Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Page 5
DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984.
5
Alþýðubandalagsmenn:
Þingnefnd
skoði vanda
sjávarútvegs
„Þegar endurskoðun um endur-
greiðslur olíuverðs liggur fyrir verður
tekin ákvörðun um hvort þeim verður
fram haldið,” sagði Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráöherra í gær á
þingi. Til umræðu var tillaga um kosn-
ingu þingnefndar vegna rekstrar-
vanda í íslenskum sjávarútvegi. Flutn-
ingsmenn eru allir þingmenn Alþýðu-
bandalagsins. Ráðherra svaraðimeðal
annars fyrirspurn um olíukostnaö
fiskiskipa en endurskoðun á olíurekstri
skipanna er rétt ólokið hjá viöskipta-
ráðuneyti. Þegar endurgreiðslur voru
ákveðnar voru þær miðaðar við hlut-
fall af aflaverðmæti og miöað var við
þriggja mánaöa tímabil. 1 málflutningi
þingmanna Alþýðubandalagsins kom
fram gagnrýni á aö lítið væri aðhafst af
ráöherra hálfu til að leysa vanda sjáv-
arútvegsins og því væri tillaga um
þingnefnd tilkomin.
Ráðherra benti á ýmis úrræði vegna
sjávarútvegs sem framkvæmd'hefðu
verið, til dæmis að endurgreiða sölu-
skatt af orkuveröi til frystihúsa á
næstaári.
-ÞG
Auglýsingaútvarp
í stórmarkaði
„Nei, þetta er ekkert fréttaútvarp.
Við útvörpum ekki öðru en auglýsing-
um og þá eingöngu auglýsingum sem
við gerum sjálfir og snerta eigin vör-
ur,” sagði Gísli Blöndal, fulltrúi Hag-
kaupsforstjórans, í samtali við DV, að-
spurður hvort Hagkaup væri farið að
reka eigin útvarpsstöð.
„Við höfum komið okkur upp sér-
stakri gerð af segulbandi sem hentar
til þessa og auglýsingamar eru leiknar
á mesta annatímanum. I verkfallinu
vorum við jafnframt vanir að stilla á
Ríkisútvarpið þegar á fréttalestri stóð
þannig að fólk fengi jafnframt upplýs-
ingar um hvað væri að gerast í veröld-
inni á meöan það verslaði við okkur,”
sagðiGísiiennfremur. -EIR.
Fjórar f rumsýningar
Það er mikið um frumsýningar í
leikhúsunum í Reykjavík um þessar
mundir enda allt líf að færast aftur í
eðlilegt horf eftir verkfallið.
Islenska óperan frumsýnir Carmen
í kvöld og Leikfélag Reykjavíkur
frumsýnir Dagbók Önnu Frank í Iðnó
annað kvöld. Þar leikur óþekkt 16 ára
stúlka frá Selfossi, Guðrún Krist-
mannsdóttir, aðalhlutverkiö.
Nemendaleikhúsiö frumsýndi í gær
leikritið Grænfjöðrung eftir Carlo
Gossi, og er næsta sýning á því verki á
morgunkl. 15.00.
Þá frumsýnir Alþýðuleikhúsið kl.
16.00 á sunnudaginn að Kjarvalsstöð-
um leikritið Beisk tár Veru von Kant,
sem er eftir Rainer Werner Fassbind-
er.
-klp-
Það er ekkí mikil hvíld I pósthúsum landsins þessa dagana og unnið fram á
rauöanótt. í aOalpósthúsínu í Reykjavik er Ijós i hverjum glugga þótt
dimmtsó úti.
DV-mynd KAE.
Landgræðslan græðir flugvél
Landgræðslan hefur eignast nýja
flugvél. Sú er gömul og mun aldrei
fljúga framar. Er hér um að ræða
Douglas DC 3 vél sem varð innlyksa á
Reykjavíkurflugvelli fy rir mörgum ár-
um þegar verið var að ferja hana yfir
hafið ásamt öðrum sömu gerðar. End-
anlega varð hún að hræi í óveðri sem
þeytti henni upp að Hótel Loftleiðum
án þess að nokkurn gest sakaði.
Flugmálastjórn lagði hald á flugvél-
ina og nú hefur Landgræöslan keypt
hana. Hefur vélin verið tekin í sundur,
allt nýtilegt hirt og er ráðgert að nota
það sem varahluti í þær flugvélar
Landgræðslunnar sem flugfærar eru,
en það eru Páll Sveinsson, sem er af
Douglas DC 3 gerö, og TF Tún, sem er
Piper-vél. Landgræðslan mun því á
næstunni snúa sér að varahluta-
ígræðslu.
-EIR.
Bryndís og Bergþóra að störfum í 15 tonna trukknmn sínum sem
mllll Keflavfkur og Reykjavíkur dag hvem.
er 12 metra langur og brunar með þær systur á
DV-mynd KAE.
15 toffna jafnrétti
— og karlmennimir bjóða fram aðstoð
„Það eru allir voðalega hissa á
okkur en við látum það ekki á okkur
fá. Pabbi var í þessu í 20 ár og nú er-
um við teknar við,” segja þær systur
Bryndís og Bergþóra sem hafa þann
starfa aö aka 15 lesta vöruflutninga-
bifreið á milli Reykjavíkur og Kefla-
víkur; fullhlaðinni og þær hlaða hana
sjálfar.
Bergþóra er 34 ára og tveggja
barna móðir, Bryndís systir hennar
er 25 ára og vöruflutningabillinn er
12 metra langur og tekur 15 lestir
eins og fyrr sagði. Saman sjá þessi
hörkutól um að aka vörum fyrir
Kaupfélagið i Keflavík og lyfta því
ekki fáum kartöflusekkjunum dag
hvern, svo ekki sé minnst á steypu-
styrktarjárnið sem þær verða að
binda á topp bílsins.
„Hvers vegna ættum við ekki að
geta gert þetta eins og karlmenn?
Við erum stórar og sterkar. Þó lend-
um við í því daglega að karlmenn
bjóða okkur aöstoð og við þiggjum
hana ef þannig liggur á okkur,”
segja systumar á meðan þær hamast
við að hlaða trukkinn sem er á stærð
við flugvél sm flýgur á innanlands-
leiðum. „Við förum frá Keflavík um
sjöleytið á morgnana og erum búnar
með verk okkar í Keflavík fyrir
kvöldmat,” segja Bryndís og Berg-
þóra og neita því ekki að töluvert sé
upp úr þessu að hafa. „Við erum að
hugsa um að halda þessu áfram
næstu 20 árin eins og pabbi.”
-EIR.
MIÐ BJOÐUNv
METRINU
BYRGINN
jímutiESTunE
Nú eru fyrirliggjandi BRIDGESTONE
radial og diagonal vetrarhjólbarðar á
vörubifreiðar með hinu frábæra BRIDGE-
STONE ÍSGRIPS-mynstri
Sérlega hagstætt verd.
ISGRIP
BILABORG HF.
Smiöshöföa 23 sími 812 99