Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Side 8
DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984. Utlönd Utlönd Útlönd Útlönd SVETLANA STAUN SNÝR AFTUR TIL SOVÉTRÍKJANNA Svetlana í fangi f ööur síns. Nú mun hún aftur komin heim til f öðurhúsa. S.Þ. hvetur til samningaviðræðna um Falklandseyjar Allsherjarþing Sameinuöu þjóðanna samþykkti í fyrradag tillögu sem hvet- ur til að Bretar og Argentínumenn setj- GaryGrant dauðvona? Að sögn vina er hinn áttræöi Gary Grant aðeins að ná sér eftir flensu en ekki alvarlega veikur eins og talið var. Sagt er að hann dvelji nú heima hjá sér og hafi ekki verið lagður inn á sjúkra- hús. Grant aflýsti fyrirhuguðum fyrirlestri sínum í menningar- miðstöö San Fransisco fyrir 8 dögum og þá komust á kreik sögusagnir um alvarleg veikindi hans en vitaö er að hann vildi ekki fyrir nokkum mun missa af þessum fyrirlestri. Hefur fyrir- lestrinum veriö frestaö allt fram í janúar á næsta ári. ist að samningaborði í Falklandseyja- deilunni. Tillagan var samþykkt með 89 atkvæðum gegn 9 en Bretar börðust hart gegn því að hún yrði samþykkt. Tvö fleiri ríki greiddu atkvæði með tillögunni nú en með sams konar tillögu sem samþykkt var í fyrra en 54 sátu hjá. Argentínumenn urðu fyrir vonbrigðum meö afstöðu ríkja innan EBE sem þeir höfðu vonað að breyttu afstöðu sinni til málsins. Duarte bjartsýnn Jose Napoleon Duarte, forseti E1 Salvador, sagði í gær aö vinstri sinnað- ir uppreisnarmenn gætu ekki náð völd- um í landinu með ofbeldi. Duarte sagöi á fundi með frétta- mönnum í Los Angeles í gær að upp- reisnarmennirnir þyrftu að breyta að- ferðum sínum ef þeir vildu komast til valda vegna þess að aöstæður í landinu hefðu breyst síðan skæruhemaður hófst í landinu fyrir fimm árum. Hann neitaði því að það aö boöa til fundar meö skæruliðum í La Plama í síðasta mánuði heföi verið pólitísk sýndarmennska og sagöist í einlægni vilja frið í E1 Salvador. 22 farast i flóöum Aö minnsta kosti 22 fórust og yfir 5000 eru heijmilislausir í verstu flóðum og skriöum sem komiö hafa í Kólombíu í yfir 10 ár. Meðal þeirra sem fórust var 8 manna fjölskylda sem lenti í aur- skriðu. Svetlana Stalín hefur snúið til baka til Sovétrík janna. Svetlana Stalín, dóttir Jósefs Stalín, hefur snúið til baka til Sovétríkjanna eftir 17 ára dvöl á Vesturlöndum. Skólastjóri skólans sem dóttir Svetlönu er nemandi viö segir að Svetlana Pet- ers, eins og hún nú kallar sig, hafi haft samband við hann nýlega og sagt honum að hún væri á förum til Moskvu. Svetlana Stalín flúði frá Sovét- ríkjunum áriö 1967 til Bandaríkjanna þar sem hún giftist bandarískum lög- fræðingi, William Peters aö nafni. Síðustu árin hefur hún búið í Cambridge í Englandi. Svetlana fæddist í Moskvu árið 1926 og var næstelsta barn Stah'ns af seinna hjónabandi. Þegar Svetlana var aðeins sex ára gömul framdi móðir hennar sjálfsmorö en það var ekki fyrr en Svetlana hafði náö sextán ára aldri að henni var sagður sannleikurinn um móöur sína. Þegar Svetlana yfirgaf Sovétríkin hafði hún þrjú hjónabönd aö baki og hneykslaöi Kremlverja með því aö snúa baki við kommúnisma og taka upp ameríska h'fshætti. Hún brenndi sovéska vegabréfið sitt og af- salaði sér sovéskum ríkisborgararétti áriö 1969 og lýsti því yfir að hún myndi aldrei snúa aftur til heimalands síns. Þaö leiö heldur ekki á löngu áður en sovésk stjómvöld sviptu hana ríkis- borgararétti. Að sögn vinkonu Svetlönu í Oxford eru þessi tíðindi um að Svetlana hafi snúiö aftur til Sovétríkjanna hreint ótrúleg. Hún sagöi að Svetlana hefði búið í sama húsi og þau hjónin og aldrei minnst á það einu oröi að hún hygðist snúa aftur til Sovétríkjanna. ÆTLUÐU AÐ MYRÐA FORSETA HONDÚRAS Bandaríkin segjast hafa flett ofan af samsæri til þess aö bylta stjórn Hondúras, sem er einn helsti banda- maður þeirra í Mið-Ameríku. Sam- særismennimir eru sagðir hafa bmggað RobertoSuazo forseta bana- ráð. Ágóði eiturlyfjasmyglara mun hafa veriö notaður til að standa straum af kostnaði vegna samsæris- ins Og eru níu menn ákærðir um hlut- deild í því. Einn þeirra var hershöfð- ingi frá Hondúras, búsettur í Santiago í Chile, tveir kaupsýslu- menn frá Hondúras og sex banda- rískir borgarar. FBI, alríkislögreglan, fékk pata af samsærinu í júlí og tókst að lauma erindreka sínum undir fölsku flaggi í raðir samsærismannanna. — Tilræð- ið viö forsetann átti að verða ein- hvem tíma á bfiinu 15. október tfi 15. nóvember. Bandaríkjastjórn gerði yfirvöldum Hondúras strax viðvart í júlí um hvers hún heföi orðið áskyn ja. Lögreglan lagði hald á kókaín- farm sem smygla átti frá.Kólombíu til Bandarikjanna. Náöi lögreglan honum strax við komuna tU flugvall- ar í Suður-Flórída. Smyglfarmurinn var metinn á 10,3 milljónir dollara. Ætlunin var að nota það f jármagn tU kaupa á vopnum, sprengiefni, skrið- drekum og flugvélum til byltingar- innar. Atta af samsærismönnunum hafa verið handteknir en hershöfðinginn í Chilegengurennlaus. Jerzy Popieluszko með föður sinum, Henryk, og Lech Walesa. SÉRA JERZY JARÐAÐ- UR MEÐ VIÐHÖFN Séra Jerzy Popieluszko, presturinn sem myrtur var af pólsku lögreglunni, verður jarðsettur í sóknarkirkju sinni í Varsjá þrátt fyrir hættuna á að leiði hans verði gert aö helgum reit stjórnarandstöðunnarí landinu. Jeozef Glemp erkibiskup veitti leyfi sitt í gær tU þess að prestinum yrði valinn legstaður í kirkju St. Stanislaw en jarðarförin verður gerð á morgun. Þrír menn úr öryggislögreglunni sitja í haldi sakaðir um að hafa rænt prestinum og myrt hann. Það er búist við því að tugir þúsunda Pólverja muni fylgja prestinum til grafar. I Gdansk hefur einn neöanjarðar- foring ja Einingar hvatt verkamenn við höfnina til þess að leggja niður vinnu í eina klukkustund á meöan jarðarförin stenduryfir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.