Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Qupperneq 12
12 DV. FÖSTUDAGUR2. NÖVEMBER1984. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. | Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla,áskriftir,smáauglýsingar,skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686411. ' Setning, umbrot, mynda- og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf.,Skeifunni 19. I Áskriftarverö á mánuöi 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helaarblað 28 kr. Var Indland Indira? Var Indland Indira og Indira Indland? Þau voru slagorð Indiru Gandhi fyrir kosningarnar 1971. Nú er hún fallin fyrir kúlum morðingja. Spuming- arnar eru áleitnar: Var það hún, sem sameinaði Ind- verja? Morðið á Indiru Gandhi er hörmulegt tímanna tákn. Launmorðingjar hafa mikið komið við sögu í fréttum síðari ára. Brezki forsætisráðherrann og margir ráð- herrar í stjórn hennar sluppu fyrir nokkrum vikum naumlega undan tilræði. Hið sama hefur gerzt um núver- andi forseta Bandaríkjanna og páfa kaþólsku kirkjunnar. Fólki eru kunnug nöfn frægra stjórnmálamanna og ann- arra, sem fallið hafa fyrir morðingja hendi síðustu ár. Tækni hryðjuverka eflist og leiðtogar eru æ varnarlaus- ari gagnvart því. Indira Gandhi var einhver helzti leið- togi síðari tíma, elskuð og dýrkuð af milljónum. Hún naut mikillar viðurkenningar um allan heim, bæði í vestri og austri. En hún hafði eignazt hatramma fjandmenn. Indiru er lýst sem tákni „kvenlegrar mýktar”. En í raun var hún „jámfrú”. Persónulega hefur hún vafalaust verið töfrandi. En hún beitti á valdaferli sínum iðulega mikilli óvægni gagnvart andstæðingum sínum. Indland er sundurleitt. Menn af trúflokki sikka krefjast aðskilnaðar fyrir Punjab-hérað. Þeir hafa beitt hermdar- verkum. Aðskilnaðarsinnar eru öflugir í Kashmir. Múhameðstrúarmenn eru tíundi hluti þjóðarinnar og una illa veldi hindúa. Þegar Indland hlaut sjálfstæði fékk mið- stjómin mikil völd í stjórnarskránni. Stjóm Indiru hefur margsinnis leyst upp stjómir ýmissa fylkja og tekið mál- efni þeirra að sér, þegar ríkisstjórninni geðjaðist ekki að því, sem fram fór í fylkjunum. Indira var dóttir Jawaharlal Nehrus, fyrsta forsætis- ráðherra Indlands. Hún varð forsætisráðherra 1966, ekki löngu eftir lát föður síns. Indira lagði sig fram um að bæta lífskjör hinna fátækustu og eyða fordómum. Þetta hefur ekki tekizt. Hagur Indverja hefur lítið batnað og vanda- málin eru svipuð og voru. Indira var einn helzti leiðtogi þeirra þjóða, sem fara vilja bil beggja í deilum risaveld- anna. Það tókst henni vel, enda er hennar nú saknað beggja vegna járntjalds. Talað er um Indland sem stærsta lýðræðisríki heims. En í raun hefur lýðræði aldrei fengið að festa þar rætur. Þó munu margir segja, að hefði afls Indiru Gandhi ekki notið við, hefði Indland fyrir löngu klofnað. Indverjar hafa fyrirgefið henni ýmislegt. Hún lenti í vanda árið 1975, þegar hæstiréttur úrskurðaði hana seka um kosningasvindl árið 1971. En hún sagði ekki af sér, heldur lýsti yfir neyðarástandi, innleiddi ritskoðun og lét handtaka stjómmálaandstæðinga. Síðar var hún sýknuð. Um tíma réðu andstæðingar hennar landstjórninni og' fórst illa. Indverjar kölluðu Indiru sína þá aftur til valda. Indira Gandhi var því margslungin persóna. Hún skipaði tvímælalaust sess sem einhver helzti þjóðarleiö-; togi í heimi á síðustu áratugum. Nú er skarð fyrir skildi. Syni hennar mun ætlað að taka við stjóminni, en hann er lítt reyndur. Raunar má spyrja, hversu mikið lýðræðið sé í landi, þar sem forsætisráðherradómur virðist ganga í erfðir. Brátt mun koma í ljós, að hve miklu leyti Indland hefur verið Indira. Haukur Helgason. „Það er vissu/ega merkium vonda samvisku hjá BSRB að heimta sakaruppgjöf. Syndakvittun ríkisstjómarinnar Það hefur vakið talsverða athygli í meðal manna, að BSRB gerði það að sérstöku skilyrði fyrir undirritun samninga viö ríkið að felld yrðu niður öll mál sem hugsanlegt væri að reka gegn einstökum félagsmönnum eða félaginu af hálfu ríkisins vegna ólöglegra aðgeröa. Svo mikil áhersla var lögö á þessa kröfu að samningar töfðust um heilan dag vegna þessa. Að lokum kom yfirlýsing þar sem ríkisstjórnin og einstakir ráðherrar lýsa því yfir að af þeirra hálfu veröi ekki beitt neinum agaviðurlögum eða kært yfir meintum brotum ríkis- starfsmanna. Var þessi yfirlýsing látin duga. Svipaöar yfirlýsingar hafa veriö gefnar í lok verkfalla á hinum al- menna vinnumarkaði. Hefur þessi háttur verið harðlega gagnrýndur af aðilum sem standa utan samtaka at- vinnurekenda enda undarlegt aö gefa eftir allar skaðabætur sem sannanlega á að greiða. Kjallarinn HARALDUR BLÖNDAL HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR mál sem komin eru til vitundar hans hljóta því að halda áfram sína leið. Ríkisstjórnin afturkallar sínar kærur, — en það eitt út af fyrir sig þarf ekki að þýða aö ákæra verði ekki gefin út. Þar fyrir utan hafa einstaklingar kært og þær kærur þarf vitanlega að rannsaka áfram. Ríkisstjórnin á auðvitað eina örugga leið og formlega rétta. Það er að dómsmálaráðherra gefi út al- menna sakaruppgjöf til opinberra starfsmanna vegna meintra brota meðan á verkf allinu stóð. Rétt er þó að hafa i huga að slík al- menn sakaruppgjöf fellir ekki niður skaðabótaskyiduna. Hún stendur áfram. Fyrri brot Og þá má enn velta einu atriði fýrir sér. Fellur hin ólöglega vinnustöðvun áður en verkfallið hófst undir yfirlýsingu ríkisstjómar- „Ríkisstjórnin hefur það ekki á valdi sínu að stöðva ákæruvaldið í störfum sínum.” Munur En þó er munur á yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar og samningum vinnu- veitenda og launþega. 1 yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ekkert talað um kröfur á hendur BSRB eða öðrum samtökum opinberra starfsmanna. Yfirlýsingin kemur þannig ekki í veg fyrir að Háskóli Islands haldi áfram skaöabótamáli sínu og hún kemur ekki í veg fyrir að Hafrannsókna- stofnun stefni BSRB fyrir ólöglega kyrrsetningu á skipum stofnunar- innar. Hún kemur ekki í veg fyrir að Skipaútgerð ríkisins krefjist bóta fyrir ólöglegar tafir sem útgerðin varð þar fyrir og hún kemur ekki einu sinni í veg fyrir að fjármála- ráðuneytið krefji BSRB um skaða- bætur fyrir að stöðva kennslu í fram- haldsskólum. Og vitanlega getur ríkisvaldið ekki bundið hendur einstakra fyrirtækja i landinu eins og t.d. Flugleiða hf. eða Eimskipafélags Islands hf. Er í því sambandi rétt að rifja upp að fyrir nokkrum árum fóru flugumferöar- stjórar í verkfall í Þýskaiandi. Verkfallið var ólöglegt. Flugfélög stefndu stéttarfélagi flugumferöar- stjóra og var félagið dæmt til þess aö greiða gífurlegar skaðabætur, varð eignalaust en átti áður miklar hús- eignir eins og verkalýðsfélaga er siður. Vond samviska Þaö er vissulega merki um vonda samvisku hjá BSRB að heimta sakaruppgjöf. Þessi krafa sýnir aö forustan er þess sér vel meðvitandi að sumir af einstökum félagsmönn- um BSRB voru látnir framkvæma hluti sem voru ólöglegir. Má taka dæmi af tollvörðunum á Keflavíkur- flugvelli. Þar ætlaði BSRB aö pina tollverðina til þess að neita aö vinna lögboðin störf, — og þegar þeim barst réttilega uppsagnarbréf vildi forustan ekki bakka í málinu. Vinnu- og forsjármöguleikum tollvarðanna átti að fóma á altari verkfallsguðs- ins. Skynsamir menn komu þó vitinu fyrir þá sem iengst vildu ganga og tollverðir sinntu sínum störfum eftir að þau höfðu betur verið útskýrð. Annað dæmi er af símamönnunum á Isafirði. Það fólk hefur áreiöanlega ekki tekið það upp hjá sjálfu sér að sinna ekki lögboðinni þjónustu. Fyrirskipunin kom að sunnan. En þeir sem fyrirskipunina gáfu, hafa vitað upp á sig skömmina. Þess vegna er nú beöið um miskunn. Takmarkað gildi Nú er það út af fyrir sig að ríkis- stjórnin gefi út svona yfirlýsingu. En hvaöa máli skiptir hún? Aö einu leyti er réttarstaða opin- bers starfsmanns og venjulegs laun- þega misjöbi. Opinber starfsmaður nýtur sérstakrar réttarverndar í starfi sínu og ber sérstaka refsi- ábyrgð. Það að hindra opinberan starfsmann i starfi sínu varðar refs- ingu. Ríkisstjómin hefur þaö ekki á valdi sínu að stöðva ákæruvaldið i störfum sínum. A.m.k. veit ég ekki til þess að ríkissaksóknari hafi skrifaö undir samningsgerðina. Þau innar. Aimenna reglan um túlkun á yfirlýsingum sem þessum er að þær séu túlkaðar mjög þröngt. Yfir- lýsingin nær einungis til verkfallsins. Þar af leiðir aö hún getur alls ekki náð til hinnar ólöglegu lokunar Ríkis- útvarpsins og þeirra lagabrota er þá voru framin. Þau mál hljóta að halda áfram. Allt annaö er að viðurkenna að sú vinnustöðvun hafi verið rétt- mæt og innan ramma verkfalls BSRB. Óskýr lög En lagaákvæði eru óskýr um marga þessa hluti og þó öllu heldur vantar skýra túlkun laganna. Það hefur verið vandamál aö mjög fá mál vegna verkfaila hafa farið fyrir dómstóla. Verkalýðsfélögin hafa barist eins og ljón gegn öllum tilraunum til þess að menn leituöu- réttar síns fyrir dómstólum svo að í ljós kæmi hvað raunverulega séu lög í landinu. Þess vegna hafa þessir syndaaflausnarsamningar verið gerðir í lok verkfalla. En nú virðist lag fyrir þá sem trúa því að lögin eigi að ráða í landinu. Og það skulu menn hafa hugfast aö það dugar ekki að hafa einungis lög. Það verður líka að gefa dómstólun- um tækifæri til þess að túlka lögin og setja Iögunum stað. Það gengur aldrei að framkvæma lagatúlkun með valdi eins og gert hefur verið i vinnudeilum á Islandi fram til þessa. Haraldur Blöndal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.