Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Qupperneq 16
16
DV. FIMMTUDAGUR 2. ÁGUST1984.
Spurningin
Hefurðu fylgst með ólympíu-
leikunum?
Þorgeir Jóhannsson framkvæmda-
stjóri: Það er nú eitthvað takmarkað
sem ég hef séö af ólympíuleikunum, ég
myndi frekar vilja taka þátt í þeim
heldur en að horfa á þá í sjónvarpi.
Bjarni Jóhannsson póstafgreiðslumað-
ur: Það er lítið, rétt aöeins kíkt á sjón-
varpiö. Eg vonast eftir að Einar Vil-
hjálmsson nái silfrinu.
Sævar L. Haraldsson bilstjóri: Já, ég
hef aðeins fylgst með okkar fólki. Við
getum ekki búist við miklu af sundfólk-
inu en ég vona að okkur gangi vel á
þessum leikum.
Kolbrún Gunnarsdóttir sjúkraliði: Það
er lítið, ég horfði á setningarathöfnina
í sjónvarpinu.
Ömar Gunnarsson, vinnur hjá
Smjörlíki: Já, og þá aðallega ígegnum
sjónvarpið. Mér sýnist Islendingar
hafa staðið sig alveg sæmilega.
Unnur Kristjánsdóttir húsmóðir:
Afskaplega lítiö. Ég vona bara aö Is-
lendingum gangi vel.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Ringlaður af
framgangi Stein
dórsmálsins
Sverrir Guðjónsson, Hreyfli, skrifar:
Ég get ekki orða bundist, svo ring-
laður er ég orðinn af framgangi Stein-
dórsmálsins. Stórmerkilegt er að ráð-
herra skuli ætla að sniðganga dóm
Hæstaréttar og rétta mönnum atvinnu-
leyfi á silfurfati, svona til að verðlauna
þá fyrir að hafa stoliö vinnu frá okkur
sem höf um haft lögleg leyfi í tvö ár.
Ég hef verið að bíða eftir að ný-
kjörin stjórn Frama eöa Hreyfils láti
heyra frá sér. En eitthvaö eru þeir
seinir á sér því aö sennilega eru þeir að
reyna aö kanna nýja útgjaldaliöi fyrir
okkur.
Furöulegt er hvað almenningur
hefur veriö blekktur af forustu Stein-
dórs. Þarna vinna menn tvöfaldar
vaktir á bílunum eða þá að eigendur
bílanna f jarstýra útgeröinni heiman að
frá sér.
Ég hef ekki haft mikla samúö með
Steindórs-stöðinni. Þeir hafa aldrei
þurft að berjast fyrir hækkun taxta eöa
vera í bílstjórafélagi heldur bara tekiö
við því sem aðrir hafa útvegað rétt
eins og á að gera meö atvinnuleyfin
núna.
Vita menn almennt aö taxti leigu-
bíla er 9,65 krónur á ekinn kílómetra?
Ráðherrarnir gætu borið þennan taxta
saman við greiðslur til bíla opinberra
starfsmanna. Og almenningur gæti
boriö þetta saman viö bílaleigubíla
meö áhættu. Og vita menn að hægt er
að komast til Akureyrar, fram og til
baka, í leigubíl fyrir 9.000 krónur en
flug fyrir fjóra kostar 12.000 krónur?
Bréfritari er á móti því að gróðurhúsið risi á bak við Bæjarieiðahúsið á
Þetta er ekki Hafnarfjarðarstrætó. Hann er frá Los Angeles og iék
kjarnorkuknúinn strætó ibíómynd. Bannað er að reykja ihonum.
Hafnarfjörður:
Bílstjórar reykja
í strætó
Guðmundur Gunnarsson, 12 ára, framan í mig, en þeir reykja bara
skrifar: eitthvað út í loftið í stað þess að beina
Eins og flestum er kunnugt eru þessum óþverra út um gluggann. Er
reykingar stranglega bannaðar í kannski allt í lagi að farþegar reyki
strætisvögnum. Ég get því ekki ham- áður en vagninn fer af stað?
ið reiði mína lengur þar sem ég hef
nokkrum sinnum tekið eftir því að Vagnstjórar eiga aö hlýða þeim
reykt hefur veriö í Hafnarfjaröar- reglum sem settar eru alveg eins og
vagninum og þá af vagnstjórunum farþegar. Það stendur skýrt og
sjálfum áöur en lagt er af stað niður greinilega í vagninum að bannað sé
á torg að reykja þar. Allir eiga að taka tillit
Þar sem ég sit oftast fremst í til annarra, þar meö taldir vagn-
vagninum fæ ég mestan reykinn stjórarHafnarfjaröarvagnanna.
Afturför í
Langholtsvegi.
Ekkert gróðurhús
við Bæjarleiðahúsið
húsagerðarlist
íbúi við Njörvasund skrifar:
Þaö var gaman að fá upplýsingar
um hvað er á döfinni á leiksvæði barna
við Bæjarleiðir en að þær upplýsingar
skuli koma í lesendabréfi en ekki beint
til íbúa hverfisins er meira en mér
finnst við eiga skilið. Ekki hefur
borgin eytt og sóaö svo miklum fjár-
munum í umrætt leiksvæði að það hefði
verið mikið bruöl að kaupa frímerki á
bréf til íbúa hverfisins.
En hvemig væri nú fyrir allt unga
bamafólkið, sem óðfluga flyst í þetta
hverfi, að taka höndum saman og
koma til móts við borgina og leggja til
vinnu og vinnugleði, ásamt upp-
rennandi notendum svæöisins, og gera
eitthvað róttækt fyrir svæðið annað en
að gera þaö að bílastæðum fyrir
væntanlega viðskiptavini blómanna og
jarðarberjanna sem einhver f ramtaks-
samur garðyrkjumaður vill fá að
rækta þama, en börnin eiga sennilega
bara að blómstra á götunum í
hverfinu.
Já, hvernig væri nú að mynda sam-
tök íbúa í hverfinu og gera eitthvað
fyrir þennan skika? Þarna gætu veriö
Jónsmessumót með skemmtileg-
heitum og fjöri. Þaö er eins og ekkert
sé gert fyrir börnin sem fútt er í nema í
nýju hverfunum. Takið nú höndum
saman, ungir og upprennandi
foreldrar í hverfinu, og gerið eitthvað í
málinu.
Látið ekki taka þetta svæði bam-
anna ykkar frá þeim þegjandi og hljóð-
alaust.
S.S.T.skrifar:
Eftir því sem árin líða, og fleiri hús
eru reist hér í Reykjavík og nágrenni,
kemur æ betur í ljós hversu húsa-
gerðarlistinni fer hrakandi. Göngum
um eitthvert af nýjustu hverfunum.
Lítum t.d. á íbúðarhúsin sem nú eru
byggð austan við kirkjugaröinn í Foss-
vogi. Mörg eru þessi hús ljótleikinn
sjálfur uppmálaður og óhentug til íbúð-
ar að auki. Svo virðist sem arkitekt-
arnir, hönnuðir húsanna, hafi flestir
lagt hina mestu áherslu á að ofhlaöa
þau alls konar útskotum, ávölum þak-
gluggum og öðru slíku sem vitanlega
eykur mjög byggingarkostnað þeirra
án nokkurs ávinnings fyrir eigendurna
og gerir húsin jafnframt svo ljót útlits
að vart er hægt á að horfa á þau án
sársauka.
Líklega hefur gatnamálastjórninni
eða fegrunarsérfræðingum Reykja-
víkurborgar þótt nóg um allan þennan
ljótleika því að undanfamar vikur
hefur flokkur manna með öflugum
tækjum unnið við að hlaöa upp moldar-
bing háan meðfram öllu hverfinu að
austanverðu til að f ela fyrir saklausum
vegfarendum sem mest af þessari
hörmungarómynd, sem hús eiga aö
kallast, og ætluð eru fólki til ævarandi
búsetu.
Ég vil hvetja fólk, sem ætlar að
byggja sér íbúðarhús, aö hafa sem best
eftirlit með þeim sem húsin teikna,
arkitektunum, sem sumir hverjir
virðast hvorki bera skyn á fjármál né
fegurð.
Flugleiðir og fjölmiðlamir
Kjósandiskrifar:
Þaö er með ólíkindum hvemig
flugfélagið Flugleiðir, sem er aö
stómm hluta í eigu ríkisins, getur í það
óendanlega fengið inni í ríkisfjölmiöl-
unum til að auglýsa eigið ágæti annars
vegar og hins vegar breytt sér í líki
beiningamanns þegar þaö á við, svo
sem þegar verið er að falast eftir stuð-
ingihinsopinbera.
Sem dæmi um þetta hafa frétta-
menn og dagskrárstjómendur Ríkisút-
varps t.d. verið á þönum til aö gera
Flugleiðum hátt undir höfði með því að
hafa viðtöl og þætti um rekstur Flug-
leiða og leitt fram hina ýmsu forystu-
menn félags þessa til að tíunda ýmist
uppgang, þegar það á við, eöa volæði
og vesöld þegar þurf a þykir.
Þannig var í þáttum „Síðdegis-
vöku” á sínum tíma hvað eftir annað
viðtöl við forsvarsmenn Flugleiða og
gekk þetta svo langt að varla máttu
flugvélar koma svo til lendingar að
ekki væri þess getið sérstaklega. —
Þetta viöræðuform fylgdi stjórnanda
„Síðdegisvöku” úr morgunþáttum
sem hann stjómaði einnig þar áður.
I kvöldþáttum, sem nefndir hafa
verið „Kvöldgestir”, þurfti að koma
að einum „Flugleiöa-þætti” meö for-
stjórann sem viðmælanda þar sem
hann tíundaði enn og aftur erfiðleikana
sem sköpuðust við brottrekstur
gamalla Loftleiða-starfsmanna á ár-
unum 1980—81.
Og viti menn, enn er á ferðinni út-
varpsþáttur sem heitir Síðdegisvaka
og þar fá Flugleiðir inni með tvo fors-
varsmenn sína sem lýsa fjálglega
hvernig farþegafjöidi hefur aukist frá
því á síðasta ári. — Einnig er þátturinn
notaður sem bein auglýsing fyrir ný
fargjöld félagsins, svokölluð „stand-
by”-fargjöld til Akureyrar og hlust-
endur beðnir að leggja fram tillögur aö
íslensku heiti yfir orðið „stand-by
Og enn fá Flugleiðir svo tíma hjá
Ríkisútvarpi daginn eftir þar sem
tekiö er á móti hugmyndum og uppá-
stungum hlustenda og forráðamenn
þáttarins sitja og taka á móti svörum
fyrir hönd Flugleiða hf.
Annars er það engin stórfrétt frá
Flugleiðum þótt farþegaaukning sé í
ár miöað við sama tíma í fyrra því þá
voru mun færri ferðir en nú. En langt
er enn í þaö að Flugleiðum takist aö ná
þeim farþegafjölda sem var mestur á
velgengnisárum Loftleiöa á árunum
1973 og 74. Og alla farþegaukningu
Flugieiða nú má rekja til hugmynda
Loftleiða hf. á sínum tíma, þ.á.m. hug-
myndina um „stop-over”-farþegana,
sem þeir lýsa yfir að aukning sé á nú.
En hvaða önnur fyrirtæki skyldu geta
fengið inni í ríkisfjölmiölunum með
líka fyrirgreiðslu og Flugleiðir?
„Farþegaaukningu Flugleiða má rekja til hugmynda Loftleiðamanna,
þ.á m. um„stop-over" farþegana", segir bréfritari.