Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Page 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 237. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1984.
\
Sjálfstæðisflokkurinn þarf aó meta algeriega nýjar aðstæður
á næstu dögum, segir Þorsteinn Pálsson íDV-yfirheyrslu:
RÍKISSTJÓRNIN
STOKKUÐ UPP?
íslenskir
frímúrarar
iegypskri
landamæra-
stöð
— sjábls.3
Leysir
íslensk
raforka öll
orkuvanda-
Færeyinga?
— sjá bls. 2
Skrímslií
Kleifar-
vatni?
— sjá bls. 2
15tonna
jafnrétti
— sjá bls. 3
Uppstokkun á ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
eða jafnvel annað stjómarsamstarf
er ofarlega í hugum margra sjálf-
stæðismanna i áhrifastöðum innan
flokksins. Núverandi skipan
stjómarsamstarfs þykir ekki vænleg
til þess að blásið verði nýju lífi í at-
vinnu- og efnahagsþróun í landinu.
„Það eru auðvitað komnar upp
nýjar aðstæöur í þjóðfélaginu, bæði
efnahagslega og pólitískt og Sjálf-
stæðisflokkurinn þarf að meta það á
næstu dögum hvernig hann bregst
við því,” segir Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, í DV-
yfirheyrslu í blaðinu í dag. Hann
hvorki játar né neitar hugsanlegri
þátttöku sinni í ríkisstjórninni.
Fyrir nokkrum vikum voru helstu
foringjar Sjálfstæðisflokksins í
röðum yngri flokksmanna og fleiri
valdamiklir flokksmenn með hug-
myndir um að leggja málin undir
dóm kjósenda i þingkosningum í lok
nóvember. Þar í hópi voru Þorsteinn
Pálsson, Friörik Sophusson, Davíð
Oddsson og Albert Guðmundsson. Nú
er ekki lengur áhugi á þessu enda
aöstæður breyttar og kosningar gætu
ekki farið fram fyrr en í byrjun
næsta árs. Þær eru þó ekki útilok-
aðar.
Innan Sjálfstæðisflokksins er nú að
gerjast krafa um endurmat á
stjórnarsamstarfinu frá grunni og
mjög breytt tök á verkefnum sem
lúta að viðbrögöum vegna kjara-
samninganna og framkvæmd
þeirrar framtíðarstefnu í atvinnu- og
efnahagsmálum sem formenn
stjórnarflokkanna boöuðu í haust.
Annað stjórnarsamstarf er ekki úti-
lokað, einkum eftir að hafinn er
„undirgangur í hluta Framsóknar-
flokksins,” eins og Þorsteinn
Pálsson kallar viss umbrot í þeim
flokki í DV yfirheyrslunni.
-HERB.
—sjá nánar á bls. 4
Slökkviliðið i Reykjavík var i gœrkvöldi kallað vestur á Verbúðabryggjur en þaðan hafði verið tilkynnt um
eld i vélbótnum Sigrúnu. Hafði kviknað í út frð rafmagni og var búið að slökkva eldinn að mestu þegar
liðið var komið á staðinn. -klp/DV-mynd S.
Ólympíumótið hálfnað:
Íslandí
miðjumflokki
Undanrásir ólympíumótsins í
bridge, sem stendur yfir í Seattle,
eru nú hálfnaðar. Lokið er 14 um-
ferðum.
I gærkvöldi sigraði Indónesía
íslensku sveitina, 23—7, og V-
Þýskaland sömuleiðis 22—8, í 13.
umferð, en Island vann Sameinuðu
furstadaamin við Persaflóa með
24—6.
Aö loknum undanrásunum, sem
eru spilaðar í tveim riðlum, munu
f jórar efstu sveitir úr hvorum riðli
spila saman 8 liða úrslit um gull-,
silfur-og bronsverðlaunin.
I A-riöli hafa Austurríki,
Frakkland, Pólland og Danmörk
forystu, en í B-riðli eru Indónesía,
Bandaríkin, Argentina og Astralía
efst.
I kvennaflokki hefur Holland
tekið forystu með 188 stig,
Þýskaland hefur 169 stig, Banda-
rfltin 166, Bretland 164, Argentína
155.
Island, sem spilar í B-riðli, var í
9. sæti fyrir gærkvöldið, en dalaði
við ósigrana fyrir Þjóðverjum og
Indónesíu. 27 sveitir spila
íhvorumriðli. -GP.
Missti fótinn
ofan við ökla
Fyrir um mánuöi missti 16 ára
piltur, Brynjar Valdimarsson,
vinstri fótinn ofan við ökla eftir aö
hafa lent í svokölluðum snigli sem
notaður er til aö flytja ís í
Hraðfrystistöðinni í Reykjavík.
Brynjar var einn í ísklefanum
þegar slysið varð, Ristar áttu aö
vera yfir sniglinum en þær vantaði
á sumum stöðum og rann Brynjar
með fótinn ofan í eitt gatið.
Honum tókst með herkjum að
rífa sig lausan og skríða út úr klef-
anum og kasta sér niður tröppur
þar sem fólk varö loks vart viö
hann.
Hann var fluttur á Borgarsjúkra-
húsiö þar sem gert var að meiðsl-
um hans en nú er hann á Grensás-
deild Borgarspítalans til endur-
hæfingar.
Málið er enn í rannsókn hjá
Vinnueftiriitinu, en Hraðfrysti-
stöðin hefur látið loka ísklefanum.
Verður ekki unnið í honum fyrr en
búið er að fyrirbyggja ai svona
lagað geti komiö fyrir aftur.
-klp.
Stuðlafoss
tókniðri
Stuðlafoss, skip Eimskipa-
félagsins, er væntanlegur úr
viðgerð frá Vestmannaeyjum í
dag. Hafði skipiö rekist á sker í
innsiglingunni í Djúpavogi og
skemmst nokkuð af þeim sökum.
Þórður Sverrisson hjá Eimskip
sagði aö atvikið heföi átt sér stað
sl. laugardag. Innsiglingin að
Djúpavogi væri vandasöm, mikið
af skerjum og innsiglingarrennan
þröng. Heföi skipið lent utan í skeri
og „rispaö botninn vel”. Sagöi
Þórður að skemmdir á þvi hefðu
ekki veriö alvarlegs eðlis.
Stuðlafoss er væntanlegur til
Hafnarfjarðar í dag.
-JSS.