Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1984, Page 28
32
DV. FÖSTUDAGUR 2. NOVEMBER1984.
Andlát
Kristinn Einarsson klæðskerí, Holta-
gerði 48 Kópavogi, lést í Landspítalan-
um miðvikudaginn 31. október.
Þorfinna Guðmundsdóttlr, Sólbakka
Fossvogi, er andaðist á Borgar-
spítalanum 26. október, verður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu þriðjudag-
inn 6. nóvember kl. 15.
Fundir
Landsfundur Samtaka
um Kvennalista
verður haldinn dagana 3. og 4. nóv. 1984 að
Hótel Loftleiðum, Kristalssal.
Dagskrá fundarins hefst kl. 9 árdegis.
Konur, vinsamlega tilkynnið þátttöku á
skrifstofu Kvennalistans í Kvennahásinu,
sími 13723. Landsfundarnefnd.
Félagsfundur JC IMes
3. félagsfundur JC Nes verður haldinn mánu-
daginn 5. nóv. kl. 20 í hliðarsal Hótel Sögu.
(Gengið inn um aðaldyr).
Á dagskrá verður meðal annars:
Hin árvissa ræðukeppni sem að þessu sinni
verður á milli JC Nes og JC Breiðholt.
Umræða dagsins verður:
A að stofna heimili fyrir misskilda karlmenn.
Inntaka nýrra félaga. Kaffiveitingar. Allir
velkomnir.
Valskonur
Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn að
Hótel Loftlelðum (kjallara) þriðjudaginn 6.
nóvember kl. 20.30. Áriðandi að sem flestlr
mæti.
Fræðslufundur Hagræðingar-
félags íslands
Mánudaginn 5. nóvember heldur Hagræðing-
arfélag íslands fyrsta fræðslufund félagsins á
þessum vetri. Fundurinn er haldinn í Borgar-
túni 6, fjórðu hæð. Fundarefnið er fjölbreytt
að venju og er efni hans eftirfarandi: Notkun
tölvu við hagræðingarstörf, Gunnar Ingi-
mundarson viðskiptafræðingur. Endurnýjun
innanfrá — Framleiðniátak, Davíð Guð-
mundsson tæknifræðingur og Reynir Kristins-
son tæknifræðingur. Vöruþróun, Þorsteinn Oli
Sigurðsson tæknifræðingur. Hvaðerlogistik?,
Jón Sævar Jónsson verkfræðingur. Japanskar
framleiðslustjórnunaraðferðir, dr. Ingjaldur
Hannibaisson verkfræðingur. Hagræðingarfé-
lagið var stofnað síðastliðið vor og urðu fé-
lagsmenn þá strax um eitt hundrað. Markmið
þess er að efla þekkingu og áhuga á hagræð-
ingarmálum og miðla nýjungum og reynslu
til félagsmanna. Fræðslufundir hafa áður
verið haldnir með svipuðu formi í nokkur ár
af stofnendum félagsins. Ýmsir sem vinna að
þessum málum hafa ekki vitað af þessum
fundum. Er nú stefnt að því með stofnun fé-
lagsins og starfsemi þess að gefa fleiri kost á
að fylgjast með á þessu sviði. Áhugamenn um
hagræðingarmál geta skráð sig í félagið á
fundinum.
Golf
Golfskóli Þorvaldar
Golfskóli Þorvaldar tekur aftur til starfa nú i
byrjun nóvember. Kennsla er bæði fyrir byrj-
endur og lengra komna i íþróttinni og öllum
opin. Kennslan fer fram innanhúss og verður í
iþróttahúsinu Asgarði í Garðabæ. Allar
nánari upplýsingar eru gefnar i sima 34390.
Aðalfundir
Aðalfundur pöntunarfélags Náttóru-
læknlngafélags Reykjavíkur verður
haldinn miðvikudaginn 7. nóvember kl. 20.30
að Laugavegi 25. Venjuleg fundarstörf.
Stjómin.
Aðalfundur UBK
Aðalfundur knattspymudeildar UBK verður
haldinn í félagsheimilinu laugardaginn 3.
nóvember kl. 13. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Basarar
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Basarinn og flóamarkaðurinn verður að Hall-
veigarstööum sunnudaginn 4. nóvember kl.
14. Mikið úrval verður af handavinnu, ullar-
vörum, s.s. peysum, vettlingum og hosum,
fallegar svuntur, lukkupokar og margt fleira.
Þeir sem ætla að gefa okkur era beðnir að láta
vita í sfmum 81759 og 14617.
Basar í safnaðarheimili
Langholtskirkju
Basar verður í Safnaöarheimiii Langholts-
kirkju laugardaginn 3. nóvember kl. 14.
Urval handunnina muna, heimabakaðar kök-
ur, happdrætti.
Allur ágóði rennur í byggingarsjóö Langholts-
kirkju í Reykjavik.
Móttaka á munum kl. 17—22 föstudag og kl.
10—12 laugardag.
Kvenfélag Langholtssóknar.
Kökubasar
íþróttafélags
fatlaðra
verður að Hátúni 12, Sjálfsbjargarhúsinu
(austurenda) laugardaginn 3. nóvember kl.
14. „Bæjarins bestu kökur”.
Ég imdirritaður þakka öllu starfsfólki Búnaðar-
banka íslands ásamt bankastjórum, Birni, Jóni
og Stefáni, fyrir frábært samstarf. Vegna brott-
farar til Noregs.
Hörður Guðbrandsson,
sölumaður.
Þakkarávarp
Innilegt þakklæti votta ég öllum þeim sem auðsýndu mér hlý-
hug og vináttu á áttræðisafmæli minu 24. október sl. og glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og símtölum.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhann L. Einarsson,
Hlíðarvegl 48
Kópavogi.
Verkakvennafélagið
Framsókn
minnir á hinn árlega basar sinn á Hallveigar-
stöðum 17. nóvember nk. Byrjað er að safna
basarmunum og væntir stjórn félagsins að
félagsmenn og velunnarar koml munum á
basarinn i skrifstofu félagsins, Hverfisgötu
8—10 (Alþýðuhúsið), á venjulegum skrifstofu-
tíma.
Kvenfólag
Kópavogs
Félagskonur, tekið verður á móti basarmun-
um í félagsheimilinu föstudagskvöldið 2. nóv.
frá kl. 20—22, laugardaginn 3. nóv. frá kl. 14—
18 og sunnudagsmorgun til hádegis.
Kvenfélag Hreyfils
verður með basar, kökusölu og flóamarkað í
Hreyfilshúsinu 11. nóvember. Konur eru
beðnar að gera skil fyrir fimmtudagskvöldið
8. nóvember.
Tapað -fundið
Kvenmannsúr fannst í
Þverholti
Merkt kvenmannsúr með festi
fannst fyrir utan Þverholt 11. Upp-
lýsingar á afgreiðslu DV, Þverholti 11.
Páfagaukur tapaðist
Hann.er hvítur og ljósblár, aðallega hvítur,
og tapaðist úr miðbæ Kóðavogs 27. október sl.
Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið
eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma
45738. Fundarlaun.
Læða í óskilum
Þessi læða er í óskilum f Einholti 11. Hún er
svört, hvít og brún, með brúnt trýni og fannst
hún fyrir mánuði. Upplýsingar í síma 15893.
Happdrætti
Dregið hefur verið í happdrætti knatt-
spymudeildar Víkings.
Vinningsnúmer eru sem hér segir: 2039,
502,7193,7186,1659.
Knattspyrnudeild Víkings þakkar veittan
stuðning.
Tilkynningar
Frá Kammermúsíkklúbbnum
Fyrstu tónleikar á starfsárinu verða á
Kjarvalsstöðum á laugardaginn kemur, 3.
nóvember, og hefjast kl. 21.00. Efnisskráin
verður hin sama og ráðgert hafði verið að
flytja 21. október en af þeim tónleikum gat
ekki orðið. Leikin veröa eingöngu kammer-
tónverk eftir Mozart:
Flautukvartett nr. 1 í D-dúr, K.285, Tríó
fyrir klarinett, víólu og píanó í Es-dúr, K.498
(Kegelstatt) og Píanókvartett nr. 2 í Es-dúr,
K.493.
Flytjendur verða Hrefna Eggertsdóttir
(píanó), Kjartan Oskarsson (klarinett),
Martial Nardeau (flauta), Rut Ingólfsdóttir
(fiðla), Helga Þórarinsdóttir (víóla) og Nora
Kornblueh (selló).
Fjórir sýna í
Listamiðstöðinni
1 Listamiðstöðinni (nýja húsinu við Lækjar-
torg á 2. hæð) sýna nú fjórir listamenn. Eru
það þau Anna Ölafsdóttir Björnsson sem
sýnir 9 myndverk, dúkristur. Kallar hún
sýninguna „Blikur”. Ingiberg Magnússon
sýnir 10 krítarmyndir er hann kallar „Trjá-
stúdíur” og eru verkin unnin í Danmörku (í
ágúst og sept. sl.) en þar dvaldi Ingiberg í
boði Norræna félagsins f Odense. Santiago
Harker frá Kolumbíu sýnir Ijósmyndir sem
hann kallar „Hulið”. A sýningunni eru 17
ljósmyndir um mannlíf í Bogota, fæðingar-
stað höfundar. Gunnar Hjaltason gullsmiöur
sýnir 16 vatnslita- og pennateikningar og
kallar hann sýninguna „Smámyndir”.
Ársþing FSf
Þing FSI verður haldið 2. des. í Félagsheimili
Kópavogs og hefst kl. 10.00 árdegis. Félög
þurfa að senda tillögur og annað efni sem
fram á að koma 10 dögum f yrir þing til FSI.
KI. 16.30 sama dag verður fimleikasýning i
Laugardalshöll og þar munu hópar frá öllum
fimleikadeildum koma með mismunandi við-
fangsefni úr ævintýrinu Rauðhetta og „fim-
leika”úlfurinn. Nýstárleg sýning fyrir fjöl-
skylduna.
StjórnFSL
Grafíkmappa félagsins
íslensk grafík er komin út
Hún verður til sýnis og sölu laugardaginn 3.
nóvember og sunnudaginn 4. nóvember í Gall-
eríi Borg við Austurvöll. Forkaupsrétthafar
geta sótt möppuna i Gallerí Borg þessa daga
frá klukkan 12—18. Upplagið er 50 eintök og
verð möppunnar er 7.500 krónur. I hverri
möppu eru fimm myndir.
Listamennirnir sem að þessu sinni eiga
verk í grafíkmöppunni era Ásdís Sigurþórs-
dóttir, Jónína Lára Einarsdóttir, Kjartan
Guöjónsson, Margrét Zóphóníasdóttir og
Vignir Jóhannesson. Myndirnar era unnar í
sáldþrykk, tréristu og dúkristu.
Þetta er í fjórða sinn sem Islensk grafík.
gefur út grafíkmöppu og hafa fyrri möppur
ætíð selst upp. Eftir næstu helgi verður hægt
að nálgast möppuna í Gallerí Borg þar til hún
er uppseld.
Leiðbeiningastöð húsmæðra
á Hallveigarstöðum
Kvenfélagasamband Islands vill vekja at-
hygli á því að Leiðbeiningastöð húsmæðra á
Hallveigarstöðum verður fyrst um sinn opin
frá kl. 10—12 árdegis og kl. 2—4 siðdegis alla
virka daga nema laugardaga.
Leiðbeiningastöðin veitir hagkvæmar upp-
lýsingar um heimilisstörf, aðstoðar viö val
heimilistækja samkvæmt umsögnum er-
lendra rannsóknastofnana i neytendablööum
og gefur almenningi kost á ókeypis leiðbein-
ingum í sima 12335.
Kvenfélagasamband Islands gefur út tima-
ritið Húsfreyjuna, rítið kemur út fjórum
sinnum á ári. Askriftarsimi er 17044.
Fræöslurit Kvenfélagasambands Islands
fást á skrifstofu leiðbeiningastöðvarinnar á
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, efstu hæð.
Verð hvers rits er kr. 50,- Þessi rit eru til sölu:
Frysting matvæla, Gerbakstur, Glóðar-
steiklng, Nútimamataræði, Matur og hrein-
læti, Svona gerum við þegar við þvoum okkar
þvott, Blettahreinsun, Jólakveðjur, Félags-
málogfundastjórn.
KFUM og KFUK
Amtmannsstíg 2b.
Almenn samkoma sunnudagskvöld kl. 20.30.
Ræðumaður Guðmundur Guðmundsson,
framkvæmdastjórí barna- og unglingastarfs
félaganna. Einsöngur: Laufey Geirlaugsdótt-
ir. Tekið á móti gjöfum í byggingarsjóð.
Kaffiterían opin eftir samkomuna. Allir vel-
komnir.
Kvennaathvarfið
er opið allan sólarhringinn, sími 21205, húsa-
skjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir
nauðgun. Skrifstofa samtakanna er að Hall-
veigarstöðum, sími 23720. Opið er alla virka
daga kl. 14—16. Pósthólf samtakanna er 405.
Gíróreikningur 44442-1.
Ráðstefna um hagsmuna-
og réttindamál heima-
vinnandi
húsmæðra
verður haldin á vegum Bandalags kvenna i
Reykjavík í Súlnasal Hótel Sögu laugardag-
inn 3. nóv. Hefst hún kl. 9.30 og stendur til kl.
16.
Erindi flytja: Margrét Thoroddsen,
deildarstjóri hjá Tryggingastofnun, Guðrún
Erlendsdóttir hæstarréttarlögmaður, Sigur-
björn Þorbjömsson ríkisskattstjóri. Margrét
Matthiasdóttir húsmóðir.
Fyrirspumir og umræður.
Ráðstefnan er öllum opin.
Kattaeigendur,
merkið ketti ykkarl
Þeir kattaeigendur sem ekki merkja ketti
sina geta átt það á hættu að köttum þeirra
verðilógað.
Kattavinafélagið.
Námskeið hjá Sjálfsbjörg
Dagana 9. og 10. nóvember nk. verður haldið
námskeið i Olfusborgum um f atlaða og kynlíf.
Námskeiðið er ætlað fötluðum, starfsfólki
stofnana er fatlaðir dveljast á og öðrum þeim
er áhuga hafa á efninu. Þátttökugjald er kr.
500 og er fullt fæði og gisting innifalið í þeirri
upphæð. Þátttaka tilkynnist í sima 29133 og
þar era nánari upplýsingar veittar.
Jólaföndurnámskeið
Jólaföndurnámskeið að hefjast hjá
Heimiilsiönaðarskólanum.
Dúkaprjón 5. nóvember.
Myndvefnaður 13. nóvember.
Bamafatasaumur 14. nóvember.
Vefnaður 14. nóvember.
Innritun að Laufásvegi 2.
Borgfirðingafélagið
í Reykjavík
heldur sitt árlega kaffiboö fyrir eldra fólk úr
Mýra-og BorgarfjarÖarsýslum nk. sunnudag,
4. nóvember, í Domus Medica kl. 2—6. Hitt-
umst öll og rifjum upp góöar minningar.
Landsvirkjun stad-
festir álsamninginn
— Ólafur Ragnar Grímsson telur Alusuisse halda
áfram fyrrisvikum
Stjóm Landsvirkjunar samþykkti á
fundi sinum í gær heimild til aö staö-
festa fyrir hönd stofnunarinnar
nýgeröan samning milli álviöræðu-
nefndarinnar og Alusuisse.
Olafur Ragnar Grímsson, fulltrúi
Alþýðubandalagsins í stjórninni,
lagöist hins vegar gegn staöfestingu
samningsins. I sérstakri bókun sem
hann lagði fram á fundinum segir aö
orkuverðið til Ahisuisse yröi samkvæmt
nýja samningnum töluvert undir
kostnaðarverði á rafmagni framleiddu
í núverandi virkjunarkerfi Landsvirkj-
unar. Einnig er þar bent á aö meö
þessum samningi sé Landsvirkjun aö
halda inn á þá hættulegu braut aö
tengja orkuverð afkomu stóriðjufyrir-
tækjanna og heimsmarkaðsverði á
málmum. Endurskoöunarákvæöin í
samningnum telur hann mjög óljós og
Islendingum óhagstæö.
Þá segir í bókuninni aö óhjákvæmi-
legt sé aö geta þess að Alusuisse sé
sleppt við aö hlíta úrskurði gerðar-
dóms í deilumálum fyrri ára. Fyrir-
tækið fái að sleppa meö 100 milljón
króna sekt þegar krafa Islendinga um
endurskoðun var þrisvar sinnum
hærri, enda sýni nýjar upplýsingar um
áriö 1983 aö Alusuisse haldi áfram
fyrri svikum, segir í bókun Olafs
Ragnars.
-OEF.
Þessar ungu stúlkur héldu á dögunum báöar 12 ára og helta Guðfinna Snorra-
tombólu tll slyrktar Biindravinafélag- dóttir og Laufey Harðardóttlr.
inu og söfnuðu alls 1100 kr. Þær eru DV-mynd: Sveinn.