Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1984, Blaðsíða 25
DV. ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGtlST 1984. 37 Þingeyringar fá f lugstöð Frá Val Jónatanssyni, Iréttaritara DV Mikill munur veröur er húsiö veröur átsafirði: tekiö í notkun hvaö varðar aðstöðu Nýja flugstöövarbyggingin á Þing- fyrir farþega og starfsfólk. Sams eyri er nú aö veröa tilbúin og verður konar hús eru á Patreksfirði og í væntanlega vígð í lok ágúst. Stykkishólmi. ás GRÍMSEYINGAR ÆTLA AD BYGGJA SUNDLAUG Grímseyingar ætla sér að fara af stað með byggingu sundlaugar í haust og ljúka verkinu helst næsta sumar. Þegar liggja fyrir teikningar sem Jes Þorsteinsson og Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsens geröi. Húsið verður 24,40 X 8 metrar, límtré meö léttri klæðningu á milli. Laugin sjálf verður 12,5 x 5 metrar og steypt. Húsinu hefur verið valinn staður skammt frá rafstöðinni og er ætlunin að nota kælivatn frá henni í sund- laugina. Kostnaður við byggingu sundlaugar í Grímsey er talinn verða um 4 mill- jónir króna. Grímseyingar hafa í nokkur ár safnaö fé í þessu skyni og er sjóðurinn orðinn um 600 þúsund krónur. Ríkið mun einnig leggja fram fé á móti sveitarfélaginu. Hingað til hafa börn úr Grímsey þurft aö fara upp áfastalandiðá vorin á sundnámskeið. Nú hyllir undir að Grimseyingar, ungir sem aldnir, geti farið að stunda sund upp á kraft norður við heimskautsbauginn. JBH/Akureyri Björgunarsveitin heiðrar sparisjóðinn Frá Reyni Traustasyni, fréttaritara DV á Flateyri: Björgunarsveitin Sæbjörg á Flateyri veitti stjórn Sparisjóös önundarfjarðar viöurkenningu fyrir margháttaða aðstoð við björgunar- sveitina. Viðurkenninguna, sem er skraut- ritað skjal, afhenti Emil Hjartarson skólastjóri Ægi Hafberg sparisjóðs- stjóra á dansleik sem björgunarsveitin hélt í fjáröflunarskyni. Að sögn Þorleifs Ingvasonar, for- manns fjáröflunarnefndar, hefur sveitin starfað meö miklum ágætum og m.a. haldið námskeið í skyndihjálp og æft björgun úr snjóflóðum. Fyrirhuguð er æfing björgunar úr sjávarháska en sú æfing verður haldin ásamt sveitum úr næstu byggðar- lögum. Formaður björgunarsveitar- innar er Reynir Jónsson. ás GOn HEILSUFAR í ÁRNESHREPPI Garðar Guðmundsson læknir, sem nýkominn er til Hólmavíkur, kom hingað í Árneshrepp á þriðjudag að athuga heilsufar íbúanna. Fámennt og góðmennt var hjá hinum unga lækni enda eru Árneshreppsbúar við góða heilsu og hafa oftast verið það, enda hefur ekki setiö læknir hér í hreppnum síðustu 20-25 árin. Þess má geta að hinn ungi læknir verður bara á Hólma- vík út septembermánuð. Þá kemur væntanlega nýr, en læknar stansa stutt á Hólmavík og er oftast skipt um tvisvar til þrisvar á ári. Regína, Gjögri. VEIDA ÞORSK Á STÖNG Þeir þurfa ekki að kvarta yfir fisk- leysi á Biönduósi. Þar er gert út á rækju og hrefnu og á bryggjunni sitja strákarnir og veiða þorsk á stöng. „Ég hólt að óg væri búinn að festa i botni en þegar óg náði spún- inum upp þá var þorskur á," sagði Hefgi (Lv.). Hrafn, bróðir hans, tók undir þetta og sagðist líka hafa fengið þorsk fyrr um daginn: „Hann var ekki stór en óg tók hann samt heim. Ætii mamma sjóði hann ekki í kvöld." Svo hóldu þeir áfram að biða eftir að sá næsti biti á. -EIR/DV-mynd Kristján Ari Utihandrið úr Oregon tré Fyrir tröppurnar, veröndina og svalirnar. Notið sumarið og fullgerid húseignina með Oregon pine handriðum frá Ar- felli. Handriðin eru með innbyggð- um raflögnum og lituð eftir yð- ar eigin vali. w h .w i, f Komum og mælum Gerum verðtilboð OPIÐ LAUGARDAG TIL KL. 16.00 Ármúla 20. Simar 84630 og 84635. Sarnafil VIÐHALDSFRÍTT ÞAKEFNI Á ÞÖK - Á ÞAKSVALIR FAGTÚN HF. LÁGMÚLA 7, 1 05 REYKJAVÍK, SÍMI 28230 FÆRÐU (HUGGANA 30% ODYRARI EN144% STERKARI Gluggasmiðjan hf. er rótgróið fyrirtæki, með yfir 30 ára reynslu í framleiðslu glugga og hurða af öllum gerðum og stærðum. • Á undanförnum árum, hefur átt sér stað mikil þróun í smíði glugga hjá nágrannþjóðum okkar. Gluggasmiðjan hefur nú tekið upp full- komnustu framleiðsluhætti sem þekkjast í dag, með nýjum afkastameiri vélakosti. • Gluggarnir frá Gluggasmiðjunni eru settir saman með nýrri tækni, sem við köllum 45° byllinguna. Þessi samsetning eykur til muna styrkleika glugganna og hindrar að opin endatré dragi í sig raka. • Með þessari tæknivæðingu verk- smiðjunnar, hefur okkur tekist að lækka verðið á okkar gluggum um allt að 30%, og auka styrkleika þeirra um 144%. • 45° byltingin. Gluggahornin eru kembd saman með 47 finum kömbum og pressuð í lím. Með þessum frágangi eykst styrkleiki gluggahornana um 144%, þ.e. brotamörk við styrkleikáþrófun er við 8800 Newtona álag í stað 3600 með gamla laginu. • Póstar , .. > Svipaða sögu er að segjáum frágang pósta. í gluggum frá Gluggasmiðjunni eru póstarnir EKKI látnir ganga í gegnum undir- og yfirstykki, eins og algengt er, — heldur eru póstarnir grópaðir í sæti. Með þessu móti er komið í veg fyrir að endatré standi opin og raka. okkar veitir allar nánari upplýsingar,- SÍÐUMÚLA20 RVÍKS. 38220

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.