Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Side 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. DESEMBER1984.
17
sáttmálsörk lands og þjóðar
Landið þitt ísland, 5. bindi er 272 blaðsíður.
Litmyndir, teikningar og málverk eru 300.
Þingvallakaflinn er 50 biaðsíður með 53 myndum,
gömlum og nýjum, sérteiknaðri hringmynd með útsýni af
barmi Almannagjár og innsettum örnefnum og loftmynd
með innsettum búða- og staðanöfnum, auk Qölda
sögulegra mynda frá ýmsum tímum.
Vestmannaeyjakaflinn er 35 blaðsíður með 52 myndum
og teikningum, gömlum og nýjum, þ.m.t. loftmyndir sem
sýna allar eyjarnar, dranga og sker. Aðrar myndir sýna
atvinnuhætti Eyjabúa og byggð fyrr á tímum allt fram til
okkar daga, eldgosið og afleiðingar þess og margt fleira.
Fyrsta uppsláttarorð bókarirmar er
Ullarfoss (S-Þing)
Foss í Skjálfandafljóti, í kvísl þeirri sem rennur austan
Þingeyjar, milli hennar og Skuldaþingseyjar. Ullarfoss
fellur niður í Skipapoll, sem er mikill hylur norðan eyjanna,
allt að einn km í þvermál, girtur stuðlabergshömrum í
hálfhring.
Sagnir herma að fornmenn hafi leitt skip sín upp eftir
Skjálfandafijóti og upp í Skipapoll.
Síðasta uppsláttarorðið er
Öxney (Snæ)
Eyja í Skógarstrandarhreppi við mynni Hvammsfjarðar. Þar
bjó Eiríkur rauði Þorvaldsson, þegar hann var útlægur gerr
á Þórnesþingi fyrir manndráp. Sama sumar fann hann
Qrænland (—» Eiríksstaðir Snæ) og mun það hafa verið árið
982. f tilefni þess var efnt til mikilla hátíðahalda á
Qrænlandi sumarið 1982, þar sem forseti íslands og fleiri
þjóðhöfðingjar og fulltrúar þeirra voru meðal gesta.
Öxney er næststærst Skógarstrandareyja, norðvestur af
Brokey sem er langstærst eyjanna á Breiðafirði. Á milli
Öxneyjar og Brokeyjar er örmjótt sund sem heitir Mjódd
en þar sem mjóst er heita Þröskuldar. Fjarar þar út milli
eyjanna og má þá ganga á milli þeirra. Oft hefur verið búið
vel f Öxney og fýlgjajörðinni margar góðar úteyjar og eru
hlunnindi umtalsverð. Öxney fór í eyði 1970 en síðasti
ábúandinn í eynni var Jónas Jóhannsson (1891—1970).
Hann ritaði ýmsar blaða- og tímaritsgreinar um
búnaðarhætti við Breiðafjörð og fleira. Sonur Jónasar er
Jóhann (1912—), fæddur og uppalinn í Öxney, kennari,
ráðunautur, bústjóri á Bessastöðum 1946—1956 og loks
forstjóri Qrænmetisverslunar landbúnaðarins.
BOKAUTGAFAN 0RN & 0RLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866