Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Side 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. DESEMBER1984.
Ekkert
erientskip
á veiðum
íland-
helginni
Ekkert erlent skip hefur veriö aö
veiöum innan 200 mílna landhelginnar
nú síðustu daga. Er það óvenjulegt því
að þrjár þjóðir hafa leyfi til veiða þar
og hafa þær ekki allar veitt upp í kvóta
sinn.
Færeyingar munu þó vera búnir
með hann, eða svo gott sem. Skipta
þeir Islandskvótanum á milli báta
sinna og mun einn bátur eiga eftir að
veiða sinn hluta.
Norðmenn eru hættir veiðum og
munu ekki hafa fyllt kvóta sinn og
Belgar eru langt frá því að vera búnir
með hann. Máttu þeir veiða 4400 tonn
eins og í fyrra en þá veiddu þeir hér
1800 tonn. Hafa þeir verið með 3 til 4
gömul skip aö veiðum. Þau hafa ekki
sést hér á miöunum í langan tíma og
hafa ekki veitt nærri því upp í kvóta
sinn í ár. -klp-
LÖGTÍR
á leiði
ástvinanna
Kerti
fyrirliggjandi.
Sendum í póstkröfu
hvert á /and sem er
Raftækja-
vers/un
Kópavogsh/f
Hamraborg 11 Kópav
Sími43480.
JARÐHITADEILD: EKKI
MEIRA, HAGVANGUR
Forstöðumaður jarðhitadeildar
Orkustofnunar hefur hafnaö tillögum
Hagvangs hf. um frekari uppsagnir
starfsmanna. Af 25 mönnum, sem eru
hættir eða hætta hjá stofnuninni og
samkomulag er um, eru tveir hjá jarð-
hitadeild. Hagvangur vildi fækka um
fimm í viðbót hjá þeirri deild.
Samkvæmt traustum heimildum DV
telur Guðmundur Pálmason, forstöðu-
maður jarðhitadeildar, rangt að fækka
frekar starfsmönnum að svo stöddu.
Deildin er sögð mjög góð vísindadeild
og eiga ýmsa möguleika til þess að afla
sér verkefna erlendis. Hún sinnir auk
þess miklum verkefnum fyrir hitaveit-
ur.
I skýrslu Hagvangs hf. er sá dómur
felldur um jaröhitadeildina að þar sé
uppi sérfræðilegt deiluefni og að
nokkru stjómunarlegt vandamál sem
lúti að mati á gildi yfirborðsrannsókna
eða bomnarrannsókna við háhitarann-
sóknir.
Þá er sagt að skipulagi sé enn í ýmsu
áfátt og að „einstakir deildarstjórar og
verkefnastjórar telji að viðhorf þeirra
fái ekki þá umfjöllun og meðferð sem
þeir sætti sig við í ákvörðunum sem
teknar era og varöa sérsviö þeirra”.
Þegar úttekt Hagvangs á Orkustofn-
un var gerð voru 56 starfsmenn af 149
hjá jarðhitadeildinni. Auk þess var
gert ráð fyrir 20—30 sumarmönnum.
Eins og áður hefur komið fram var
meginniðurstaða Hagvangs sú aö
Orkustofnun hefði ekki dregiö saman
seglin síðustu ár í samræmi við minnk-
andi verkefni.
Fyrir tveim áram var gerð, aö til-
hlutan Alþingis og ríkisstjórnar, 12 ára
áætlun um háhitarannsóknir sem heföi
orðið eitt af meiriháttar verkefnum
jarðhitadeildar. Alþingi hefur ekki
fylgt áætluninni eftir með f járveiting-
um og virðist hún úr sögunni.
HERB
Þessi bifreið endaði vafin utan um Ijósastaur. Ökumaður var 6 ferð í fljúgandi hélku é hraðbrautinni fyrir neðan Holtahverfi é Isafirði fyrir
skömmu. Bíllinn rann til é veginum og kastaðist utan í staurinn. öku manninn sakaði litið. Töluvert basl var aö né honum úr bifreiðinni.
EH/DV-mynd Valur.
Búsetumenn:
VILJA MEIRA AF PENINGUM
Fullur hugur er aö hefja bygginga. -
framkvæmdir hjá húsnæðissamvinnu-
félaginu Búseta á næsta ári ef nægilegt
fjármagn fæst. I fjárhagsáætlun
stjórnvalda er aðeins gert ráð fyrir 25
prósent aukningu fjárveitingar til
Byggingasjóðs verkamanna. Sam-
kvæmt nýjum lögum um húsnæöismál
er gert ráð fyrir að Búseti og önnur
félagasamtök fái fé lánað úr þeim
sjóði.
Þrjú Búsetafélög hafa sent inn láns-
umsóknir. I Reykjavík hefur verið sótt
um lán til byggingar 56 íbúöa, á Akur-
eyri fyrir 12 íbúöir og á Selfossi 8
íbúðir. Eins og sakir standa er fyrir-
sjáanlegt að ekki er nægilegt fé í Bygg-
ingasjóðnum.
„Við bindum vonir við að fjárveit-
ingar verði auknar til sjóðsins,” segir
Jón Rúnar Sveinsson, formaður
Búseta. Umræður era nú að hefjast á
Alþingi um fjárlagafcumvarp ríkis-
stjómarinnar.
Forráðamenn Búseta fóru nýlega á
fund félagsmálaráðherra. Hann lýsti
því yfir að hann væri allur af vilja
gerður til að greiða götu bygginga-
framkvæmda félagasamtaka. Jón
Rúnar sagði að Búseti væri búinn aö fá
vilyrði fyrir lóðum í Reykjavík. Vegna
óvissu í lánveitingum hefur ekki verið
sótt um ákveðnar lóðir. Undirbúningur
að teikningum er þó hafinn. Ef veitt
verða lán til Búseta er stefnt að því að
byr ja framkvæmdir í vor.
APH
Búseti í Borgarnesi
Nýlega var stofnað Búsetafélag á
Akureyri. Hafa því verið stofnuð fjög-
ur félög hér á landi. I Reykjavík, á
Akureyri, Selfossi og nú síöast í Borg-
arnesi. Að sögn Jóns Rúnars Sveins-
sonar, formanns Búseta, virðist vera
mtlrlll áhnai fvrir hi'iQnjpftissíímvinnii-
félögum úti á landi. Samvinnuhreyf-
ingin og mörg verkalýðsfélög hafa sýnt
Búseta mikinn áhuga. Víða er unnið að
undirbúningi félaga. Á Húsavik hefur
verið sett nefnd á laggirnar til aö und-
irbúa stofnun Búsetafélags.
APH
ALVÖRU VEITINGAHUS A VESTFJÖRDUM
Frá Val Jónatanssyni, ísafirði:
Nú loksins hafa Isfirðingar eignast
alvöru veitingahús. A dögunum var
fyrsta og eina veitingahúsið hér á Vest-
fjörðum opnað. Hlaut það nafniö Dokk-
an. I Dokkunni er hægt að fá allar veit-
ingar þar á meðal bjórlíkisem orðið er
mjög vinsæll drykkur hér á Fróni.
Húsakynnin eru mjög glæsileg og rúm-
ar staðurinn 220 manns.
Það eru þrír ungir og athafnasamir
menn sem standa að þessu fyrirtæki.
Þeir hyggjast hafa opið fjóra daga í
viku, frá fimmtudegi til sunnudags.
Stefnt veröur að því að hafa uppá-
komur og fá landsfræga skemmti-
krafta til að mæta. Veitingastjóri er
Stefán Hákonarson, matreiðslumeist-
ari Snorri Bogason og plötusnúður
Bjarni Hákonarson. -EH
Nýja veitingahúsið á Isafirði bætir úr brýnni þörf. Þar til nú hefur hvergi á Vest-
fjörðum verið veitingahús. DV-mynd Valur
Raf magnsmælar f rá Mývatni?
„Við erum að kanna málin og vita
hvaö við getum,” sagði Kristján
Yngvason, einn af eigendum fyrir-
tækisinsSniðils hf. í Mývatnssveit.
Kristján og samstarfsmenn hans
hafa að undanfömu kannað mögu-
leika á að koma upp samsetníngar-
verksmiðju á sviði rafmagnsiðnað-
ar. Verksmiðjan yrði staðsett við
Mývatn.
Unnið er að málinu í samvinnu við
norskt fyrirtæki. Ef af yrði myndu
Mývetningar setja saman hluti eins
og rafmagnsdælu úr einingum frá
norska fyrirtækínu. Einnig eru norð-
anmenn að kanna framleiðslu á raf-
magnsrofum og fleiru.
-KMU.