Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Blaðsíða 40
52 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGUST1984. Sviðsljósið Sviðsljósið mmn í v ?> t héHAmMu <ámém " * ''yW^ * ’■ /<■> > !~í*- ' • * * ■" y : 'i \ Flautusleikjó er alltaf vinsæll. Bæði er hann góður á bragðið og eins er hægt að fíauta með honum við við- eigandi tækifæri. Þegar spennan er mikil i kringum mann er þó alltaf hætt við að sleikjóinn g/eymist og þá klístrast munnurinn svolítið. . . en hvað gerir það til? Þessi er eins og klipptur út úr ameriskri bíómynd en er þó engu að síður ungur Hafnfirðingur sem fylgdist með kassabílarallinu. Með barnið sitt á göngu. Ekki er þessi mamma há i loftinu en hún gætir engu að síður ýtrustu varkárni er hún gengur með barn sitt yfir götuna, \ langt frá öllum ys og þys hæjarlífsins. Kassabílarall í Firðinum: UNGIR GAFLARAR FYLGDUST MEÐ AF MIKLUM ÁHUGA Margir ungir Gaflarar voru samankomnir í miö- bænum einn föstudag fyrir stuttu. Þá fór fram í bæn- um hið árlega kassabílarall með tilheyrandi furðuföt- um, blöðrum og skrípakörl- um. Margt var um mann- inn enda kassabílarallið orðið hefðbundin skemmt- un sem enginn vill missa af. Einar Ölason, ljós- myndari DV, tók myndir af nokkrum ungum Göflurum við þetta tækifæri og látum við þær fylgja hér með. Boltinn veiddur í háf með glæsilegum hreyfingum þeirra Hildibranda. Takið eftir skraut- iegurn búningum liðanna. Blásið í lúður áður en hinn geysispennandi leikur byrjar. Tæplega átta hundruð manns fylgdustgranntmeðþeim HHdibrandiog Augnabliki. DV-myndir Kristján Ari. m m SERSTÆÐIR BUNINGAR VOKTU MIKLA ATHYGU I miöjum æsispennandi leik Þórs og Breiöabliks, sem fram fór á Kópavogsvellinum, fyrir stuttu, þaö er að segja í hálfleik, komu Hildi- brandur og Augnablik fram og kepptu sín á milli. Liöin stóðu sig vel og skörtuöu sínum „bestu” búning- um á vellinum. Búningamir vöktu sérstaka athygli áhorfenda enda ekki heföbundin iþróttaföt í þeirri merkingu. Ekki fór leikurinn heldur fram meö heföbundnum hætti, frekar en þeirra var von og vísa. Dæmi um þaö er þegar einn Hildibranda náði boltanum meö háfi. Þá munu Hildi- brandamenn einnig hafa sleppt lundapysjum yfir áhorfendur við misjafnan fögnuð, aö því er sögur herma. Lesendum gefum við hér tækifæri til að h'ta þessa skörunga augum á myndum en til glöggvunar má geta þess aö Hildibrandur er frá Vest- mannaeyjum og Augnabhk frá Kópavoginum. Vestmannaeyingam- ir vom fáklæddari á vellinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.