Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1984, Side 36
44 Sviðsljósið Sviðsljósið DV. FIMMTUDAGUR 2. ÁGUST1984, Break-dansinn hefur slegið í gegn hér á Islandi sem annars staðar og þá á meðal unglinganna því varla er á færi þeirra eldri að breika. Áhuginn fyrir breikinu byrjaöi fyrir alvöru í vetur eftir keppni sem háð var í Tóna- bæ. Núna sýna unglingamir á óllum helstu stööum í bænum og þeir fá víst nóg að gera um verslunarmannahelg- ina. Islensku unglingarnir hafa verið í námi hjá Twin City Breakers-flokkn- um sem hingað er kominn frá New York. Hefur það verið mjög skemmti- legtaðþeirrasögn. Um síðustu helgi var síðan haldin sýning í unglingastaðnum Best þar sem Twin City Breakers og íslenski flokkurinn Icebreakers sýndu við mik- inn fögnuð áhrof enda. Icebreakers-flokkurinn er greini- lega kominn langt á þessu sviði en það sýndi flokkurinn greinilega í Best. Ekki sakar aö geta þess að Ice- breakers tcku einnig léttar og skemmti- legar sveiflur fyrir nokkra útvalda á götunni eftir sýninguna í Best. Þessi nýi dans hefur gert ungling- ana frjálslega og ófeimna og er skemmtiiegt að sjá hve þeir lifa sig inn í þetta nýja fyrirbæri. Herreys-bræðurnir: Gerðu allt vitlaust í Kaup- mannahöfn Sænsku bræðumir, Herreys, virðast gera það gott á Norðuriöndunum í sumar. Þó að Svíarnir virðist ekki yfir sig hrifnir af þeim bræðrum slógu þeir rækilega í gegn í Tívolí í Kaupmanna- höfn nú um daginn. Þá mættu fimmtíu og eitt þúsund manns til að sjá þá. Mikið var um unglingsstúlkur en þær munu vera allhrifnar af þessum vel greiddu herramönnum. Nokkrar munu hafa fallið í yfirliö — ekki bara vegna aðdáunar á piltunum heldur einnig vegna mikils troönings sem myndaðist ‘í tívolíinu. Einnig mun hafa veriö nokkuð um minni háttar meiðsli en ekki þó alvarleg að sögn. Bræöumir munu hafa haldið af stað í ferð um Danmörku og vona þeir að þeim verði alls staðar jafnvel tekið og í Kaup- mannahöfn. Það er annars af þeim félögum að frétta að þeir komu nýlega til Noregs og báru þeir löndum sínum ekki vel söguna. Sögðu Svía búa til alls kyns gróusögur um þá og það þætti þeim vissulega leiðinlegt. Rolling Stones aðdáendur geta fa riö að hiakka til því í desember er væntanleg ný plata með þessari elstu rokkhljómsveit heims. Þá er einnig í ráði aö þeir félagar leggi upp í tónleikaferð strax á næsta ári. — Við höfum lofað CBS plötuút- gáfunni fimm plötum í viöbót þann- ig að við erum ekki alveg hættir, segir Mick Jagger. Sjálfur er hann nú aö vinna að sólóplötu. — Það er ekkert merkilegt við það, segir Jagger. Allir aðrir í hljómsveitinni hafa gefið út sólóplötur, Bill Wyman hefur t.d. gefið út þrjár plötur. BREAK-break-break-break-break-break-break-break-break-break-break-break Á þessari mynd er yngsti breah- dansarinn, Waiter, sem aðeins er fjögurra ára gamall, ásamt David og islensku strákunum sem kalla sig lcebreakers. Á hinum myndun- um sjáum við nokkra skrykki. DV-myndir Kristján Arí. í:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.