Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. DESEMBER1984. 17 sáttmálsörk lands og þjóðar Landið þitt ísland, 5. bindi er 272 blaðsíður. Litmyndir, teikningar og málverk eru 300. Þingvallakaflinn er 50 biaðsíður með 53 myndum, gömlum og nýjum, sérteiknaðri hringmynd með útsýni af barmi Almannagjár og innsettum örnefnum og loftmynd með innsettum búða- og staðanöfnum, auk Qölda sögulegra mynda frá ýmsum tímum. Vestmannaeyjakaflinn er 35 blaðsíður með 52 myndum og teikningum, gömlum og nýjum, þ.m.t. loftmyndir sem sýna allar eyjarnar, dranga og sker. Aðrar myndir sýna atvinnuhætti Eyjabúa og byggð fyrr á tímum allt fram til okkar daga, eldgosið og afleiðingar þess og margt fleira. Fyrsta uppsláttarorð bókarirmar er Ullarfoss (S-Þing) Foss í Skjálfandafljóti, í kvísl þeirri sem rennur austan Þingeyjar, milli hennar og Skuldaþingseyjar. Ullarfoss fellur niður í Skipapoll, sem er mikill hylur norðan eyjanna, allt að einn km í þvermál, girtur stuðlabergshömrum í hálfhring. Sagnir herma að fornmenn hafi leitt skip sín upp eftir Skjálfandafijóti og upp í Skipapoll. Síðasta uppsláttarorðið er Öxney (Snæ) Eyja í Skógarstrandarhreppi við mynni Hvammsfjarðar. Þar bjó Eiríkur rauði Þorvaldsson, þegar hann var útlægur gerr á Þórnesþingi fyrir manndráp. Sama sumar fann hann Qrænland (—» Eiríksstaðir Snæ) og mun það hafa verið árið 982. f tilefni þess var efnt til mikilla hátíðahalda á Qrænlandi sumarið 1982, þar sem forseti íslands og fleiri þjóðhöfðingjar og fulltrúar þeirra voru meðal gesta. Öxney er næststærst Skógarstrandareyja, norðvestur af Brokey sem er langstærst eyjanna á Breiðafirði. Á milli Öxneyjar og Brokeyjar er örmjótt sund sem heitir Mjódd en þar sem mjóst er heita Þröskuldar. Fjarar þar út milli eyjanna og má þá ganga á milli þeirra. Oft hefur verið búið vel f Öxney og fýlgjajörðinni margar góðar úteyjar og eru hlunnindi umtalsverð. Öxney fór í eyði 1970 en síðasti ábúandinn í eynni var Jónas Jóhannsson (1891—1970). Hann ritaði ýmsar blaða- og tímaritsgreinar um búnaðarhætti við Breiðafjörð og fleira. Sonur Jónasar er Jóhann (1912—), fæddur og uppalinn í Öxney, kennari, ráðunautur, bústjóri á Bessastöðum 1946—1956 og loks forstjóri Qrænmetisverslunar landbúnaðarins. BOKAUTGAFAN 0RN & 0RLYGUR Síðumúla 11, sími 84866

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.