Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1984, Síða 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 21. NOVEMBER1984.
Grímuklæddi árásarmaðurinn ófundinn:
„SVONA MENN REYNA
ALLTAFAFTUR"
— segir Trausti Guðmundsson, faðir stúlkunnar sem ráðist var á
Faðir stúlkunnar sem ráðist var á i Seljahverfi segir að minnsta vísbending geti
komið lögreglunni á sporið.
„Eg vil biðja fólk um að spyrja sig
hverjir gætu oröiö næst fyrir árás,
barn, bamabarn, systir eða vinkoná.
Svona menn gefast ekkert upp og
reyna alltaf aftur,” sagði Trausti
Guðmundsson, faðir stúlkunnar sem
ráðist var á af grímuklæddum manni
í Seljahverfi um helgina, í samtali
við DV. Árásarmaðurinn er enn
ófundinn. „Eg vil biöja fólk eindreg-
ið aö hafa augu og eyru opin, því all-
ar minnstu ábendingar gætu komiö
lögreglunni að liði og leitt til hand-
töku árásarmannsins. Þá dettur mér
í hug afgreiðslufólk í sjoppum og
strætisvagnabílstjórar sem eiga
mikil samskipti viö alls konar fólk
Ennfremur að árásarmaðurinn gæti
vel verið úr einhverju öðru hverfi í
Breiðholtinu en Seljahverfi, s.s.
Bakka-, Fella- eða Hólahverfi. ”
Samkvæmt lýsingu var maöurinn
með grímu fyrir andlitinu sem líktist
eins konar hauskúpu. Hann var í
brúnleitri vatteraðri úlpu sem náði
niður fyrir mitti. Vel í meðallagi hár
með ljóst slétt hár sem náöi niður á
úlpukragann. „Þegar árásarmaður-
inn hljóp á brott sáu dóttir min og
móðir hennar að hárið á honum
flaksaðitil.”
„Það var um fjögurleytið aðfara-
nótt laugardags að við heyrðum
skerandi neyðaróp frammi í forstof-
unni en það tók litla stund að átta sig
á því hvað var á seyði því við búum í
raðhúsi. Þegar konan mín kom að
var útihuröin opin og þá sá hún hvar
maður með grímu fyrir andlitinu
bograði yfir dóttur okkar úti á gang-
stétt við bílskúrinn. Hann hélt fyrir
vit hennar en telpan hélt dauðahaldi í
stuðarann á bílnum mínum. Þegar
konan mín hljóp að manninum og
reif í hann, þá fyrst lét hann segjast
og sleppti takinu og hljóp út í myrkr-
ið. Það aö hann var svo bíræfinn aö
þora alla leið inn í forstofu á eftir
telpunni og draga hana út úr húsinu
gefur til kynna aö þetta getur ekki
verið heilbrigöur maöur. Það voru
moldarför eftir skóna hans á for-
stofuveggnum þar sem hann spymti
í þegar dóttir mín reyndi aö streitast
á móti.”
Mikið sálarlegt áfall
„Það er rangt sem komiö hefur
fram í blöðum um aö dóttir mín hafi
komið heim af skemmtistaðnum
Traffic með rútu. Rútan sem átti aö
keyra krakkana heim var yfirfull og
því fékk hún far meö tveimur vinkon-
um sínum heim og gekk þess vegna
alla leið frá Kambaseli sem er nokk-
uð langur spölur. Rútufarið er þó
innifalið í aðgangseyrinum en svo
virðist sem þær séu oftast yfirfullar
og þá verða krakkarnir að bjarga sér
sjálfir.
Telpan mætti árásarmanninum
við dagheimilið Seljaborg en veitti
því fyrst athygli að henni væri veitt
eftirför við strætisvagnabiðstöðina
við Hjallasel og Flúöasel en þaöan er
um þriggja mínútna gangur heim.
Rúmlega 100 „raunverulegir” milljónamæringar á íslandi:
ÞEIR RÍKUSTU EIGA
FJðRUTÍU MIUJÓNIR
Ríkustu einstaklingar og hjón eiga
í kringum fjörutíu milljónir króna
skuldlausar samkvæmt opinber-
um skýrslum. Þetta eru þó aðeins
þrír einstaklingar og tvenn hjón sem
eru nærri þessu eignamarki. En 113
einstaklingar og hjón eru talin eiga
yfir tíu milljónir skuldlausar sem
eignarskattsstofn.
Þetta kemur fram meðal annars í
fylgiskjölum með þingsályktunartil-
lögu Jóns Baldvins Hannibalssonar
og annarra Alþýðuflokksmanna á
Alþingi um stighækkandi eignar-
skatt. Þar leggja þeir til þreföldun
eignarskattsins, úr um 500 í um 1.500
milljónir, með hásköttun á mesta
eignafólkið.
Fimm eignamestu einstaklingar
og hjón sem áöur er vikið að greiöa
nú að meðaltali 340 þúsund krónur í
eignarskattá þessu ári. Næstu níu
sem eiga raunar „aðeins” 20 milljón-
ir hvert greiða að jafnaði 188 þúsund
í eignarskatt á árinu. Framteljendur
eru hins vegar 172 þúsund talsins,
þar af 42 þúsund eignalausir og 98
þúsund svo til eignalausir, með að-
eins nokkur hundruð króna í eignar-
skatt hvert hjóna og einstaklinga.
Af þeim sem greiða eignarskatt
svo einhverju nemi eru flestir eða
rúm 26 þúsund með 1,3 milljónir í
meöaleign og 5.200 krónur í meðal-
eignarskatt.
Alþýðuflokksmenn leggja til að
skattbyrði eignarskatts fjölskyldu
með meðaltekjur, eigin íbúð og bíl
hækki ekki. Hins vegar greiðist
0,95% af eignarskattsstofni umfram
780 þúsund krónur, þó stighækkandi.
Lagt er til að sá milljarður sem fást
á meö þessari eignarskattsheimtu
komi í stað niðurfellingar á tekju-
skatti og til eflingar opinberra bygg-
ingarsjóöa.
Samkvæmt fylgiskjali meö tillög-
unni myndi milljarðurinn leggjast á
um fimm þúsund einstaklinga og
hjón, sem eiga yfir 2,4 milljónir
hvert og síðan á fyrirtæki.
-HERB
Mönnum sem leggja í Kola-
portinu, bifreidageymsl-
unni í Seðlabankahúsinu,
finnst allnokkur DV-svipur
á súlunum. Þœr eru í hin-
um þekktu rauðu og hvítu
litum DV, en það er líka
eini skyldleikinn. Blaðið
ber enga ábyrgð á þessum
stœðilegu súlum.
DV-mynd GVA.
Þegar hún var komin aö útidyrunum
og var að snúa lyklinum í skránni
heyrði hún skrjáf fyrir aftan sig og
þegar hún var að opna dyrnar þá
réðst á hana maöur með grímu fyrir
andlitinu og tókst að draga hana út
úrhúsinu.
Maðurinn gæti hafa veriö á vappi
um hverfið með grímuna tilbúna og
beðið eftir fórnarlambi. Telpan telur
sig hafa fundið af honum vínlykt og
það gæli líkaveriö að hann hafi ver-
iðaö koma úr gleöskap í nágrenninu.
Það segir sig sjálft að telpan varð
fyrir ákaflegu áfalli sálarlega sem
tekur langan tíma aö komast yfir
þótt manninum hafi ekki tekist að
meiða hana líkamlega. Hún fór í
skólann í gær en varð að fara heim
aftur. Mig langar til að það komi
fram að lokum að ég held að það sé
almenn skoðun fólks að löggjafar-
valdið taki svona mál ekki nógu
sterkum tökum og þessir menn gangi
meira eða minna lausir og þurfi lítið
að óttast,” sagði Trausti Guðmunds-
son.
-ER
FÆKKA
UNDAN-
ÞÁGUM TIL
SKIPS-
STJÓRNAR
Sjávarútvegsráðherra mun
innan skamms leggja fram laga-
frumvarp er kveöur á um að skip-
stjórnarmönnum sem starfa á und-
anþágum verði gefinn kostur á
styttra námi en nú er til að afla sér
takmarkaðra réttinda til skips-
stjómar.
Undanþágur í þessum efnum
hafa veriö tíðar á undanfömum
árum og hefur sérstök nefnd f jallað
um þetta mál. Nefndin hefur veitt
undanþágur frá lögunum um at-
vinnuréttindi vélfræðinga, vél-
stjóra og vélavaröa og lögum um
atvinnuréttindi skipsstjórnar-
manna en hefur sett sér vinnu-
reglur með það markmið að fækka
undanþágum frá því sem nú er. Nú
þegar er boðið upp á námskeið
fyrir vélstjóra sem starfaö hafa á
undanþágum.
Samkvæmt lögum er heimUt að
ákveða sérstakt gjald fyrir veittar
undanþágur sem renna skuli í sjóð
sem hafi þaö að markmiði aö veita
lán eða styrki til þeirra undanþágu-
hafa sem fara í nám til að afla sér
starfsréttinda. Stefnt er að því að
innheimta þessa gjalds hefjist frá
og með næstu áramótum.
Gott verð
fyrírafía
Frá Emil Thorarensen Eskifirði.
Hólmatindur SU 220 frá Eskifirði
seldi í Bremerhaven isfisk í gær-
morgun, 167 tonn. Mjög gott verð
fékkst fyrir aflann sem var að
mestu leyti karfi og ufsi, eða 5
milljónir 343 þúsund krónur.
Meðalverð á kíló var 31,86 krónur.
Skipstjóri í þessari veiðiferð var
Sturlaugur Stefánsson. -EH