Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR2. NOVEMBER1984. Tvð skrímsli í KleHarvatni? - Rjúpnaskyttur sáu ókenniteg dýr þar síðastliðinn laugardag „Eg hef nú ekki veriö trúaður á skrímsli en ég geri ekki grín að mönnum sem trúa á þau eftir þetta,” sagði Júlíus Ásgeirsson, sem kveðst hafa séð tvær ókennilegar skepnur í Kleifarvatni si. laugardag. Forsaga málsins er sú aö Júlíus var á rjúpnaveiðum ásamt frænda sinum við Kleifarvatn sL laugar- dagsmorgun. Þegar þeir voru komnir góðan spöi upp i hlíðina austan við vatnið tóku þeir eftir tveim dökkum dílum úti í vatninu. Þeir héldu í fyrstu að þetta væru aðeins steinar sem stæðu upp úr yfir- borðinu. „En svo fór þetta að hreyf- ast,” sagði Júlíus ,,og þá sáum við að þama voru á ferðinni einhverjar skepnur sem léku sér góða stund í vatnsboröinu. Síðan tóku þær stefnuna á land og skokkuðu nokkum tíma í fjöranni. Þá hlupu þær út með hlíðinni og hurfu bak við höfðann. Við höfðum ekki af þeim augun allan timann sem þær voru í sjónmáli. Skömmu síðar komu dýrin svo til baka og skelltu sér í vatnið. Þau léku sér á sundi töluvert lengi en syntu svo í land hinum megin. Þá röitu þau upp í Sveifluháls og hurfu sjónum okkar.” Er þeir félagar höfðu fylgst með dýranum héldu þeir r júpnaveiðunum áfram. Er þeir komu til baka síðdegis fóra þeir að huga að verks- ummerkjum eftir þau. „Við f undum þá spor eftir tvö kvik- indi,” sagði Július. „Þau voru lík förum eftir hestshófa en bara stærri. Dýrin sjálf virtust okkur helst líkjast selum þegar þau vora á sundi. En komin upp úr vatninu minntu þau einna helst á hunda. Þau vora bara miklu stærri. Okkur virtust þau vera eitthvað stærri en meðalhestur. Þau vora dökkálit. Þaö kemur ekki til greina að þetta hafi verið hestar sem létu svona í vatninu. Hiti var um frostmark og þaö er óhugsandi að hross séu aö damla svona viö þær aðstæður. Ég hef veriö að reyna aö kryfja þetta til mergjar en ekki fundið neina viðhlit- andi skýringu á fyrirbærunum,” sagði Júlíus. -JSS. Færeyjar: Þetta smámjakast við byggingu Hallgrímskirkju. Rafmagnsstrengur frá íslandi ieysir öll orkuvandamáfín Frá Eðvarð T. Jónssyni í Færeyjum. Rafmagnsstrengur frá Islandi til Færeyja mun leysa öll orkuvandamál Færeyja í fyrirsjáanlegri framtíð og er jafnframt ódýrasta lausnin á þeim, segir Tormóður Dahl, iðnráðgjafi Fær- eyinga. I ráði er nú hjá færeysku raf- magnsveitunum að virkja Eiðisvatn í Norður-Færeyjum en mjög harðar deilur eru um þessa áætlun vegna hins gifurlega kostnaðar sem virkjunin mundi hafa í för meö sér og einnig vegna þeirra náttúruspjalla sem hljót- ast munu af henni. Tormóður Dahl bendir á að engin vandkvæði séu leng- ur bundin því aö leggja rafstrerigi landa í milli. Slíkir rafstrengir hafa verið lagðir miili Skotlands og Orkn- eyja og nú er áformað að leggja raf- streng til Hjaltlands. Einfaldasta og ódýrasta lausnin er þvi að flytja inn raforku frá Islandi og framleiða jafn- framt rafmagn með vindmyllum í Færeyjum, segir iðnráðgjafinn. Ætlunin var að fjalla um þetta efni á fundi 130 íslenskra orkufræðinga sem ætluðu að koma til Færeyja skömmu fyrir verkfaU en orkufræðingarnir af- lýstu ferðinni á seinustu stundu. Fjöldauppsagn- ir koma ekki tilgreina Fjöldauppsagnir eru varla taldar koma tU greina hjá kennurum í vetur. Áður en til verkfaUs BSRB kom vora uppi háværar raddir meðal kennara um aö sameina kennarafélögin í vetur og í tengslum við það kæmu f jöldaupp- sagnir til að þrýsta á um bætt launa- kjör. Kennarar í BHM og BSRB hefðu þarstaöiðsaman. Ennþá er mikill áhugi meðal kenn- ara að ganga í eitt félag sem fengi samningsrétt. Telja margir aö það sé eina lausnin tU að lyfta stéttinni upp í launum. Ástæöan fyrir því aö f jöldauppsagn- ir koma ekki lengur til greina er sú að þær hefðu þurft að berast í síðasta lagi 1. október. Uppsagnarfrestur er þrír mánuðir en samkvæmt lögum má skylda kennara til aö vinna aöra þrjá ef kemur tU fjöldauppsagna. Sú bar- áttuaöferö færi því ekki aö hafa áhrif fyrr en í aprU eða undir lok skólaársins og er því talin gagnslaus. JBH/Akureyri. Fara sjóleið- ina í frí til Kanaríeyja —farkosturinn er 35 feta seglskúta Hvern dreymir ekki um aö sigla til suölægra landa á seglskútu. Flestir hneppa þó bara upp í háls, skreppa inn á næstu ferðaskrifstofu og kaupa sér flugmiöa tU Spánar. Þau hjónin Dóra Jónsdóttir og Magnús Magnússon ætla aö standa ööravísi aö málunum og eru á förum til Kanaríeyja á 35 feta segl- skútu sem líka heitir Dóra. „Þetta krefst mikils undirbúnings en við vorum ákveðin í að láta þennan draum rætast,” sagði Magnús þegar DV hitti hann að máli á smábátahöfn- inni í Reykjavík þar sem hann var önn- ,um kafinn við að undirbúa brottför. „Fyrsti viðkomustaðurinn eru Vest- mannaeyjar en síðan siglum við tU Skotlands og Irlands. Síðan er mein- ingin aö sigla suöur á bóginn og ætli við verðum ekki á Kanaríeyjum í vetur. ” Okkur DV-mönnum fannst þetta uppátæki að vonum mjög áhugavert og vildum spyrja Magnús spjöranum úr. „Ég vU sem minnst um þetta ræða á þessu stigi, við liggjum jú ennþá við bryggju. En þið skuluð fá söguna eins og hún leggur sig þegar við komum tU baka í vor,” sagöi Magnús. -EH Skútan glœsilega, Dóra, sem brátt heldur I langferð. D V-mynd KAE.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.