Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Rannsóknastofamjólkuriðnaðarins:
Unnið að
aukinni
nythæð kúa
Stjórn Rannsóknastofu mjólkuriðnaðarins. Talið frá vinstri: Pótur
Sigurðsson, Magnús H. Sigurðsson, Ólafur E. Stefánsson, Þórarinn E.
Sveinsson, og Sigurður Sigurðsson.
„Markmiöiö er að framleiða meiri
og betri mjólk með minni tilkostn-
aði,” sagði Olafur E. Stefánsson, for-
maður Rannsóknastofu mjólkuriðn-
aðarins, á blaðamannafundi þar sem
starfsemi hennar var kynnt.
Rannsóknastofa mjólkuriðnaöar-
ins var stofnuð 22. jan. 1982 og er
starfseminni skipt i þrjá þætti: efna-
rannsóknir fyrir nautgripafélögin,
júgurbólgurannsóknir og fræðslu
fyrir bændur. Eigendur rannsókna-.
stofunnar eru 15 mjólkursamlög
landsins.
* ’Mairn
Tækjabúnaður só er rannsóknastofan ó. Hann samanstendur af efnamœlingatæki og frumutalninga-
tæki og er metinn ó um 5 milljónir idag.
„Þetta er vísir af rannsókn í þágu
atvinnuveganna,” sagði Oiafur, ,,en
bændur eru ekki nógu duglegir við að
nota þessa þjónustu. Til dæmis er
beint tap bænda vegna júgurbólgu
um 100 milljónir króna á ári. Hægt er
að lækka þessa tölu um meira en
helming ef allir bændur taka
höndum saman til að lækka þessa
tölu og notfæra sér þjónustu rann-
sóknastofunnar. Við viljum rækta
kýr sem eru miklar afurðakýr, eru
hraustar og endast, því stofnkostn-
aður við nautgripabú hér á landi er
mjög mikill í samanburði við ná-
grannalöndin. Við þurfum að byggja
meiri hús yfir kýrnar og við þurfum
að hafa þær innan dyra átta mánuði
ársins svo að vinna er einnig meiri
hjá okkur i sambandi við nautgripa-
ræktina. Því þurfum við einnig að fá
betri afurðir.”
Rannsóknastofan hefur yfir að
ráða tækjasamstæöu sem er sér-
hönnuð til efnamælinga á mjólk og er
hin eina sinnar tegundar hérlendis.
Rannsóknatækin, eða efnamælinga-
tækið og frumutalningatækiö, vinna
samhæft og tengjast með tölvubún-
aði. Niðurstöðumar prentast út á
tölvuprentara og fara inn á tölvu-
skrá hjá Búnaöarfélagi Islands.
Þeir bændur sem eru í nautgripa-
ræktarfélögum senda sýni úr hverri
kú átta sinnum á ári. Niðurstööumar
þjóna kynbótastarfseminni, mjókur-
samsölunum og viöleitni bænda til að
halda júgurbólgu í skefjum. Niður-
stöðurnar eru sendar bændum,
mjókursamsölum og dýralæknum og
fylgja leiðbeiningar um lyfjanotkun í
hverjutilfelli.
Júgurbólga er töluvert algengari
hér en í nágrannalöndunum. Þetta
hefur engin áhrif á hollustu mjólkur-
innar, þar sem öll neyslumjólk hér á
landi er gerilsneydd, en hún veldur
bændum verulegu tjóni vegna af-
uröataps, því ekki er hægt að nýta
mjólk f rá s júkum kúm.
Veittur er styrkur frá ríkinu til
þessara rannsókna sem nemur 5—10
prósentum af heildarkostnaði starf-
seminnar, en að öðru leyti fjár-
magna bændur og viðkomandi
mjólkursamlög þetta.
JI
Vinsamlegast lesið þessa auglýsingu þvf að hún fjallar um:
SNJALLA KAFFIKÖNNU
þá er komið að lokaaugiýsing-
unni frá PFAFF, sem er undanfari
Getraunaaugiýsingarinnar, er
birtist hér á sama stað í blaðinu á
morgun. í fjórum auglýsingum
(sú fyrsta birtist sl. þriðjudag) er
að finna upplýsingar sem spurt
verður um í Getraunaauglýsing-
unni á morgun. Svörin verða létt
ef þið hafið við höndina þessar
fjórar auglýsingar er fjalla um
BRAUIM nýjungar og eingöngu
hafa birst í DV.
Í Getraunaauglýsingunni verður svar-
seðill, sem lesendur DV geta sent til
verslunarinnar PFAFF, Borgartúni 20.
Lesendur keppa um 20 verðlaun og
mun auglýsingadeild DV annast drátt-
inn. Verðlaunin verða fimm BRAUN
vekjaraklukkur sem svara kalli, fimm
BRAUN vasarakvélar, fimm BRAUN
gaskrullujárn og fimm BRAUN kaffi
könnur. Verðmæti vinninga er samtals
ca kr. 32.000.
GEYMIÐ ÞESSA AUGLÝSINGU ÞAR
TIL Á LAUGARDAG
Kaffipoka-
hólf á hjörum
BRAUN kaffikannan mun
vekja sérstaka athygli í ár
fyrir snjalla hönnun og
skynsamlega útfærslu. Fyrir
þaö fyrsta þá er kaffipoka-
hólfiö á hjörum og tengslin
milli kaffikönnunnar og kaffi-
pokans rofna, ef þú t.d. færö
þér kaffi úr könnunni áöur en
uppáhellingu er lokið. Það er
þessi lausn, að geta tekið ____________________________
kaffikönnuna hvenær sem er undan kaffipokahólfinu, sem
mun draga athyglina aö BRAUN kaffikönnunum í ár. Onnur
athyglisverö nýjung í þægindaskyni: þúgetur geymt
rafmagnssnúruna í baki vélarinnar og tekið aðeins út þann
hluta hennar sem nægir til tengingar.
Kaffikönnurnar fást í tveimur stæröum, 10 og 12 bolla.
Verö frá kr. 2.200,-.
Verslunin
Borgartúni 20
MARGAR ÓVÆNTAR NÝJUNGAR FRÁ BRAUN í ÁR