Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 18
18 DV. FÖSTUDAGUR 2. NÖVEMBER1984. íþróttir ‘mSSIHCJÍ • Gordon Davfes — markaskorarinn mikli. PunktarfráEnglandi: Davies til Chelsea — eftir er að ganga frá kaupverðinu en Fulham vill fá 300 þús. pund Fré Sigurbirni Aðaistelnssynl, frétta- mannl DV í Englandl: — Welski landsllðsmaðurinn Gordon Davles hefur samþykkt að fara til Chelsea. Fulham vill fá 300 þús. pund fyrir þennan mikla markaskor- ara en Chelsea er ekki tilbúlð að grelða þá upphæð. Nú er málið komið tll óháðs dómstóls í Englandi sem metur kaup- verð á knattspyrnumönnum. • John Gidman, sem skoraði sjálfs- mark sem kostaði Manchester United tap, 1-2, gegn Everton á þriðjudag- inn, mun leika með United gegn Arsenal á Old Trafford í kvöld í 1. deildar keppninni. Mike Duxbury er enn meiddur þannig aö Gidman fær að leika. Corrigan til Stoke Joe Corrigan, fyrrum landsliðs- markvörður Englands, hefur verið lánaður frá Brighton til Stoke en hann hefur verið í lání hjá Norwich að Corrigan. Eiliott. undanförnu vegna meiðsla Chris Wood. Forráöamenn Stoke hafa fengiö Corrigan að láni til að setja pressu á Peter Fox sem hefur staðið sig illa i markinu h já Stoke að undanförnu. • Mlke Hazald mun aö öllum lík- indum taka stöðu Glen Hoddle á miðj- unni í leik Tottenham gegn WBA á laugardaginn. Hazald kom inn á sem varamaöur fyrir Hoddle gegn Liver- pool i fyrrakvöld og við það breyttist leikur liösins til hins betra. Elliot brotinn Paul Elliot, varnarleikmaöur Luton, ökklabrotnaöi í deildarbikarleik félagsins gegn Leicester og veröur hann frá keppni út þetta keppnistíma- bil. • Skotum hefur veriö boðiö að koma til ítalíu i byrjun ársins 1985 og leika þar landsleik gegn Itöium. • Ekkert veröur af landsleik Engiands og Brasiliu á Wembley í mars 1985, þar sem Brasilíumenn hafa hætt viö Evrópuferð sína. Englending- ar hafa boöiö irum til Wembley í staöinn. -SigA/-SOS Jafntefli hjá Barcelona Barcelona varð a 4 sætta sig við Jafntefli 0— 0 við Elcbe á útlvelli í gær í spönsku 1. deildar. keppnlnnl. Félagið er nú með þrlggja stiga forskot, þar sem Valencia tapaði, 0—2, fyrir Osasuna og Sevllla, 0—1, fyrir Santander. Valencla og Sevllia eru með 12 stig en Barceiona 15 — eftir níu lciki. Atletico Madrid er einnig með 12 stlg þar sem féiaglð lagði Real Betis að velli, 1—0. Reai Madrld kemur nast með 11 stig — félagið vann Valladolid, 2-0. -SOS. fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Draga Víkingar sig út úr Evrópukeppninni? Fengu skeyti í gær f rá Kurt Wadmark hjá IHF um að þeir ættu að leika báða leikina gegn Fjellhammer íNoregi — Við vorum vægast sagt undrandi þegar við fengum skeyti frá IHF í gær, undirritað af Svianum Kurt Wadmark, þess efnis að Vikingur ættl að leika báða Evrópuleikina gegn Fjellhamm- er i Noregi. Þetta skeyti kom aðeins hálfum sólarhrlng eftlr að IHF var búið að tllkynna okkur að Víkingar ættu heimsleik 6. nóvember og útileik- inn 8. nóvember, sagði Hallur Halls- son, stjórnarmaður í Víkingl. Kurt Wadmark, sem stóð fyrir því aö dæma Víkinga út úr Evrópukeppninni fyrir nokkrum árum eftir að þeir slógu Ystad út, er nú byrjaður að hrella Víkinga á nýjan leik. Þegar forráöamenn Fjellhammer fréttu af ákvörðun IHF um leikdaga á miðvikudaginn mótmæltu þeir þeim á þeim forsendum að þeir kostuöu leik- menn liðsins tveggja daga vinnutap. IHF og Kurt Wadmark tóku mótmæli Fjellhammer til greina og var ákveöiö aö láta Víkinga leika báöa leikina í Noregi án þess aö hugsa um vinnutap leikmanna Víkings. — Þaö er ekki nóg aö IHF sé að skikka okkur til aö leika báða leikina í Noregi heldur eigum við að greiöa stór- an hluta af flugfargjaldi til Noregs og allt uppihald þar. Þetta er pakki upp á kr. 200.000 sem við hreinlega ráöum ekki viö. Viö höfum mótmælt þessari ákvörðun IHF og ef þau mótmæli veröa ekki tekin til greina þá getur þaö farið svo aö viö drögum okkur út úr Evrópukeppninni, sagöi Hallur. Hallur sagði aö Víkingar heföu óskaö þess viö IHF í gær aö leikið yrði hér heima á mánudaginn kemur og í Nor- egi 8. nóvember. — Þá höfum við einn- ig boöiö Fjellhammer að leika báöa leikina hér á landi um næstu helgi en upphaflega var búið að semja viö Norömennina að þeir lékju báða leik- ina hér á landi. Verkfail BSRB kom i veg fyrir að úr þeim leikjum yröi, sagöi Hallur. Þetta mál er nú i biðstöðu. Spurning- in er nú hvort Fjellhammer felist á tU- lögurVíkings. -SOS : „Gáttaður að Víkingar séu • Kurt Wadmark — góðkunningl Vik- hneykslaðir” inga, frá Ystad-málinu hér um árið. „Mótmælum harðlega” — sagði Jón Hjaltalín, Magnússon, form. HSI „Við hjá HSt erum ákaflega óhresslr með frammistöðu alþjóðahandknatt- leikssambandsins í þessu máli,” sagði Jón Hjaltalin Magnússon, form. HSl, i samtali við DV i gærkvöldi varðandi stríð Vikinga vegna leikjanna við norska liðið Fjellhammer. „Norðmennirnir sögðust ekki geta misst leikmenn vegna vinnutaps í tvo daga en faniLst sjálfsagt að Vfldngar misstu fjóra daga< úr vinnu. Eg tel að tillaga okkar, sem við sendum út í gsr um leikdaga í Noregi og hér heima, sé sanngjörn og vona að Norðmenn sem funduðu um málið í gærkvöldi komist að sömu niöurstöðu,” sagði Jón Hjaltalín. "SK. Rijvershætti Frá Kristjánl Bernburg, fréttaritara DVíBelgíu. Kees Rijvers, landsliðsþjálfari Hol- lendinga, sagði starfi sínu lausu í gær- kvöldi. Hann sagðist vera óánægður með andrúmsloftlð innan hollenska knattspyrnusambandsins. Þjóðverjinn Michael, framkvæmda- stjóri og eftirlitsmaður hollenska sambandsins, mun taka við af Rijvers. -SK. — sagði Kurt Wadmark, stjómarmaður IHF, ísamtaliviðDV Frá Gunnlaugl A. Jónssyni, frétta- manni DV í Svíþjóð: — „Eg fékk skeyti frá Jóni Hjaltalfn Magnússyni, formanni Handknatt- leikssambands Islands, í dag þar sem hann kom fram með nýja tlllögu í máli Víkings og Fjellhammer. Hana getum við fyrir okkar leyti samþykkt ef Norðmenn fallast á hana,” sagði Sviinn Kurt Wadmark i samtali við DV í gærkvöldi. Eins og kemur fram hér aö ofan, fengu Víkingar öllum á óvart skeyti frá IHF í gær, undirritaö af Wadmark, þess efnis aö Víkingar leiki báða leiki sína gegn Fjellhammer í Noregi. — Hver er ástæöan fyrir þessu óvanta skeyti sem þú sendir Víkingum og hvers vegna breytti IHF fyrri ákvörðun sinni um leikdaga? — Forráöamenn Fjellhammer mót- mæltu ákvöröun okkar um leikdaga. Mótmæli þeirra byggöust á því að erfitt væri fyrir leikmenn liðsins að fá sig lausa úr vinnu í miðri viku. Viö féllumst á þessi mótmæli eftir það sem á undan hefur gengiö í þessu máli. — Það verður líka aö skoöa bakgrunn þessa máls, sagöi Wadmark. Wadmark sagði aö Norðmenn hefðu veríö fúsir til aö fara til Islands og leika báöa leiki sina þar. Verkfalliö á Islandi setti hins vegar strik í reikning- inn. Þegar svo samningar tókust ekki um nýja leikdaga ákváöum við hjá I Sævar skoraði I Frá Krístjáni Bemburg, frétta- manniDVíBelgíu: | Leikur Sævars Jónssonar og félaga í Cercle Brugge og Antwerpen I i belgisku bikarkeppninni í | gærkvöldl varð heldur betur ■ söguiegur. I Eftir venjulegan leiktima var staðan ^0—0 og einnig eftir framlengingu I víta- spymukqipninni varöi markvöröur _ Brugge, Barth, öll þrjú vtti Antwerpen J en leikmenn Brugge skoruðu jwisvar. ■ Það voru þeir Kooiman, Sævar Jónsson | og Courant. Leflcurinn þótti skemmtileg- ur og mfltiö var um góð marktækifæri I sem eldci tókst aö nýta. Cerde Brugge ■ er þar með komiö í 16-liða úrslit bflcar- keppninnar í Belgíu. IHF að leikimir skyldu fara fram 6. nóvember í Reykjavík og 8. nóvember í Noregi og sendum Víkingi og Fjell- hammer skeyti um það á miðvikudag, sagöi Wadmark. — Norðmenn mótmæltu þessum leikdögum harðlega í gær. Eg tel að við höfum reynt aö koma mjög til móts við Víkinga. Það er ekki hægt aö þriðji aðili skuli vera látinn líða fyrir það aö verkfall skuli vera á Islandi, sagöi Wadmark og var hann alveg gáttaöur á því að skeyti hans til Víkings skyldi hafa hneykslaö Víkinga. -GAJ/-SK. Ivar Webster er engin smásmíði eins son lék einnig vel f yrir IS og breiðir bé Gross Slök frammistaða vestnr-þýska sundmannsins Mlchel Gross á al- þjóðlegu sundmóti i Brasiliu um siðustu helgi hefnr gert það að verkum að hann hefur verið leystur undan herþjónustu til að geta eln- Svíar ætla að hreinsa til — ílandsliðinu sínu íhandknattleik, eftir slakan árangur á NM í Helsinki Jónssyni, frétta- Frá Gunnlaugi A, manni DV i Svíþjóð — Svíar eru nú i sárum eftir slaka frammistöðu sænska handknattleiks- landsliðsins á NM í Helsinki þar sem þeir urðu að sætta sig við tap fyrir Dön- um, Norðmönnum og Islendingum. Roger Carlson, landsilðseinvaldur Svía, hefur nú þegar boðað miklar hreinsanir í sænska landsliðinu. — Eg get ekki setlð aðgerðalaus eftir svo slakan árangur. Verð að hleypa nýju - blóði í liðið — samhiiða að ég hreinsa þar rækilega tU,” sagði Carlson hér í blaðaviðtali. Carlson hótar að setja stórstjömur Svía frá OL í Los Angeles út úr iiðinu. — „Ég get ekki byggt landslið upp á leikmönnum sem sýna ekki baráttu- vUja,” sagði Carlson. Sænska landsliöiö, skipað leikmönn- um undir 21 árs aldri, hefur staðið sig vel að undanförnu og vann sigur yfir A- Þjóöverjum á dögunum. Carlson hefur hug á að sækja leikmenn i 21 árs liöiö þegar hann fer að byggja lið sitt upp f yrir HM í Sviss 1986. — „Eg get ekki valið leikmenn fyrir mörk sem þeir skoröuöu í fyrra,” sagöi Carlson, sem beinir spjótum sínum aö stórskyttunum Danny Agustsson, Christer Magnússon, Peter Olafsson og Bjöm Jilsen en þeir voru slakir á NM í Helsinki. Sá leikmaöur sem stóö sig best þar var Erik Ha jas en hann er nýliði — ný- kominn úr 21 árs landsliði Svia. -GAJ/-SOS íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.