Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1984, Page 18
18
DV. MIÐVIKUDAGUR 21. NOVEMBER1984.
Ásgeir Hvítaskáld skrifar um siglingar:
Draumar veröa að veruleika
wm 11->'* a, <
Þarna stendur Þorkell við bátsgrindina og hefur ástæðu til að
vera stoltur.
Gamla flughótelið útí Nauthólsvík
er nú notað undir svifflugusmíði og
siglingaklúbb. En í viöbyggingu þar
við er verið að smíöa risastórt segl-
skip. Eg gekk inn í þessa skemmu á
laugardagseftirmiðdegi og kom aö
manni sem var á kafi í stóreflis báts-
grind. Þarna var viðarilmur af fín-
ustu gerð. Þessi maður heitir Þorkell
Olafsson og er trésmiður.
,,Eg hef eiginlega aldrei munað
eftir mér öðruvísi en með þessa hug-
mynd í kollinum að smíða risastórt
seglskip og sigla út í heim. Eitthvaö
þangað sem menningin er einföld.
Svo ynni maður fyrir nesti hér og
þar, héldi svo áfram,” sagði Þorkell.
Ég kíkti út rennilegar línur skips-
ins á meöan hann hélt áf ram að tala.
„Dellan var svo sterk að mér
fannst strákar, sem höföu ekkert
gaman af að setja spýtu á flot, stór-
skrítnir. Þegar ég stálpaðist vissi ég
að ég myndi smíða seglskip en ég
vissi ekki hvernig skip, en ég vissi aö
það átti að fara blý í kjölinn. Svo ég
safnaði blýi í tunnu. Og nú á ég þessi
2,5 tonn sem eiga að fara í kjölinn,”
sagði Þorkell.
Stefnið og kjölurinn er úr mahóní,
ekki drasl mahóní eins og er í vindla-
kössum heldur ekta rautt mahóní.
En stefnið er samanlímt úr mörgum
lögum.
„Ef límtrésverksmiðjan hefði ver-
iö komin þá hefði þetta ekki verið
neitt mál. En ég þurfti að fá lánaða
vörubílsgrind, setja hana upp á kant,
útbúa mót og sveigja hvert borö í. Eg
límdi eitt í einu, eitt á dag. Þannig
fékk ég þessa sveigju,” sagöi hann
og klappaöi voldugu og háreistu
stefninu.
Á kjölstykkiö var búiö aö reisa
bönd sem voru bara til bráöabirgða
og eru þvi kölluö skapalón. En utan á
skapalónin var búið að negla furu-
lista sem líka voru til bráðabirgða.
Hann var aö móta böndin innan í
þessa grind og þau voru líka saman-
límd úr mörgum lögum og úr mahóní
að sjálfsögðu. En mahóní er besti
viöurinn til skipasmiða, drekkur
minnst í sig, er mjúkur og skilyrði til
að hægt sé að kalla fleyið lystibát.
Þegar öll böndin eru komin og föst,
þá ríf ur hann alla gríndina utan af og
fer að byrða. Það verða mahónílistar
negldir í lím, hver ofan á annan. Þeir
verða kúptir aö neðan en með hvilft
að ofan, þannig að þeir falla hver
ofan í annan. Hann sýndi mér
teikningamar sem voru amerískar,
á þeim var stimpill Sigiingamála-
stofnunar og dagsetningin var 26.
marsl981.
„Það var ’81 sem ég byrjaði að
smíða en ég hef nú ekki smíðað
stanslaust. I millitíðinni hef ég byggt
yfir mig hús. En nú kemur skriður á
þetta. Faðir minn hefur hjálpað mér
og konan mín ber stundum lím á
fyrir mig og svoleiðis,” sagði Þor-
kell.
Skipið verður 38 fet á lengd og 11
fet á breidd, 7 tonn aö þyngd. Þetta
er nokkurs konar límtrésskip. Hann
sýndi mér eitt bandið sem var í
sveigju eins og ess. Eg gat ekki beygt
það um millimetra, alveg sama
hvernig ég tók á því.
,,Ég verð 2—3 ár í viðbót. Það
verður ákveðin frelsistilfinning að
sigla þessu.”
„Heldurðu að það sé erfiðisins
virði?”spurðiég.
„Þetta væri náttúrlega ekki hægt
nema vegna þess að ég nýt hvers
handtaks. Þá er lika allt mögulegt.”
„Finnst þér góður aöbúnaöur fyrir
siglingar á Islandi? ”
,JJei, alls ekki. Það er til dæmis
skömm að ekki skuli vera hitaveita í
þessum húsum hér. Hér er siglinga-
klúbbur, svifflugsmenn, Hjálpar-
sveit skáta, svo er flugskýli
Landhelgisgæslunnar hér skammt
frá, en það hefur aldrei verið lögð
hingað hitaveita. Hvað haldiö þið að
kosti að olíukynda heilt flugskýli. Eg
dæli vatni úr læknum en hann er ör-
sjaldan í gangi og vatniö skítkalt. Eg
er alveg í vandræðum með að hita
hér upp þegar ég er að líma. Þetta er
eini siglingaklúbburinn á landinu
sem hefur ekki heitt vatn. Og hann er
í Reykjavík; höfuðborg landsins.
Klúbbamir í Kópavogi, Garöabæ og
Hafnarfirði hafa mun betri aðstöðu.
Þó hefur verið gífurleg aukning á
siglingum síðustu ár og þá sérstak-
lega á stærri skútum.”
Sjálfur vil ég benda á að nú er búið
að byggja nýtísku bátahöfn úti í
Elliðavogi en hún er aöeins fyrir
hraðbáta.
Þorkell mun halda áfram að raöa
öllum þessum spýtum saman. Og
loks mun hann fá tvímastra skonn-
ortu með bugspjóti, sem verður
tignarleg með 5 segl á lofti. Aftast
verður skipstjórakáeta eins og í sjó-
ræningjaskipunum forðum daga.
Um borð verður sturta og tvö klósett.
Þessi skúta á eftir að verða raun-
veruleg, hægt og rólega mun hún
skríða saman. Og draumur litla
stráksins verður að veruleika.
Eg yfirgaf hann aö sinni og fór út í
myrkrið og haustkuldann. Ég sá ljós
blikka úti á Skerjafirði, það var
bauja. Borgarljós sindruöu i fjarska,
stjömurnar titmðu á svörtum
himninum. Þetta gat alveg verið sýn
í fjarlægri höfn. Um stund gat ég
ímyndað mér að ég væri staddur í
Singapore. Ljós kom út um lítinn
glugga á skýlinu og ég heyrði hann
var að hefla á fullu. Að hefla í átt aö
markmiði sínu.
Þakið
hrundi
ofan f
sundlaug
„Þaö hefðu allir steinrotast sem
fengið hefðu þetta í hausinn,” sagði
Karen Erlingsdóttir íþrótta- og
sundkennari á Laugarvatni, en
hluti þaks sundlaugar Iþrótta-
kennaraskólans á Laugarvatni
hrundi ofán í laug og út um alla
bakka aðfaranótt iaugardags.
„Það var mesta mildi að enginn
var í lauginni eða á bökkunum því
þarna hefði oröið stórslys. Klæðn-
ingin í loftinu var orðin full af raka
og alls kyns óþverra og að lokum
hefur þunginn verið orðinn þvílíkur
að allt lét undan”, sagði Karen.
Sundlaugin hefur nú verið tæmd
og verða engin sundtök tekin þar
fyrr en málum hefur verið kippt í
liðinn. -EIR.
Skemmd-
arverk í
Bolholtinu
Brotist var inn aö Bolholti 6 í
Reykjavík í fyrrinótt en þar eru
m.a. til húsa Jazzballetskóli Bám,
Leðurvömverslun Jóns Brynjólfs-
soníu- og skrifstofur. Húsiö er fjór-
ar hæðir og vom skemmdarverk
unnin á þremur. Innbrots-
mennimir höfðu svo á brott með
sér lausafé sem þeir fundu í húsinu.
__________________-EH
Starfslaunum
Reykjavíkur-
borgarúthlutað
Stjóm Kjarvalsstaöa samþykkti
nýlega að veita Valtý Péturssyni
listmálara starfslaun Reykjavíkur-
borgar í eitt ár frá og með 1.
desembernk.
Þetta var í fimmta sinn sem
starfslaununum var úthlutað og
umsóknir að þessu sinni voru 20.
Það era mörg handtökin sem þarf til að smíða helmsreisuskútu.