Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 1
 DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 237. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1984. \ Sjálfstæðisflokkurinn þarf aó meta algeriega nýjar aðstæður á næstu dögum, segir Þorsteinn Pálsson íDV-yfirheyrslu: RÍKISSTJÓRNIN STOKKUÐ UPP? íslenskir frímúrarar iegypskri landamæra- stöð — sjábls.3 Leysir íslensk raforka öll orkuvanda- Færeyinga? — sjá bls. 2 Skrímslií Kleifar- vatni? — sjá bls. 2 15tonna jafnrétti — sjá bls. 3 Uppstokkun á ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks eða jafnvel annað stjómarsamstarf er ofarlega í hugum margra sjálf- stæðismanna i áhrifastöðum innan flokksins. Núverandi skipan stjómarsamstarfs þykir ekki vænleg til þess að blásið verði nýju lífi í at- vinnu- og efnahagsþróun í landinu. „Það eru auðvitað komnar upp nýjar aðstæöur í þjóðfélaginu, bæði efnahagslega og pólitískt og Sjálf- stæðisflokkurinn þarf að meta það á næstu dögum hvernig hann bregst við því,” segir Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í DV- yfirheyrslu í blaðinu í dag. Hann hvorki játar né neitar hugsanlegri þátttöku sinni í ríkisstjórninni. Fyrir nokkrum vikum voru helstu foringjar Sjálfstæðisflokksins í röðum yngri flokksmanna og fleiri valdamiklir flokksmenn með hug- myndir um að leggja málin undir dóm kjósenda i þingkosningum í lok nóvember. Þar í hópi voru Þorsteinn Pálsson, Friörik Sophusson, Davíð Oddsson og Albert Guðmundsson. Nú er ekki lengur áhugi á þessu enda aöstæður breyttar og kosningar gætu ekki farið fram fyrr en í byrjun næsta árs. Þær eru þó ekki útilok- aðar. Innan Sjálfstæðisflokksins er nú að gerjast krafa um endurmat á stjórnarsamstarfinu frá grunni og mjög breytt tök á verkefnum sem lúta að viðbrögöum vegna kjara- samninganna og framkvæmd þeirrar framtíðarstefnu í atvinnu- og efnahagsmálum sem formenn stjórnarflokkanna boöuðu í haust. Annað stjórnarsamstarf er ekki úti- lokað, einkum eftir að hafinn er „undirgangur í hluta Framsóknar- flokksins,” eins og Þorsteinn Pálsson kallar viss umbrot í þeim flokki í DV yfirheyrslunni. -HERB. —sjá nánar á bls. 4 Slökkviliðið i Reykjavík var i gœrkvöldi kallað vestur á Verbúðabryggjur en þaðan hafði verið tilkynnt um eld i vélbótnum Sigrúnu. Hafði kviknað í út frð rafmagni og var búið að slökkva eldinn að mestu þegar liðið var komið á staðinn. -klp/DV-mynd S. Ólympíumótið hálfnað: Íslandí miðjumflokki Undanrásir ólympíumótsins í bridge, sem stendur yfir í Seattle, eru nú hálfnaðar. Lokið er 14 um- ferðum. I gærkvöldi sigraði Indónesía íslensku sveitina, 23—7, og V- Þýskaland sömuleiðis 22—8, í 13. umferð, en Island vann Sameinuðu furstadaamin við Persaflóa með 24—6. Aö loknum undanrásunum, sem eru spilaðar í tveim riðlum, munu f jórar efstu sveitir úr hvorum riðli spila saman 8 liða úrslit um gull-, silfur-og bronsverðlaunin. I A-riöli hafa Austurríki, Frakkland, Pólland og Danmörk forystu, en í B-riðli eru Indónesía, Bandaríkin, Argentina og Astralía efst. I kvennaflokki hefur Holland tekið forystu með 188 stig, Þýskaland hefur 169 stig, Banda- rfltin 166, Bretland 164, Argentína 155. Island, sem spilar í B-riðli, var í 9. sæti fyrir gærkvöldið, en dalaði við ósigrana fyrir Þjóðverjum og Indónesíu. 27 sveitir spila íhvorumriðli. -GP. Missti fótinn ofan við ökla Fyrir um mánuöi missti 16 ára piltur, Brynjar Valdimarsson, vinstri fótinn ofan við ökla eftir aö hafa lent í svokölluðum snigli sem notaður er til aö flytja ís í Hraðfrystistöðinni í Reykjavík. Brynjar var einn í ísklefanum þegar slysið varð, Ristar áttu aö vera yfir sniglinum en þær vantaði á sumum stöðum og rann Brynjar með fótinn ofan í eitt gatið. Honum tókst með herkjum að rífa sig lausan og skríða út úr klef- anum og kasta sér niður tröppur þar sem fólk varö loks vart viö hann. Hann var fluttur á Borgarsjúkra- húsiö þar sem gert var að meiðsl- um hans en nú er hann á Grensás- deild Borgarspítalans til endur- hæfingar. Málið er enn í rannsókn hjá Vinnueftiriitinu, en Hraðfrysti- stöðin hefur látið loka ísklefanum. Verður ekki unnið í honum fyrr en búið er að fyrirbyggja ai svona lagað geti komiö fyrir aftur. -klp. Stuðlafoss tókniðri Stuðlafoss, skip Eimskipa- félagsins, er væntanlegur úr viðgerð frá Vestmannaeyjum í dag. Hafði skipiö rekist á sker í innsiglingunni í Djúpavogi og skemmst nokkuð af þeim sökum. Þórður Sverrisson hjá Eimskip sagði aö atvikið heföi átt sér stað sl. laugardag. Innsiglingin að Djúpavogi væri vandasöm, mikið af skerjum og innsiglingarrennan þröng. Heföi skipið lent utan í skeri og „rispaö botninn vel”. Sagöi Þórður að skemmdir á þvi hefðu ekki veriö alvarlegs eðlis. Stuðlafoss er væntanlegur til Hafnarfjarðar í dag. -JSS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.