Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. DESEMBER1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Gasverksmiðjan
með ágöllum sem
fundið var að '82
JAPAN AFTURKALLAR
MÓTMÆLJ VIÐ HVAL-
VEKUBANNINU
Japan mun tilkynna Alþjóöa
hvalveiöiráðinu í dag, aö dregin veröi
Japanir mótmæla enn banni viö
verksmiðjuhvalveiöi.
til baka mótmæli Japans við veiði-
banninu á búrhvölum, sem ráöiö hafði
ákveðið. En Japan mun halda áfram
að veiöa búrhvali fram til 1988, að sögn
japanska utanrikisráðuneytisins.
Bann Alþjóða hvalveiðiráðsins
(IWC) hefur þegar tekið gildi. Aðal-
þunginn í framkvæmd bannsins liggur
í afstöðu Bandaríkjastjómar, sem hef-
ur hótaö efnahagsrefsingum (eða fisk-
veiöibanni í bandarískri efnahagslög-
sögu), þeim, sem ekki virða hvalveiði-
bannið.
Nýlega gerðu Japan og Bandaríkin
samkomulag, sem fól í sér leyfi fyrir
Japani að veiða í bandarískri f iskveiði-
lögsögu, ef Japan afturkallaði mót-
Endurbótum var ekki lokið 1983 — Hópar lögmanna til Indlands að undirbúa
kröfugerð á hendur Union Carbide
Skýrslur af athugun, sem gerð var á
öryggi gasverksmiðjunnar í Bhopal
1982, gáfu til kynna að þar væri ýmis-
legt aðfinnsluvert. Virðist sem margir
þeir gallar hafi ekki veriö lagaðir í júní
1983 og kannski ekki heldur núna,
þegar slysið varð.
Fimmtán smálestir af eiturgasi iáku
úr verksmiðjunni fyrir níu dögum og
hafa aö minnsta kosti 125 þúsund
manns orðið fyrir eitrun og 2.500 látið
lífið.
Stjórnarformaöur Union Carbide,
sem á og rekur verksmiðjuna, er
staddur á Indlandi og tilkynnti í gær að
fyrirtækið mundi veita eina milljón
dollara til viðbótar í neyðarhjálp fyrir
fórnardýr eiturlekans í Bhopal. —
Áður haföi fyrirtækið látið af hendi
rakna 840 þúsund dollara til hjálpar-
starfsins og tii stofnunar munaöar-
leysingjahælis.
Warren Anderson stjórnarformaður
sagði að fyrirtækið mundi greiöa
sanngjamar og eðlilegar skaðabætur
hinum slösuðu og aöstandendum
þeirra. En hann fékkst ekki til þess að
taka sér neina ákveðna upphæð í
munn.
Lögmaður í San Francisco hefur
fyrir hönd tveggja íbúa í Bhopal, sem
misstu fjölskyldur sinar, gert 15 millj-
arða dollara skaðabótakröfu á hendur
Union Carbide. — Hópar bandarískra
lögmanna eru komnir til Indlands til
þess að bjóða fólki aöstoð viö að kref ja
Union Carbide bóta.
1982 hafði hópur sérfræðinga frá Uni-
on Carbide í Bandaríkjunum athugað
öryggisaðstæður í verksmiðjunni í
Bhopal. Þeir skýrðu frá ýmsum
„alvarlegum áhyggjueftium” sem
gætu leitt til alvarlegs slyss, eða
skapað mikið hættuástand ef slys yrði.
Þeir fundu að leiðslur og ventlar láku,
að geymsla á birgðum var ótrygg, of
mikið álag og þrýstingur skapaöi leka-
hættu og tíð mannaskipti í starfs-
mannahaldi buðu heim hættu vegna
óvaninga.
Framvinduskýrsla ári síðar gaf til
kynna að þá væri enn unniö að endur-
bótum, en þeim væri ekki lokið.
Kona í Bhopal, blind á báðum augum af völdum gaseitrunar, er meðal 125
þúsunda sem orðið hafa fyrlr eitrun.
staðgreiðsluafsláttur
STENDUR FYRIR SÍNU
^y^ingarvörur
Hrewlætistaeki
ícPpadeild
Harðviðarsala
mæli sín við ákvörðun IWC. Samkomu-
lagið fól í sér að Japanir mundu veiða
allt að 400 búrhvali árið 1984 og aftur
1985. — Akvarðanir IWC öölast gildi og
samþykki aðildarríkja ef ákveðinn
frestur líður án mótmæla þeirra.
Annað skiiyrði samkomulags Japans
og Bandaríkjanna var, að Japan aftur-
kallaði einnig mótmæli sin við banni
IWC gegn öllum verksmiðjuveiðum á
hvölum, en það tekur gildi 1985 og ’86.
Japan hefur ekki tekið afstöðu til þessa
skUyröis enn. Japanir hafa kallað það
bann, sem mun ganga af hvalveiði-
iönaöinumdauöum, „ósanngjarnt”.
Japanir veiða árlega fisk fyrir um
500 milljónir dollara í fiskveiðilögsögu
Bandaríkjanna og er það tíu sinnum
meira en hvalveiðar þeirra gefa af sér.
HRINGBRAUT 120: Simar: Harðviðarsala................. 28-604 ^
Byggingavörur..................28-600 Málningarvörur og verklaeri.....28-605 I
Golfteppadeild.................28-603 Flisar og hreinlaetistaeki......28-430 J
renndu við eða hafðu samband
Umsjón: Þórir
< Guðmundsson og
Guðmundur Pétursson