Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Utlönd Indlra Gandhi. Fjölmargir hafa látið lifið í óeirðunum sem fylgt hafa i kjölfar moðrins á indverska forsætisráðherr- anum. Um 150 sikkar drepnir í róst- um á Indlandi Indland vaknaði i morgun eftir skelfingamótt þar sem vopnaöir varðflokkar sikka og hindúa höfðu á sér vöku en í róstum og íkveikjuæði í gærkvöldi höfðu 148 manns látiö lifið. Fleiri íkveikjutilraunir voru gerðar í morgun og heyra mátti stöku skothríð i Nýju Delhi. Brunnin og sundurtætt lik manna fundust í húsasundum og skuröum og búist er viö þvi að dánartalan eigi eftir að hækka langt upp fyrir 150. Almenningsvagnar, verslunar- og ibúðarhús voru rjúkandi eftir berserksganginn sem rann á menn i gær i kjölfar tilræðisins við Indiru Gandhi sem myrt var af tveim sikkum, lífvörðum hennar, á þriðjudag. Herinn var hafður til taks og gætti höfuðborgarinnar. Honum voru sett þau fyrirmæli aö skjóta til bana óeirðarseggi og gripdeildarmenn. Utgöngubann gilti i Nýju Delhí og 23 borgum öðrum. — Þrátt fyrir þann viðbúnað er vitað um nær 1000 manns sem særöust i ryskingunum. Hindúar gengu i skrokk á sikkum, hvar sem þeir náðu til þeirra. I Madhya Pradesh voru tólf farþegar dregnir með valdi út úr hraðlestinni frá Nýju Delhí og barðir til bana með bareflum. I Delhi gengu hundruðir þúsunda manna framhjá viðhafnarbörunum þar sem lfk Indiru hvíldi i anddyri hússins þar sem faðir hennar, Nehrú, fyrsti forsætisráðherra Indlands, bjó. Þvi húsi hefur verið breytt í safn. — Bálför hennar verður gerð á morgun. Fjöldamótmæli í Montevideo Um 80.000 manns gengu i mótmæla- göngu i gegnum höfuðborg Urugauy, Montevideo, í fyrrinótt til að krefjast þess að 500 pólitiskir fangar y rðu látnir lausir úr fangelsum. Mótmælin voru skipulögö af breið- fylkingu vinstri flokka i landinu og ,fekk fremstur í flokki forsetaefni þeirra í komandi kosningum í landinu, Juan Crotoggini. Kosningamar verða haldnar þann 25. nóvember nk. og er markmiðið þá að koma á lýöræði í landinu eftir 11 ára herforingjastjórn. Nokkrum klukkustundum áður en mótmælagangan fór af stað meinaði stjórn landsins argentiska nóbeiverð- launahafanum Adolfo Perez Esquivel inngöngu i landið en hann ætlaöi að heimsækja mannréttindahóp þar. Mafíuforingi handtekinn Aniello Dellacroce, einn af háttsett-, sú siðasta í röð slíkra tilvika á undan- ustu mönnunum innan mafiunnar i fömum vikum en dómsyfirvöld hafa Bandarikjunum og annar valdamesti stefnt yfir 20 mönnum innan mafíunn- foringi stærstu mafiufjöiskyldunnar í ar fyrir að hafa notað pizza-staöi til jNew York, hefur verið handtekinn, dreifingar á heróini. sakaöur um skattsvik. öryggisráðstafanir hafa verið aukn- Dellacroce var handtekinn í fyrri- ar við dómshúsin í New York til að nótt í „Litlu Italiu” í New York. Hann koma í veg fyrir hefndaraðgerðir er 70 ára gamall og næstæðsti maður mafíunnar en handtaka Dellacroce er Gambino-f jölskyldunnar í New York. Bandaríkin íhuga sölu á kjamorku- tækniþekkingu til Suður-A fríku Stjóm Ronalds Reagan i Banda- ríkjunum íhugar nú sölu á kjamorku- tækniþekkingu til Suður-Afríku að beiðni 10 fyrirtækja sem vilja selja S- Afríkumönnum þessa þekkingu. Gagnrýnendur þessarar ráðstöfunar segja að ákvarðanatöku i málinu hafi verið frestað þar til eftir forseta- kosningarnar í næstu viku en meöal gagnrýnenda eru fjórir öldungadeild- arþingmenn, fimm meðlimir fulitrúa- deiidar þingsins og hópur sem berst gegn aðskilnaðarstefnu ríkisstjórn- arinnar í S-Afríku. Þessir aðilar hafa hvatt til þess að beiðninni verði hafnað. I bréf um til Shultz utanríkisráðherra og Donald Hodel orkumálaráöherra segja öldungadeildarþingmennirnir aö ef jákvætt svar verði gefið við þessum útflutningi muni það brjóta gegn stefnu Bandarikjamanna að stemma stigu við útbreiðslu kjamorkuvopna. AÐALSTRÆTI 9 S. 28133 KOMDU MEÐ TIL Vikulegar ferðir í allan vetur á þriðjudögum frá 30. okt. Þú getur valið um 10-, 17-, eða 24 daga ferð, — gisting á einum glæsilegasta gististaðnum á Ensku ströndinni: Barbacan Sol. Rúmgóðar íbúðir eða smáhýsi með svölum. Tvær sundlaugar, veitingastaðir, barir, spilasalir og tennisvöllur. íslenskur fararstjóri á Barbacan Sol er farþegum til trausts og halds og fylgir þeim í skemmtilegar skoðunarferðir. OG AMSTERDAM í S(>MU FERÐINNI 2ja nátta gisting í Amsterdam sem auðvelt er að framlengja. Gist er á Hótel Pulitzer í hjarta borgarinnar, — sérkennilegt fyrsta flokks hótel. Komdu með til Kanarí og Amsterdam, — fáðu bækling og allar upplýsingar hjá okkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.