Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Síða 19
DV. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER1984. 19 Afram með smérld Einhverra hluta vegna komu blöö- in ekki út á tímabili og þess vegna hættu þættirnir af Runka rannsókn- arlögreglumanni og Binna bláþræði að birtast og hafa þessir ágætu menn legiö eins og hvert annað rusl á skrifboröinu minu alllengi. Eg sá þó ekki ástæðu til að henda þeim í öskutunnuna þótt nú sá margt að gerast í þjóölífinu sem þarfnast alvarlegrar umfjöllunar fyrr en seinna. Sem betur fer hefur ekkert mark- vert gerst fram að þessu í sögunni og því óþarfi að rifja það upp en næsti kafli heitir upprisan. Oveðrið skall á klukkan rúmlega þrjú og olli hálku á götum sem varð til þess að víða mynduðust umferðar- hnútar. Bílar á sumardekkjum spól- uðu eins og þeir ættu lífið að leysa og það er vafasamt aö nokkur hafi hugs- að hlýtt til bílstjóranna sem gerðu þó sitt besta til að komast úr sporunum með því að bölva druslunni í sand og ösku og hóta aö selja hana við fyrsta tækifæri og kaupa sér Blazer. Fyrst í staö gerðu hjálparsveitir og lögregla lítið annað en vona að óveðrinu slotaöi sem fyrst en þegar það dugði ekki var farið aö skipuleggja aðstoö þar sem mörgum fannst ófært að fólk eyddi gamlárs- kvöldinu spólandi eða bölvandi á götum borgarinnar. Það var einmitt um svipað leyti og fyrstu aöstoðarflokkarnir héldu út í hríðarkófið að Stebbi stutti og vinur hans, Jói Jóns, leituöu skjóls í and- dyri skrifstof ubyggingar Milljóna hf. og reyndu að skjálfa sér þar til hita. Þeir voru báðir rallhálfir og á leið heim til Stebba stutta sem var viss um að hann ætti ákavítisflösku heima hjá sér þótt hann myndi ekki alveg nákvæmlega hvar hún væri. — Við finnum hana, sagði Stebbi stutti, — vegna þess að hún er einhvers staöarískúi-num. Stebbi hafði ekki fyrr gefið þessa ágætu yfirlýsingu en óveörið skall á sem varð til þess að þeir félagarnir fundu ekki einu sinni skúrinn. En það var fleira sem gerðist þennan örlagaríka gamlársdag. Á meöan Stebbi stutti og Jói Jóns voru að reyna aö ylja sér í anddyri skrif- stofu Milljóna hf. var Jón Jónsson, f orstjóri fyrirtækisins, aö burðast við aö rísa upp frá dauðum inni á karla- klósettinu. Þótt slíkir smámunir gangi yfir- leitt fljótt og vel fyrir sig í sögum og kvikmyndum ætlaði þetta aö reynast Jóni Jónssyni þrautin þyngri þótt ómögulegt sé að halda því fram með nokkrum rétti aö hann hafi ekki gert sitt besta. En fyrir mann sem ekki sér tærnar á sér fyrir ístrunni getur það veriö nógu erfitt að velta sér á hana svo ekki sé minnst á erfiðleikana við það aö standa á fætur. Og ekki bætti það úr skák að Jón Jónsson var enn eftir sig eftir að hafa stigið á sápuna, sem einhver haföi verið svo óforsjáll að skilja eftir á baöherbergisgólfiriu, og fallið sem því fylgdi. Hins vegar var Jón Jónsson úr- ræðagóöur maöur og fljótur að leysa vandamál, sérstaklega þau sem voru f járhagslegs eðlis. Þegar hann rakn- aði úr rotinu byrjaöi hann þess vegna BENEDIKT AXELSSON að ræna honum, krefjast að því búnu lausnargjalds og lifa síðan áhyggju- lausu lífi til æviloka á eyju í Mið- jarðarhafinu. Jói var ekki hrifinn af þessari hugmynd til að byrja með en þegar Jón hafði opnað dymar og var jafntilbúinn að láta ræna sér og hægt er aö vera hafði Stebba stutta tekist aö telja Jóa hughvarf enda haföi hann ekki sparað lýsingar á því sældarlífi sem þeir ættu í vændum. Það var engum vandkvæöum bundið aö stela Jóni og þegar þeir félagarnir leiddu hann út í hríðina þakkaði hann þeim meira að segja kærlega fyrir og hann var enn að dásama göfuglyndi þeirra Jóa Jóns og Stebba stutta þegar þeir duttu kylliflatir í fyrsta skaflinn sem á vegi þeirra varð. Eftir talsverðar stympingar við Jón og skaflinn kom- á því að hugsa máliö og horfa upp í loftið á klósettinu. Síðan reyndi hann með erfiðismunum að snúa til höfð- inu og þegar honum hafði tekist það kom hann auga á niðurfailsrörið á vaskinum og eftir nokkrar tilraunir tókst honum að ná taki á því. — Nú þarf ég bara aö vega mig upp, hugsaöi Jón Jónsson og tók á af öllum kröftum. I fyrstu tilraun tókst honum aö velta sér á ístruna, í þeirri annarri að rísa upp til hálfs og í þriðju tilraun tókst honum að reka höfuðiö í vask- inn og varð það síst til að lina þraut- irnar í höfðinu. En þrátt fyrir alla þessa byrjunarörðugleika við upprisuna tókst Jóni Jónssyni seint og um síðir aö standa á eigin fótum fyrir framan vaskinn á salerni skrifstofu sinnar, þakka spegilmynd sinni meö virktum fyrir komuna og tilkynna henni að nú væri hann sko farinn heimaö sofa. Og Jón Jónsson reikaði fram í anddyrið til aö ná í hatt sinn og frakka. Stebbi stutti og Jói sáu til feröa Jóns Jónssonar um svipað leyti og hann hafði tekiö kápu Aöalheiðar aö- stoðarbókara í misgripum fyrir frakkann sinn. Að vísu hélt Jói því fram í fyrstu að þetta væri olíutunna en skipti fljótlega um skoðun þegar hann sá ríkasta mann landsins í fjólubláu kápunni hennar Aðalheiðar reyna aö stinga lyklinum sínum í skráargatið á hurðinni sem var ekki aldeilis kyrrt á meðan. Það var einmitt á meðan Jón var aö reyna aö róa skráargatið sem Stebbi stutti fékk þá ágætu hugmynd ust þeir félagar að þeirri niöurstöðu aö forstjóranum yröi ekki haggað nema meö hjálp æðri máttarvalda eöa kranabils og var hvorugt til staöar. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst og þegar þeir Stebbi og Jói voru farnir að íhuga í fullri alvöru að skilja Jón forstjóra eftir í skaflinum komu allt í einu appelsínu- gulir menn utan úr myrkrinu og spurðu hvort þeir gætu aðstoðað. Þar sem þetta voru hjálparsveit- armenn kunni Stebbi stutti ekki við að afþakka svo kristilegt boð og í sameiningu drösluðu þeir forstjóran- um heim að skúmum hans Stebba sem lýsti því yfir að hann gæti ábyggilega aldrei þakkað þeim nóg- samlega fyrir björgunina því að eins og þeir heföu séö væri einn þeirra eins og fasteign ef hann dytti og þegar Stebbi stutti hafði lokið ræð- unni sinni voru björgunarsveitar- mennirnir fyrir löngu famir að ýta bílunum sem stóðu fastir út um allt. — Nú verðum viö að skipuleggja þetta út í æsar, sagði Stebbi þegar hann var búinn að finna ákavítis- flöskuna og fá sér vænan slurk úr henni. — Það fyrsta sem við gerum er að skrifa bréf þar sem við krefjumst lausnargjalds fyrir forstjórann. — Það er best aö þú gerir þaö, sagði hann viö Jóa, — þú ert svo góður í stafsetningu. Og þaö var einmitt miöinn hans Jóa sem kom fljúgandi inn um glugg- ann á skrifstofu Milljóna hf. þegar Runki rannsóknarlögreglumaður var í óðaönn að yfirheyra starfsfólk- iðþar. Kveðja Ben. Ax. Bílabúð Benna Aukahlutir Varahíitir Sérpantanir VAGNHJ&LIÐ Vélaupptekningar Vagnhöfóa 23 110 Reykjavik Simi 685825 Vatnskassar og vólahlutir f amerfska bfla á lager. Mjög hagstœtt verö. SAlþýðuflokksfélag Reykjavíkur Kosning fulltrúa Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur á 42. flokks- þing Alþýðuflokksins fer fram í Félagsheimili jafnaðar- manna, Hverfisgötu 8-10, kl. 2-6 síðdegis laugardaginn 3. nóvember og sunnudaginn 4. nóvember 1984. Tillögur uppstillingarnefndar liggja frammi á skrifstofu Al- þýðuflokksins til kl. 5 síödegis 31. október nk. Stjórn AFR. Auglýsing frá Iðnaðarbanka Islands hf. um vexti og verðbótaþátt af inn- og út- lánum. Með tilvísun til auglýsingar Seðlabanka Islands um vexti og verðtryggingu sparifjár og lánsfjár o.fl. dags. 2. ágúst 1984, er birtist í Lögbirtingablaði nr. 77 hinn 10. ágúst 1984, hefur Iðnaðarbanki íslands hf. ákveðið vexti og verðbótaþátt af inn- og útlánum við bankann. Grunn- Verðbóta- Vextir vestir þáttur alls 1. Innlán: áári áári áári 1. Sparisjóðsbækurl) 5,0% 12,0% 17,0% 2. Sparisjreikn. m. 3ja mán. upps. 2) 8,0% 12,0% 20,0% 3. Sparisjreikn. m. 6 mán. upps. 2) 11,0% 12,0% 23,0% 4. Sparisjreikn. m. 6 mán. upps. og3,0% bónus2)3) . ... 14,0% 12,0% 26,0%(* 5. Verðtrreikn. m. 3ja mán. upps. 2,0% 6. Verötrreikn. m. 6 mán. upps. 2) 3,5%(* 7. Verðtrreikn. m. 6 mán. upps. og3,0% bónus2)3) 6,5%(* 8. IB-reikningar 4) 8-11,0% 12,0% 20-23,0% 9. InnleMir gjaldeyrisreikningar • a) inastæður í Randaríkj, adoiiurum ... 9,5% b) innstæður í sterlingspundum .... ...9,5% c) innstæður í vestur-þýskum mörkum ... 4,0% d) innstæður í dönskum krónum ...9,5% 10. Avísana- og hlaupareikningar 5).... .... 12,0% 12,0% 11. Sérstakar veröbætur af verðtryggðum reikn- ingum eru 1,0% á mánuði. II. Utlán: 1. Forvextir víxla . 12,0% 12,0% 24,0% 2. Yfirdráttarlán á hlaupareikn. 6) . 14,0% 12,0% 26,0% 3. Afurðalán, endurseljanleg 1) ... . 6,0% 12,0% 18,0% 4. Almenn skuldabréfalán . 14,0% 12,0% 26,0% 5. Lán með verðtryggingu m.v. lánskjaravísitölu: a) lánstími allt að 2 1/2 ár . 7,0% (* b) lánstími lengri en 2 1/2 ár ... . 8,0%(* 1) Samkvæmt ákvörðun Seðlabanka Islands á hverjum tíma. 2) Vextirreiknasttvisvaráári. 3) Bónus greiðist til viðbótar vöxtum á alla 6 mán. reikninga sem ekki er tekið út af þegar innstæða er laus og reiknast bónusinn tvisvar á ári, í júlí og janúar. 4) Vextir verða alls 20,0% á ári á IB-reikningum, 3ja—5 mánaða spamaði, en 23,0% á ári ef um lengri sparnað er að ræða. 5) Vextir reiknast aflægstu stöðu á hverjum 10 dögum. 6) Grunnvextir reiknast af heimild mánaðarlega fyrirfram en verðbótaþáttur reiknast af skuld mánaðarlega eftir á. Iðnaðarbanki íslands hf. vill vekja sérstaka athygli viðskiptamanna sinna á þvi að bankinn mun ekki taka hærri vexti af skuldabréfum, sem honum hafa verið falin til innheimtu og gefin hafa verið út fyrir 11. ágúst 1984, en þá sem Seðlabanki íslands ákveður á hverjum tíma. Framangreind ákvörðun um vexti tekur gildi frá og með 27. október 1984. Auglýsing Iðnaðarbanka íslands hf. um vexti og verðbótaþátt af inn- og útlánum frá 24. september 1984 fellur jafnframt úr gildi. Þeir liðir sem breyst hafa frá síðustu vaxtaákvörðun eru auðkenndir með *. Framangreind ákvæði eru breytanleg án fyrirvara skv. ákvörðun Iðnaðarbanka íslands hf. Reykjavík, 23. október 1984. Iðnaðarbankinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.