Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER1984. 9 í ÖLDURÓTI Svo margt hefur á dagana drifiö í þjóölífinu undanfamar vikur að bor- in von er að gera því öllu skil í þess- um pistli. Þegar til lengdar lætur mun þó mesta þýöingu hafa þaö skip- brot sem efnahagsstefna ríkisstjóm- arinnar viröist ætla aö bíða. Eftir at- hyglisverðan árangur í verðbólgu- slagnum undanfarið hálft annað ár bendir flest til þess að flóðgáttirnar opnist á nýjan leik. Þjóðin á eftir að súpa seyðiö af þeirri þróun, bæði í efnahagslegum og pólitískum skiln- ingi. Olíklegt er aö núverandi stjórn takist að klífa þann þrítuga hamar og það mun hafa víðtæk áhrif á vett- vangi stjórnmálanna um ófyrirsjá- anlega framtíö. Frekari vangaveltur um þann þátt atburðarásinnar bíða síðari pistla enda ekki öll kurl til grafar komin. Hins vegar verður vikið að þrem málum sem í sjálfu sér tengjast hvert öðru. I fyrsta lagi að verkfalli opinberra starfsmanna, í öðm lagi að frjálsum útvarpsstöðvum og í þriðja lagi afturkomu minni á þing. Misræmið varð að misrétti I ræðu sem ég flutti á Alþingi þann 11. október rakti ég hvemig verð- bólgan hefði tekið á sig nýja mynd, fengiö útrás í launaskriði, viðskipta- halla, skuldasöfnun og dulbúnu at- vinnuleysi í skjóli lánveitinga banka og sjóða til óarðbærra atvinnu- greina. Á sama tíma og þetta átti sér stað gerðist annað: Launþegar sem ekki höföu aðstöðu til aö bæta kjör sín framhjá samningum sátu uppi með byrðar aukinna útgjalda, skert lífskjör og rýrnandi kaupmátt þeirra kauptaxta sem í oröi kveðnu gilda. Misræmiö í launakjömm varö að þjóðfélagslegu misrétti. Álagning tekjuskattsins var punkturinn yfir i- ið. Ég leyfi mér að fullyrða að kröfur BSRB og verkfall opinberra starfs- manna er ekki síst sprottiö af rétt- látri reiði yfir því ranglæti í kjömm sem nú hefur oröið æ meir áberandi. Þaö er móögun við heilbrigða skyn- semi og allt það fólk, sem líður skort vegna bágra launa, aö halda því fram að verkfallið sé af pólitískum hvötum. Fólk skilur og veit að þjóð- arbúiö er ekki aflögufært. En þaö sættir sig ekki viö að gjalda þess eitt. Kröfurnar eru ekki heimtufrekja heldur nauövörn. Um leið og þetta er sagt er því ekki haldiö fram að ríkisstjórnin og at- vinnuvegirnir geti og eigi að sam- þykkja allar kröfur. Það er heldur ekki verið að segja að deilan sé auö- leyst. Það stafar meðal annars af því að kjaradeila BSRB snýst ekki lengur um prósentur. Undirrót hennar er siðferðisleg og tilfinningaleg barátta fyrir lífsháttum og lífskjömm yfir- leitt, átök um grundvöll þess sam- félags sem viö lifum í. Misræmið og misréttið í kjörum fólks hefur klofiö þjóðina í herðar niður. Við eram nú að taka út sársaukann af því höggi. Miðaldamyrkur Opinberir starfsmenn telja sig rangindum beitta og óbilgirni. Því hafa þeir sjálfir svarað meö óhil- girni. Harka í verkfailsvörslu, fyrir- varalaus stöðvun Ríkisútvarpsins, litaður fréttaflutningur í BSRB-tíð- indum og í fréttatímum Ríkisút- varpsins og ástæðulausar aðgerðir gagnvart almennum borgurum í óskyldum málum hafa ekki bætt stöðu þeirra. Allt hefur þetta kallaö á viöbrögö hjá öörum sem ella hefðu verið látin kyrr liggja. Hvort sem opinberum starfsmönn- um líkar betur eöa verr þá veröur ekki framhjá þeirri staðreynd gengið aö fyrirvaralaus stöðvun útvarps og sjónvarps, mánudaginn fyrsta októ- ber, var storkun við þjóðina. Það var vanhugsuö og ofstækisfull aðgerð, framin í krafti þess einkaréttar sem ríkiö hefur lögum samkvæmt á út- varpsrekstri. Þeir gáðu ekki að því að ríkið er samfélagið, fólkið sjálft, en ekki starfsmenn Ríkisútvarpsins. Þjóðin gat ekki og vildi ekki láta bjóöa sér þá auðmýkingu og lítils- viröingu að vera bæld niður, byrgö inni vegna stöövunar blaða og geð- þóttaákvarðana starfsmanna Rikis- útvarpsins. Hvergi á byggöu bóli, jafnvel ekki einu sinni í alræmdustu einræðisríkj- um, þekkist það ástand að landslýð- ur sé sviptur upplýsingum, fréttum og sambandi við umheiminn. Sitji skyndilega uppi í miöaldamyrkri. Mannréttindi — nauðvörn Svarið við lokun Ríkisútvarpsins var ekki nema eitt. Að ganga fram fyrir skjöldu og stofna aðrar út- varpsstöðvar. 1 því var fólgin nauð- vörn almennings, sá réttur hvers frjálsborins manns að tjá sig og afla Ellert B. Schram skrifar: sér vitneskju um atburði líðandi stundar. Sú gagnrýni hefur einkum verið sett fram af úrtölumönnum þessa útvarpsrekstrar að hér hafi lögbrot veriö framiö. Því er til aö svara aö þeir sem segj- ast bera svo mikla virðingu fyrir lögunum, sem þeir vera láta, eiga þá að vera sjálfum sér samkvæmir og bíða með að kveða upp dóm um lög- brot þar til sekt er sönnuö. Eða er betra að gerast sjálfskipaður dómari heldur en br jóta lög? Og svo hitt, sem meira máli skipt- ir: hvenær í mannkynssögunni hafa mannréttindi verið tryggð nema meö baráttu gegn fordómum, valdi og ólögum? Hvemig var danska versl- unareinokunin brotin á bak aftur, drottnunarvald yfirstéttarinnar, vökuþrældómurinn, ójafnræðið og ranglætið í þjóðfélaginu? Hver man ekki einokun ríkisins í ferðamálum, viötækjaverslun, bílainnflutningi og hvernig eru mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar til komin? Sigrar í þessum réttlætismálum unnust ekki með því aö einblína á dauða lagabókstafi eða meö undir- gefni fyrir forréttindum ríkis og ráð- andi stétta. Það var gert í krafti þjóðarvilja, réttlætiskenndar og frelsis. Það var gert samkvæmt mottóinu: ef sverð þitt er stutt, þá gakktu feti framar. Aftur á þing I öllu því ölduróti sem af verkföll- um, blaöaleysi, útvarpsmálum og stjórnmálaupplausn hefur hlotist þurfti það ekki að koma neinum á óvart þótt undirritaður tæki sæti sitt á þingi á ný. Fjarvera mín í fyrravet- ur stafaði af persónulegum ástæð- um, sumpart af stolti sem var mis- boðið þegar ljóst var að þingflokkur sjálfstæðismanna afþakkaði starfs- krafta mína til þeirra trúnaðarstarfa sem máli skiptu. Eg hef kannski aldrei komið því nógsamlega til skila að þingseta er mér ekki metnaðar- mál hégómans vegna heldur til að hafa áhrif í þágu þeirrar lífsskoðun- ar sem ég hef tileinkað mér. Ég hef aldrei haft áhuga á því að eyða bestu árum ævi minnar sem handlangari hjá öðrum. Þess vegna taldi ég í fyrrahaust að ritstjórn á stóm blaöi væri ákjósanlegri vettvangur til að koma skoðunum mínum á framfæri heldur en þingseta upp á sömu býti og ég hafði reynt mestallan síðasta áratug. Mér er hins vegar ljóst að ég hef skyldum að gegna gagnvart því fólki sem kaus mig til Alþingis og nú er ég þangað kominn aftur. Ekki til þess að vera dyggur og þægur gagnvart flokki eða ríkisstjórn, sem ég er eng- an veginn sáttur við, heldur til að vera sjálfs mín herra. Því hefur veriö dróttað að mér að ég hafi flúiö inn i þinghelgina til aö forðast eftirmál útvarpskæmnnar. Að því er varla oröum eyðandi. Ég nýt engrar þinghelgi vegna meintra brota á útvarpslögum, hvorki innan né utan þings, og er meira en reiðu- búinn til varnar og sóknar í því máli hvar og hvenær sem er. Sannleikurinn er einfaldlega sá að ástand þjóðmála og stjómmála er meö þeim hætti að sérhverjum ábyrgum manni hlýtur að renna blóðið til skyldunnar. Ég get ekki variö það fyrir samvisku minni og skoðunum að notfæra mér ekki rétt minn til setu og málafylgju á Alþingi þegar allt er hér að fara til fjandans. Persónulegir hagsmunir hljóta að víkja þegar sjálfir innviðir sam- félagsins eru að bresta. Spennitreyja Ég hef haft tíma og tækifæri til að fylgjast meö stjórnmálum og þing- störfum úr fjarlægð. Eg hef getað fylgst með frá öðru sjónarhorni og ég leyni því ekki að margt hefur valdið mér vonbrigðum. Mér blöskrar hvernig ríkisstjórnin hefur glopraö stefnu sinni niður. Mér ógnar það tregðulögmál sem ríkir í viðhorfum Alþingis til nýrra tíma, nýrra viö- horfa. Mér óar viö þeirri undiröldu sem risið hefur í þjóðfélaginu í kjöl- far þeirrar röskunar sem nú á sér stað. Og ég hryggist yfir þeirri sjálf- heldu sem núverandi stjórnmála- flokkar hafa viljandi eöa óafvitandi kallaðyfirsig. Mér er sífellt að veröa ljósara hversu ríkjandi flokkaskipan er mikil tímaskekkja og hvernig valda- jafnvægið og samtryggingin þeirra í milli er orsök og afleiðing þeirrar kyrrstööu sem íslenskt þjóðfélag býr við. Með því er ekki verið að kasta rýrð á góðan vilja þess fólks sem á Alþingi situr og flokkunum stýrir. Það er einfaldlega f jötrað í sinni eig- in spennitreyju. Uttekt á því ástandi bíður betri tíma. En það er ærið umhugsunar- efni, líka fyrir þá sem eru innstu koppar í flokkunum sjálfum, hvernig megi losa um þá spennitreyju, þó ekki væri nema sjálfra þeirra vegna. Meiraumþaðsíðar. Ellert B. Schram ATBURÐIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.