Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Blaðsíða 12
12 DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGUST1984. Útcfáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustióri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EÍNARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla.áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF„ SÍOUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarverðá mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helgarblað28J<r. Gerilsneyddur Stóri bróóir Eitt af því, sem hefur á liðnum árum dregið úr óbeit manna á Grænmetisverzlun landbúnaðarins, er, að þeir hafa getað farið þangað og valið sér kartöflur í lausri vikt. Þannig hefur fólk keypt þær kartöflur, sem þaö vildi, og forðazt hinar, sem fljóta með í pokana. Eftir að kartöfluverzlunin varð hálffrjáls í vor, hafa neytendur átt þess kost í mörgum búðum að kaupa kart- öflur með sama hætti og gert er í útlöndum. Þeir hafa get- að valið á milli kartöflutegunda á mismunandi verði, gæðum og stærö — og síðan milli einstakra kartaflna. Heilbrigðiseftirlit ríkisins vill meina okkur að kaupa kartöflur á þennan hátt. Það hefur dustað rykið af reglu- gerð um, að hvorki megi selja kartöflur ópakkaðar né í neti. Þær verði að vera í lokuðum pokum, það er að segja óséðar eins og þær finnsku í vor. Vafalaust er það heilbrigðisráðuneytið, sem stendur að baki og vill forða Islendingum frá svokölluðum sóða- skap og moldryki, sem talið er, að fylgi þeim viðskiptum með kartöflur, er tíðkast í öðrum löndum og við höfum fagnað aö hafa komizt á hér á landi. Mörg fleiri dæmi eru um, að heilbrigðisráðuneytið vildi helzt gerilsneyða Island og Islendinga, jafnvel þótt sú stefna muni á endanum leiða til þess, að við getum ekki fariö til útlanda án þess að falla samstundis fyrir margs konar gerlum, sem við erum óvön. Fyrir nokkrum árum tókst Stóra bróður í heilbrigðis- ráðuneytinu að banna sölu á kjúklingum hér á landi öðru- vísi en frystum. Þar með var tekin frá okkur náttúruleg vara. I staðinn fengum við frysta, bragðdaufa og seiga af- urð úr verksmiðjum. Með frystingunni var stefnt að því að spara mönnum rétta og vandaða meðferð viðkvæmrar vöru. Frystingin dregur úr tilfinningu framleiðenda, verzlunarfólks og neytenda fyrir því, að um viðkvæman mat sé að ræða. Færibandahugsunin er í algleymingi. Sagt er, að gerlar berist með ófrystum kjúklingum til manna. Heilbrigðisráðuneytið ímyndár sér vafalaust, að íslendingar nagi kjúklingana hráa eða borði þá með tól- um, sem áður hafa verið notuð við meðferð hrárra kjúkl- inga. Þannig hugsar Stóri bróöir. Eitt skærasta ljósið í Hollustuvernd ríkisins, formaður Matsnefndar vínveitingahúsa, hefur skrifað bréf til bezta veitingahússins utan Reykjavíkur. I bréfinu er gert að skilyrði fyrir fullu vínveitingaleyfi, að „húsgögn í setu- stofu verði endurnýjuð”, svo að þau verði „samstæðari”. I þessari setustofu eru nú gömul og falleg húsgögn af ýmsu tagi, sérstaklega vinaleg og þægileg. Auðvitað stingur slíkt í áugu hins gerilsneydda Stóra bróður. Hann vill í staðinn stöðluð nútímahúsgögn, alveg eins og hann vill lokaða kartöflupoka og frysta kjúklinga. Sama ráðuneyti hefur fengið sérálit sérstakrar bind- indisnefndar um, að torveldaður verði aðgangur þjóöar- innar að bæði léttum vínum og sterkum, væntanlega með þeim afleiðingum að áfengisbölið breyttist í fíkniefnaböl. Nema landsmönnum sé ætlað að naga skósvertu eins og á bannárunum! Hægt væri að gera grín að þessum og öðrum tiltektum, sem beint eða óbeint eru á vegum heilbrigðisráðuneytis- ins. En því miður er málið alvarlegra en svo. Stóri bróðir gengur hreinlega laus og vill gerilsneyða þjóöfélagið, búa til þjóðfélag, sem ekki þrífst í umhverfi sínu. Jónas Kristjánsson. Svíktu ekki lit, Magnús Bjarnfreðsson „Það þarf að stokka spilin,” segir Magnús Bjarnfreösson í fyrirsögn í Dagblaðinu þ. 26. júli sl. 1 greininni fjallar Magnús Bjamfreðsson um áhyggjur sínar af „ólýðræðislegri fá- mennisstjóm, sem í raun er í verka- lýðsfélögunum” eins og segir í texta undir mynd af fundi 70-manna stjórnar og samninganefndar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja(BSRB). „Getur það verið að félagsmenn verkalýðshreyfingarinnar séu upp til hópa hættir að trúa á lýðræði innan hennar? Getur þaö verið að t.d. þeir, sem ekki vilja segja upp samningum, vilji ekki óhreinka sig á því að karpa við forystuna og klapplið hennar á fundum? Að þeir séu svo vissir um að verða ofurliði bornir, með brögðum (!) ef ekki vill betur, aö þeir viti að úrslit séu ráðin löngu fyrir fund? Getur það verið að sáralítil fundarsókn hinna, sem vilja segja upp samningum, komi til af sömu ástæðu?...” Það er nú það. Athugið að þessum aðdróttunum Magnúsar, sem við fyrstu sýn virðist beint að forystunni, er í rauninni beint aö launafólki í landinu. Magnús gefur sér það að almenningur sé samsafn geðlitilla, getulausra einstaklinga, sem skilji ekki þá einföldustu allra reglna, að meirihluti ræður á fundum. Athugiun einnig að Magnús notar — enn sem komið er — eingöngu spumarformið. Engar full- yrðingar, því Magnús hefur nefni- lega sjálfur verið í stéttarfélagi og veit betur. Og enn leiftrar gullpenninn: „Ef (undirstr. mín) svona er kom- ið, fer þá ekki að vera nauösynlegt að setja lög um uppsögn samninga og verkfallsboðun, sem tryggir það aö vilji félagsmanna komi fram í allsherjaratkvæðagreiðslu um nýja samninga? Af hverju ekki um hiö örlagaríka skref aö hefja vinnudeilu?” Reyndar eru slík lög til og gilda einmitt um þau samtök, sem hinn gerhuguli rýnandi hefur löngum verið félagsmaður í, þ.e. BSRB. En af einhverjum ástæöum hentar þaö Magnúsi betur að „gleyma” því — e.t.v. af því það hentar ekki niður- stöðunni. Áfram er haldið og allt í einu þarf Magnús ekki lengur að spyrja: „Auðvitað er mér ljóst að slík lög á ekki að setja og má ekki setja þegar vinnudeilur eru að hefjast. Það væri aðeins til að hella olíu á eld. En það þarf að fara að huga að þessum málum af fullri alvöru áður en verkalýðshreyfingln verður enn meir en nú er háð fá- mennlsstjórn sjálfsklpaðra foringja.” (undirstrik. mín.) Nú þarf ekki lengur að spyrja hvort „félagsmenn verkalýðshreyf- ingarinnar séu upp til hópa hættir aö trúa á lýðræði innan hennar”. Hún ER „háð fámennisstjóm sjálfskip- aðra verkalýðsforingja” og Magnús er „aðeins (!) að benda á þá óhæfu að sárafáir skuli taka ákvörðun fyrir heildina og binda hendur allra hinna, hugsanlega gegn vilja þeirra.” Já, Magnús. Það þarf að stokka spilin áður en gefið er. En það þarf ekki síöur aö fylgjast með því aö rétt sé gefið, spilum sé ekki stungið und- an eöa litur svikinn. Forystan Það hefur alltaf vak'ið furðu mína Kjallarinn BJÖRN ARNÓRSSON, HAGFRÆOINGUR HJÁ BSRB hve jafnvel einlægustu mönnum er gjarnt að gleyma íslenskum raun- veruleika, þegar margrægð verka- lýösforystan berst í tal. Magnús er ekki einn um það að líta á verkalýðs- forystuna sem stofnun skrifræöis- fauska, sem lífnæra sig á kostnaö launafólks í landinu, þess launafólks, sem sú hin sama forysta er ekki í neinu sambandi viö — a.m.k. ekki miðað við Magnús Bjarnfreösson, sem á einhvem yfirskilvitlegan máta fær skoöanir almennings beint í æð, jafnóöum og þær mótast. Sannleikurinn er hins vegar sá, að nánast allir forystumenn launþega- samtakanna eru í fullri vinnu á sínum vinnustað, hrærast í þeirri umræðu, sem þar á sér stað og búa við nákvæmlega sömu kjör og aðrir félagsmenn, nema hvað þeir hafa af einhverjum ástæðum valið að fóma lunganum af frístundum sínum í að berjast fyrir bættum kjörum launa- fólks, án þess að þiggja nokkurt gjaldfyrir. Af þeirri 70 manna forystusveit BSRB, sem sagði einróma upp samn- ingum á dögunum, eru aðeins 2 í fullu starfi hjá BSRB og 2 í hálfu starfi hjá aðildarfélögunum. Þaö er rétt, að BSRB hefur lánast að ná um það samningum, að hin verða ekki hýrudregin vegna þessara funda, en þau fá ekki krónu fyrir kvöldin, næturnar og helgamar, sem í þetta fara. Allt þetta fólk er, eins og áður segir, í nánum tengslum viö félaga sína á vinnustaö, auk tengsla við aðra félagsmenn á félags- og vinnu- staðafundum. Þetta fólk er auk þess KJÖRIÐ af félagsmönnum aðildar- félaga BSRB, en ekki „sjálfskipað” eins og Magnús velur að fullyrða, að sjálfsögðu gegn betri vitund, því hann hefur tekiö þátt í kosningum meðan hann var félagsmaöur í Starfsmannaféiagi sjónvarpsins, sem er eitt aðildarfélaga BSRB. Auðvitaö er það rétt að allar ákvaröanir eru ekki teknar með alls- herjaratkvæðagreiðslu, slíkt er óframkvæmanlegt og óæskilegt. En dregur það úr lýðræði á Islandi að helstu ákvarðanir í landsmálum em teknar af kjömum fulltrúum þjóðar- innar, alþingismönnum, eöa kjörnum fulltrúum þeirra, ráðherr- um: Ekki hef ég heyrt Magnús lýsa áhyggjum sínum yfir því að banda- ríska þjóðin sé háð einræðisstjórn sjálfskipaðs forseta, þótt þátttaka í forsetakosningum í Bandaríkjum N- Ameríku, sé miklu, miklu minni en í atkvæðagreiðslum um samninga (og „hið örlagaríka skref að hefja vinnu- deilu”) hjá BSRB. Samningsréttur BSRB Sannleikurinn, sem Magnús velur aö stinga undir stól, er sá að á 7 ámm hafa orðið 7 allsherjaratkvæða- greiðslur um samninga BSRB. Samkvæmt landslögum er sátta- semjara skylt að leggja fram sátta- tillögu áður en til verkfalls kemur og um hana veröur að fara fram alls- herjaratkvæðagreiðsla. I sömu lögum em ákvæði um að ef helmingur félagsmanna greiðir ekki atkvæði, þá skoðast sáttatillagan samþykkt. I allsherjaratkvæðagreiðslu um sáttatillögu árið 1977 var þátttakan 90% (níu af hverjum tíu) og 90% (níu af hverjum tíu) þeirra sem greiddu atkvæði sögðu NEI. Það er hins vegar ekkert í þessum lögum um allsherjaratkvæða- greiðslu ef samningar nást. Því hafði „sjálfskipuö fámennisstjórn” BSRB fmmkvæði að því að lögum banda- lagsins var breytt þannig, aö samninganefndin getur ekki skrifað undir samninga, nema með fyrir- vara um allsherjaratkvæðagreiðslu. Forystan getur sem sagt hvorki né vill semja eöa hefja verkfall gegn viljafélagsmanna. A þeim sjö árum, sem liðin eru síöan BSRB fékk verkfallsrétt um samninga sína, hafa sem sagt verið sjö allsherjaratkvæöagreiðslur. Þátttaka hefur veriö mismunandi, en aldrei undir 50%. Undanfarið hefur þátttakan verið um 80%. Mundi það breyta nú? Magnús telur allsherjaratkvæða- greiðsla mundi víða engu breyta nú, t.d. í rööum opinberra starfsmanna. 1 allsherjaratkvæðagreiðslu BSRB um síðustu samninga sögðu um 60% já, um 40% nei. Þátttaka var um 80%. Astæða er til aö ætla að 40%- hópurinn hafi stækkað á kostnað hins. En bollaleggingar okkar Magnúsar um það skipta engu máli. Allsherjaratkvæðagreiösla mun skera úr um það. En af hverju er ekki allsherjar- atkvæðagreiðsla alls staðar? Því er einu til að svara, að frjálsir menn hafa valið sér mismunandi fyrir- komulag, auk þess að full ástæða er til þess að undirstrika að ríkisstarfs- menn í BSRB, meö einn atvinnurek- anda, eiga hægara um vik við skipu- lagningu þessara mála en ASI, þar sem samningsrétturinn er auk þess í höndum aöildarfélaganna. En af hverju er fulltrúalýðræðið í huga Magnúsar lýðræði hvað varðar landsmál, en „fámennisstjóm sjálf- skipaðra foringja” í verkalýðshreyf- ingunni? Hvaðan kemur sú mannfýrir- litning Magnúsar Bjarnfreðssonar, aö launafólk í landinu sé ekki fært um að skipa sínum málum sjálft, heldur þurfi að setja þar um sérstök landslög? Eða af hverju spyr Magnús Bjarnfreðsson ekki hvort rétt sé að fram fari allsherjaratkvæðagreiðsla meðal landsmanna áður en ríkis- stjórn setur lög um kjaraskeröingu, sem færir milljaröa frá launafólki til atvinnurekenda? Var einhver að tala um „þá óhæfu að sárafáir skuli taka ákvörðun fyrir alla heildina og binda hendur allra hinna, hugsanlega gegn raunverulegum vilja þeirra”?? ? Bjöm Amórsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.