Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1984, Síða 35
DV. LAUGARDAGUR27. OKTOBER1984.
35
Marningsframleiðsla:
Leið til stóraukins verð-
mætis ódýrra fisktegunda
Mamingsframleiðsla gæti orðið
framtíðarbúgrein sjávarútvegsins ef
vel tekst til með samsetningu hráefnis-
ins. Japanir hafa orðið brautryðjendur
í notkun fiskimarnings og hafa þróað
sérstaka afurð sem líkist krabbakjöti.
Einnig eru þeir farnir að ræða humar-
og rækjueftirlíkingar.
Kristján Jóakimsson útvegs-
fræðingur hefur ritað nokkuö um þessi
mál og sagði hann aö ef íslendingar
heföu áhuga á að reyna þetta kæmust
þeir ekki hjá því að hafa Japani inni í
myndinni því þetta væri flókin „pro-
cess” eða efnafræði sem þarf ákveðna
kunnáttu við til að eftirlíkingin verði
sem líkust krabbakjöti.
„Varðveita þarf eiginleika ákveð-
inna próteina sem gefa afurðinni
ákveðna seigju. Einungis er hægt að
nota ódýrt hráefni til að framleiðslan
borgi sig. Japanir hafa aðallega veitt
Alaskaufsa. Færeyingar eru að reyna
kolmunna og Norðmenn eru að reyna
að finna leiðir til að nýta loðnuna en
ekki er enn útséð um efnasamsetningu
hennar,” sagði Kristján.
Japanir skipta framleiðsluferli
marningsins í tvö stig. Hið fyrra gefur
af sér hálfunna afurð, „surimi,” sem
geymd er fryst eftir áframhaldandi
vinnslu. Seinna stigið nefnist „kama-
boko,” sem er fullvinnsla úr uppþíddu
surimi.
Sigurjón Arason, efnaverkfræðingur
hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
sagði að hægt væri að stórauka
verðmæti ódýrra fisktegunda ef viðun-
andi framleiðsluleiðir fyndust. „Okkur
vantar véiar og búnað til að framleiða
gervikrabbann en við erum að þreifa
okkur áfram meö humarkraft og
mamingsvinnslu. ”
Vonir bundnar við framleiðslu á
marningi hafa að mestu brugðist,
vegna tækniatriða og gæða afurðanna.
Því var hrundið í framkvæmd samnor-
rænu verkefni um mamingsfram-
leiðslu úr úrgangi frá fiskvinnslu og
smáfiski og taka fimm lönd þátt í verk-
efninu: Danmörk, Færeyjar, Island,
Noregur, Svíþjóð. Markmið verkefnis-
ins er að finna og breyta framleiðslu-
linu mamingsins og bæta gæði hans og
verði eftirfarandi leiðir farnar til að ná
þessu marki: bæta hráefnismeð-
ferðina; bæta vinnslurásina fyrir
marningsframleiðslu; fmna leiöir til
að lengja geymsluþol; vinna nýjar af-
urðir úr marningi, t.d. með því að
blanda saman marningi frá ólíkum
fisktegundum og einnig aö bæta auka-
efnumímarninginn.
I öllum þessum löndum sem standa
að verkefninu er afskurður, sem til
fellur í frystihúsunum, notaður sem
hráefni í marning og þykir sá maming-
ur góður.
Verkefninu er skipt í fimm hluta og
hefur hvert land verkefnastjórnun í
sínum hluta. Færeyjar sjá um hrá-
efnismeöferð, Danmörk sér um
frystingu, Svíþjóð sér um að bæta gæði
Tvær gerðir vóla sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins notar við rann-
sóknir sínar. Sú fremri er súrimi vól og sú aftari er notuð til marningsfram-
leiðslu.
Gulllax hefur reynst sórstaklega vel í marning en hann hefur iitið verið
nýttur hérlondis. Marningur af gulllaxi geymist vel og hægt er að frysta
hráefnið oftar en einu sinni án þess að vatnsbindieiginleiki minnki
verulega. Marningur afgulllaxi er mjög ijós.
S.\
Ljós og dökk gerð marnings. Reynt
er að fá marninginn sem Ijósastan
og með um 82 prósent vatnsmagni.
Þvi dekkri sem marningurinn er þvi
meira blóð er i honum sem ekki er
talið heppiiegt.
mamings meö blöndun eöa meö ann-
arri meðhöndlun, Noregur sér um
gæðastjómun og Island sér um fram-
leiðslutækni.
Þáttur Islands er að leggja áherslu á
vinnslutæknina, afköst, rekstrar-
kostnaö og gæði.
Áætlað er að verkefnið standi í þrjú
ár og hefur norræni iðnþróunar-
sjóðurinn veitt 2,5 milljónir danskra
króna styrk til verkef nisins.
-JI.
Veðrið
Veðrið
Búist er við að veður verði spakt
um allt land í dag, bjart sunnan-
lands og vestan en skýjaö og slydda
norðanlands og austan. Er líða
tekur á daginn mun þykkna upp
sunnanlands með vaxandi austan-
átt og í kvöld verður orðið hvasst
og rigning. Það veður stendur fram
eftir sunnudeginum og er búist við
rigningu um allt land á þeim tíma.
Síðan lægir veðrið sunnan- og
austanlands og gengur á meö
skúrum eða slydduéljum.
Gengið
Gengisskráning NR. 206 - 25. OKTÚBER 1984 KL. 09.15
cimng Kaup Sala Tollgengi
Oollar 33,520 33,620 33.22
’und 40,936 41,058 41.409
Kan. dollar 25,491 25,568 25.235
Dönsk kr. 3,0657 3,0749 3.0285
Norsk kr. 3,8107 3,8221 3.7916
Sænsk kr. 3,8892 3,9008 3.8653
Fi. mark 5,3080 5,3238 5.2764
Fra. franki 3,6076 3,6184 3.5740
Belg. franki 0,5475 0.5492 0.5411
Sviss. franki 13,4944 13.5346 13.2867
Holl. gyllíni 9,8148 9,8441 9.7270
V Þýskt mark 11,0718 11,1049 10.9664
It. lira 0,01785 04)1791 0.01761
Austurr. sch. 1,5763 1,5810 1.5607
Port. escudo 0,2060 0,2066 0.2073
Spá. peseti 0,1971 0,1976 0.1959
Japansktyen 0,13665 0,13706 0.13535
Írskt pund 34,207 34,309 33.984
SDR (sérstök 33,4578 33,5576
dráttarrétt.)
Símsvari vegna gengisskráningar 2219Ó
Dagskráin í dag.
Dagskrá útvarps verður eins og
undanfama daga í verkfalli, fréttir
lesnar kl. 12.20 og kl. 19. Þá verða
veðurfréttir lesnar kl. 8.15, kl. 10.10, kl.
12.45, kl. 16.15, kl. 18.45, kl. 22.15, kl.
01.00, kl. 4.30 ogkl. 07.00.
Rétt og jöfn
loftþyngd eykur öryggi,
bætir aksturshæfni,
minnkar eyðslu eldsneytis
og
nýtir hjólbaröana betur.
Ekki þarf fleiri orð um þetta
-NEMA -
slitnir hjólbarðar
geta orsakað alvarlegt
umferðarslys.
yuj™.
SEMI
Gagnkvæm tillitssemi allra
vegfarenda, akandi, hjólandi, ríð-
andi og gangandi, er veiga-
mikið atriði í vel heppnaðri ferð.