Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 30
34 DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984. Aðoins var hann farinn að láta 6 sjá, endo hafði verkfall staðið lengi þegar myndin var tekin. Verkfalls- verðir sem gœttu Heklu, skips Ríkísskips, á togarebryggjunni á Akureyri, dunduðu sár við að útbúa snjó- kallinn. Ef vel er að gætt er hægt að sjá að kallinn er með hund, fótboita og stóron vindil. Og þarf þá freker vitnanna við, fjármálaráðherra ogLúsiibandi. DV-mynd JBH/Akureyri. rval Urval Seint koma sumir en koma þó — septemberheftið á öllum blaðsölustöðum. MEÐAL EFIMIS: BARNIÐ IKASSANUM Hún var bara eitt fórnarlarnbanna, skilin eftir til að deyja, mœdd af ómældum þjáningum. Hvað — hver —gæti bjargað henni? HRAPAÐ NIÐUR í HYLDÝPI KYNÞATTAMISRETTI IKENN SLU STUND RAKATÆKJASOTT Á ÍSLENSKUM VINNUSTAÐl Eitt sinn cr Carpcntcr biskup tók þátt í útifundi kallaði trúlcysingi til hans og spurði hann hvort hann tryði því að hvalurinn hcfði glcvpt [Jónas og skilað honum aftur. ,,Eg skal spyrja jónas þegar cg kcm til himna,” svaraði biskupinn. ,,En cf hann er nú ekki þar?” ,,Þá gctur þú spurt hann,” svaraði biskupinn stuttaralcga. Læknamistök: Samninga- leiðin kosin frekar en málaferli Sýkingar á sjúkrahúsum eftir aögerðir eru ekki óalgengar. Öllum aðgerðum — smáum sem stórum — fylgir viss áhætta og eru læknar tryggðir fyrir slíku. Nokkuð hefur boriö á að læknum hefur verið kennt um mistök en „það er allt mjög laust í reipunum því mjög erfitt er um sannanir í slíkum málum”, sagði Halldór Rafnar, lögfræðingur öryrkja- bandalagsins. „Menn hafa venjulega runnið á rassinn í slíkum mála- ferlum,” sagði Halldór. „Fólk kemur gjarna löngu eftir að aðgerð hefur farið fram sem veikir mjög stöðu sjúklingsins í málaferlum. Ekki er hægt að sanna neitt nema að læknir taki upp hanskann fyrir sjúklinginn. Mjög erfitt er að dæma um rök í málum sem þessum og erfitt er aö fá endanlega úrlausn.” Olafur Olafsson landlæknir sagðist hafa fylgst með þessum málum og væri illmögulegt að komast alveg hjá sýkingum. Sýkingatíðni er svipuð hér og annars staðar á Norðurlöndum. „Læknar og hjúkrunarlið geta alltaf gert mistök. Tilfelli hafa komið upp þar sem sjúklingar hafa orðið öryrkjar að einhverju leyti eftir mistök lækna. Er þá algengara að farin sé samninga- leiðin frekar en út í málaferli því einstaklingar vita að málaferli taka langantíma.” Landlæknir sagði aö hjúkrun heföi farið batnandi á síðustu árum. „Áöur var meira lagt upp úr legu og voru legusár mjög algeng, en nú er fólk drifiö á fætur strax og meira lagt upp úr alls konar endurhæfingu.” Landlæknir sagöi að þessi svo- kölluðu „sjúkra-slys” kæmu oft upp er bakteríur koma upp sem mikla mót- stöðu hafa gegn sýklalyfjum. Ovarlega hefur þá verið fariö með sýklalyfjagjöf svo að bakteríurnar mynda mótstööu. Landlæknir hefur gert tillögu til ráðherra um að sérstakur sjúkra- sjóður verði stofnaður, ætlaður til hjálpar fólki sem verður fyrir áföllum sem þessum. Heimir Bjarnason aðstoðarborgar- læknir sagði að læknar léku sér ekki að mistökum. „Islendingar eru þaö um- burðarlyndir aö sjá að hverri aðgerö fylgir áhætta og tryggja læknar sig svimandi upphæðum fyrir slíku.” Guðjón Guðmundsson, yfirlæknir skurðdeildar Akraness, sagöi að tilfelli sem þessi væru sjaldgæf en ef þau kæmu upp hefði keðjan brostið einhvers staðar á leiöinni. Ymiss konar fylgikvillar eiga sér stað. „T.d. getur sjúklingur fengið blóðtappa í lunga eftir aðgerð og eykst áhættan verulega á því ef sjúklingurinn er mjög fullorðinn og meö lélegar æðar. Slíkt myndi því ekki flokkast undir mistök lækna.” Guömundur Sigurðsson aðstoðar- landlæknir sagði aö töluvert væri um að fólk kæmi og gerði fyrirspumir um fylgikvilla lyfja og aðgeröa. „Meirihluti kvartana er vegna þess að sjúklingurinn skilur ekki ef um vangá lækna er aö ræða eöa fylgikvilla. ” -JI. Fiskiþing sett á mánudaginn 43. Fiskiþing verður sett af Þorsteini Gislasyni fiskimálastjóra mánudaginn 5. nóvember 1984 kl. 14.00 í húsi Fiskifélags Islands. Að setningu lokinni mun sjávarút- vegsráðherra, Halldór Ásgrímsson, á- varpa þingið. Þá mun Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, flytja erindi um málefni er varða stofnunina og má vænta að í erindi hans komi fram álit fiskifræöinga um ástand fiskstofnanna og tillögur um hámarks- afla einstakra fisktegunda áriö 1985. Fjöldi mála liggur fyrir þinginu og má þar helst nefna: Stjórnun veiða, afkomu í sjávarútvegi, gæði fiskafla, fræðslu- og tæknimál, stærðir möskva í dragnót og botnvörpu, öryggismál sjófarenda o.fl. 35 fulltrúar eiga rétt til setu á þinginu og koma þeir víðs vegar af landinu. Til undirbúnings þinginu hefur verið haldinn fjöldi funda í deildum og fjórðungssamböndum Fiskifélagsins. Fundimir, hafa veriö vel sóttir og mikill áhugi hefur verið um hin ýmsu málefni sjávarútvegsins. Gef a út bók samtímis í Færeyjum ogá íslandi Snemma í næsta mánuði kemur út samtímis í Færeyjum og á Islandi bamabók hjá Bókaforlaginu Skjald- borg á Akureyri. Bókin verður bæði á færeysku og íslensku. Trúlega er þetta í fyrsta skipti sem íslenskt bókaforlag gefur út bók í Færeyjum, í þaö minnsta á færeysku. Bókin heitir Símon Pétur og er höfundur hennar Martin Næs. Fjöl- margar litteikningar eru í bókinni eftir Þóm Sigurðardóttur. Þóra er Akureyringur en Martin fær- eyskur. Hann hefur verið búsettur á Akureyri síðan í fyrrahaust. Martin er rithöfundur og ljóðskáld. Hann hefur m.a. fengið færeysk verölaun fyrir bamabók. Hann hefur einnig þýtt íslenskar bækur á færeysku, m.a. ljóðabók eftir Hannes Pétursson og eina af bókum Guðrúnar Helgadóttur. -JBH/Akureyri. Blómabúðir orðnar tvær á Selfossí 20. september var opnuð ný blóma- búð á Selfossi og hlaut hún nafniö Eyrarrós. Ber búðin nafnið með rentu og hefur verið mjög mikið að gera þar aö undanfömu. Eigendur eru hjónin Júlíana Hihnisdóttir og Walter Sigur- björnsson. Nú eru því komnar tvær blómabúöir á Selfossi og veitir ekki af. Fólk hér er mjög ánægt með þetta fyrirkomulag því það telur að verslunarmáti haldist heilbrigðastur meðsamkeppni. Regina Thorarensen, Selfossi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.