar Francois Mitterrand
Frakklandsforseti fór í opinbera
heimsókn til Sovétríkjanna í júní
síðastliönum. Mitterrand ræddi opin-
skátt um mál Sakharovs í ræðu sem
hann hélt í Moskvu. Með þessu braut
hann venjur sem gilt hafa um slíkar
heimsóknir og mæltist þetta illa fyrir
hjá Konstantín Chernenko, forseta
Sovétríkjanna. Hann svaraði Mitter-
rand og var harðoröur í hans garð og
hafnaði öllum ásökunum um mann-
réttindabrot í Sovétríkjunum. Hann
varaði einnig vestræna stjómmála-
leiðtoga við því að skipta sér af inn-
anríkismálum Sovétmanna.
Mitterrand fékk því engar fréttir um
örlög andófsfólksins og óvissan hélt
áfram.
Heimsókn Mitterrands
Um svipaö leyti og Mitterrand fór
til Kreml birtu f jölmiðlar í Sovétrík j-
unum harðar árásir á Yelenu Bonn-
er. Var hún sökuö um að dreifa
óhróðri um Sovétríkin til Vestur-
landa og hún kölluð föðurlandssvik-
ari. Hún var ennfremur sökuð um að
hafa afvegaleitt eiginmann sinn —
vísindamanninn Andrei Sakharov.
Skömmu eftir heimsókn
Mitterrands barst ættingjum
Sakharovs í Bandaríkjunum skeyti
sem gaf til kynna að þaö væri undir-
ritaðaf Sakharov sjálfum. Texti þess
var á þessa leiö: „Hafiö ekki
áhyggjur. Heilsa okkar er góö og
okkur líður vel.” Ættingjarnir höfðu
strax uppi efasemdir um að skeytiö
væri ófalsað. Nokkru síöar skýrði
ítölsk blaðakona frá því að Yelena
Bonner hefði hringt í sig frá Gorky
og sagt sér að Sakharov væri látinn.
Lítill trúnaður var lagöur á þessa
sögu blaöakonunnar og kom þar
ýmislegt til. Bonner þekkti hana lítið
sem ekkert og áttu menn því erfitt
með að trúa því að Bonner hefði sam-
band við hana með slík tíðindi.
Blaðakonan skildi auk þess lítið í
rússnesku og ennfremur er mjög
erfitt að ná símasambandi við útlönd
fráGorky.
Aðeins ein leið
Fyrir stuttu bárust þær fréttir til
Vesturlanda aö Sakharov væri í með-
ferö hjá geðlækni og væri í lyfjameð-
ferð sem miða ætti að því að breyta
skapgerð hans. Slík lyf eru notuð
fyrir geðsjúklinga. Þessi saga hefur
ekki fengist staðfest en hins vegar
styrkist sá grunur manna á Vestur-
löndum dag frá degi að Sovétmenn
haldi Andrei Sakharov á sjúkrahúsi
þar sem hann sé neyddur til að nær-
ast.' Vilji Sovétmenn kveða þessar
sögur niður, sem þeir segja aö sé
auðvirðilegur áróður gegn Sovétríkj-
unum, þá er aðeins ein leiö fær. Hún
er sú að þeir leysi frá skjóðunni og
aflétti einangrun Sakharovhjón-
anna.
Nígería:
Otrúleg spilling á öllum sviðum
Herstjórnin í Nígeríu hefur nú
gripið til örvæntingarfullra úrræða
til að koma á reglu innanlands. Efna-
hagur landsins er i hinum mesta
ólestri og lítil virðing er borin fyrir
lögum og reglum.
Fyrir rúmri viku voru sett ný lög
sem mæltu fyrir um dauðarefsingu
fyrir ýmis afbrot.Þeir sem gerast
sekir um brennu eða fjársvik mega
búast við aö þurfa að gjalda fyrir
slíkt með lífi sínu. Sé einhver náms-
maöur svo óheppinn að vera staöinn
að verki viö að svindla á prófi þá þýð-
ir það fangelsisvist í 21 ár fyrir hann.
Þessi nýja lagasetning er liður í
baráttu herstjómarinnar „gegn aga-
leysi” eins og hún nefnir það.
Óreiða á
öllum sviðum
Herstjórnin tók völdin á síðast-
liðnu gamlárskvöldi og var bar með
lýðræðislega kjörin stjóm svipt
völdum. Þegar herstjórnin tók við
völdum blasti viö óreiða á öllum svið-
um og stjómleysiö var algjört og því
engin furöa þó að gripið sé til rót-
tækra aðgeröa þó að deila megi um
hvort rétt leið hafi orðið fyrir valinu.
Með aðgerðum sínum ætlar stjómin
að sýna hinum almenna Nígeríu-
manni aö heiðarleiki borgar sig.
Einn stuðningsmaður herstjórnar,
Gen Buharis, sagði í viðtali við
breskan blaðamann nýlega aö mesta
afreksverk stjómarinnr á sjö mán-
aða valdatíma væri það að Nígeríu-
menn hefðu lært að bíða og standa í
biðröðum.
Heimildir herma að ástandið í
höfuöborg Nígeríu, Lagos, sé að
mörgu leyti skárra nú en í tíð fyrri
ríkisstjórnar. Sem dæmi er þá nefnt
að nú geti hinn almenni borgari not-
að rafmagn í sex klukkustundir á
sólarhring en áður var það ekki svo
gott. Ennfremur er á það bent að
símakerfiö í borginni eigi það til aö
virka nú en áður var það algjörlega
vonlaust að nota símann.
Nígería hefur verið eitt þeirra
landa sem ganga fyrir mútum. Nú
hefur verið komið í veg fyrir þann
ósiö lögreglumanna að rukka vegfar-
endur um háar f járhæðir gegn því að
viðkomandi fái aö halda för sinni
áfram. Reynt hefur verið að minnka
skrifræðið í landinu sem var að tröll-
ríða öllu. Atak hefur verið gert í því
að hindra menn í að svíkja stórfé út
úr ríkinu meö því aö setja tilbúin
nöfn á launaskrá og kostar það nú líf-
lát ef upp kemst.
Lrfið er barátta
Þrátt fyrir aðstjómin hafi reynt að
berjast gegn þeirri ótrúlegu spillingu
sem þrifist hefur í Nígeríu þá er
Umsjón:
GunnlaugurS.
Gunnlaugsson
ýmsu ábótavant. Hið daglega líf er
mikil barátta fyrir hinn almenna
borgara og kjörin mjög slæm. Ibúar
höfuðborgarinnar eru um sex
milljónir og þurfa þeir flestir að
vakna um klukkan fjögur á nóttunni
og leggja af stað til vinnu. Erfitt er
að aka um götur Lagos því gatna-
kerfið er bágborið. Til að stemma
stigu við bílamergðinni hafa verið
settar undarlegar reglur. Einn daginn
er bannað að aka á bílum sem bera
sléttar tölur á skráningarnúmerum
en hinn daginn er dæminu snúið viö
og þeir sem hafa oddatölurnar verða
að skilja bílana eftir heima. Þessum
reglum hefur verið slælega fylgt,
enda nær ómögulegt aö framfylgja
þeim.
Verðbólgan í Nígeríu er um 100
prósent og allar launahækkanir hafa
verið bannaöar með lögum. Lág-
markslaun eru nú um 6000 krónur á
mánuöi. Hins vegar verður ekki séð
hvemig fólk getur lifað af slíkum
launum. 50 kíló af hrísgrjónum kosta
til dæmis 6.800 krónur þrátt fyrir að
herstjórnin hafi mælt svo fyrir að
gr jónin skyldu seld á 1.500 krónur.
I upphafi valdaferilsins reyndi
stjórnin að neyða menn til að lækka
vöruverð og herinn ruddist inn í
verslanir og bauð viöskiptavinunum
vörurnar á verði sem var langt fyrir
neðan þaö sem verslunin hafði sett
upp. Fór þaö allt eftir því hvað her-
mönnunum þótti sanngjarnt. Þetta
gekk þó ekki til lengdar og verðlag
hefur hækkaö mjög á síðustu mánuð-
um. Og fyrir framan verslanir eru
ávallt langar biðraðir þar sem fólk
bíður eftir helstu nauðsynjavörum.
Gjaldeyristap
Ibúar í Nígeríu allri eru um 100
milljónir og er búist við að þeir verði
um 650 milljónir árið 2150. Miklar
erlendar skuldir hafa þjakaö landið
og nú er unnið aö því að framlengja
skammtímalán upp á fimm
milljaröa breskra punda. Hefur her-
stjórnin leitað aðstoðar hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum. Þau skilyrði
hafa hins vegar verið sett að stjórnin
felli gengi gj aldmiðilsins — naira. Og
ennfremur er þess krafist að frelsi í
viðskiptum verði aukiö til að fá hjól
atvinnulífsins til að snúast með eðli-
legumhætti.
Verðlækkun á olíu hefur einnig
valdið Nígeríumönnum miklum
búsifjum en 95 prósent útflutnings-
tekna landsins eru af olíusölu. Ariö
1980 seldu Nígeríumenn olíu fyrir 25
milljarða punda en nú eru tekjurnar
af svarta gullinu ekki nema tíu
milljarðar punda á ári. Nígeríu-
stjóm gat knúið fram örlitla stækkun
á framleiðslukvóta sínum innan
samtaka olíuframleiösluríkja —
OECD — fyrr í þessum mánuði en
það dugir hvergi til að mæta tekju-
tapinu.
Vandamálin sem blasa við
herstjóminni em því augljóslega
gífurleg og svo virðist sem þaö sé
ekki í mannlegu valdi aö leysa þau.