Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 19
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. DESEMBER1984. 19 íðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíða Varla búin að slíta bamsskónum enn — Starfsemin hér í Gerðubergi er í raun tvíþætt. Hér fer fram bæði félagsmálastarfsemi og svo er þetta líka menningarmiðstöð fyrir Breið- holtið, segir Svanhildur Jóhannes- dóttir, forstöðumaður félags- og menningarmiðstöðvarinnar við Gerðuberg í Breiðholti. — Það var framkvæmdanefnd byggingaráætlunar í Breiðholti sem lét bygg ja húsið og því fylgdu ákvæði um að aöstöðuna hér ætti að nýta fyrir félagsmálastarfsemi hér í hverfinu. Hvaöa starfsemi er það, hvers k'onar félagssamtök funda í Gerðu- bergi? — Það er ótrúlegur fjöldi. Hér funda AA-samtökin, Bridgefélag Breiðholts, Rótarýklúbbar, JC-félög. Hér er félagsstarf fyrir aldraða, hér hefur Tónmenntaskóli Reykjavíkur fasta aöstöðu og Námsflokkamir. Hér eru reknir þrír dansskólar. Félag áhugamanna um heimspeki fundar hér og frímerkjaklúbbur. Það er f jöldinn allur af félagasamtökum, sem fá aðstöðu hér, sum einu sinni í mánuði.sumoftar. En hvað þá með aðstöðu til menningariðkunar? — Það er hér sýningaraðstaða á göngum og í anddyri. Það er allur gangur á því, hvort listamenn leigja sali hér, eða hvort við stöndum fyrir sýningum. Nú á aðventunni göngumst við fyrir bókmenntadag- skrám. Um helgina lásu rithöfundar hér úr verkum sínum, og helgina þar áöur fluttu nemendur úr Leiklistar- skólanum ljóðaprógramm. Góð aðsókn Hvað með aðsókn? Hefur hún verið góö? — Aðstaðan hér hciur verið mikiö notuð. Hingað koma 500 til 1000 manns á mánuði, og viö höfum það á tilfinningunni hér, að aösóknin aukist heldur. Það er hér líka veit- ingasalur, þar sem gólk getur komið inn og fengið kaffi og kíkt í blöð eða rabbað saman, þó ekki sé neitt sérstakt um að vera í húsinu. En þetta hefur ekki enn að minnsta kosti orðið svona rápstaöur. Hversvegna var þessi miðstöð reistí Breiðholtinu? Svanhildur Jóhannesdóttir — Ætli það hafi ekki fyrst og fremst verið til að færa menningar- og félagslíf inn í hverfið. Menn vildu ekki að þetta yrði hreint svefnhverfi. Það þekkja það allir líka, hvað mikiö er um félagsmálastarfsemi á Islandi. Það þurfti aðstöðu hér í hverfinu. Það er Reykjavíkurborg, sem sér um rekstur hússins, og þetta er reyndar eina húsið sem rekið er á vegum borgarinnar, sem má leigja pólitískum samtökum, vegna þess að hér er aðstaðan engin í hverfinu. Eg reikna þó ekki með að þaö verði til frambúðar. — Nú eru svona félags- og menn- ingarmiðstöðvar nýtt fyrirbæri til þess að gera. Sumir vilja líta á þær sem vöm gegn einangrun fólks, sem ver lífi sínu á vinnustöðum og heimilum, eða á ferð þe á milli. Kemur svona miðstöð í stað eldri umgengnishátta, kemur hún í stað baðstofunnar? — Þessi miðstöð er hugsuð sem samkomustaður. Þetta er einhver viðleitni til þess að vinna gegn þessari þróun, að allir lifi sínu lífi sér á parti, einangrist. Það verður að halda uppi samgangi milli fólks. Þetta er ekki félagsmiöstöð á sama hátt og ýmsar aðrar slíkar stofnanir. Eg vii heldur líkja starfseminni hér viö starfsemina í Norrsna húsinu og á Kjarvalsstöðum. Þetta er ekki staður sem er hugsaður fyrst og fremst fyrir eina kynslóð. Hér er fyrst og fremst hugað að þeim fullorðnu, en það hefur alltaf verið hugmyndin að þeir gætu haft börn í fylgd með sér. Þetta er fyrir alla. Nýjungar? Hvað með hugmyndir um frekari starfsemi, nýjungar? — Það kemur nú kannski með auknu rými. Þá langar okkur til þess að hlynna meira að menningu og listalífi hér. Það hefur til dæmis verið talað um að setja á stofn opin verkstæði, þannig, að hér kæmu listamenn og fagmenn í handverki og ynnu og kenndu við opin verkstæði, þar sem þeir sem áhuga hefðu, gætu komið inn og skoðaö og lært. Annars erum við varla búin að slíta barns- skónum hér. Við erum ekki enn búin að ákveða hvað viljum verða, þegar viðverðumstór. En á meðan heldur starfsemin áfram af fullum krafti? — Já, það er ljóst að það er full þörf á svona aöstööu, þó ekki væri nema vegna þess hvað þörfin fyrir fundapláss er mikil. Þetta á eflaust eftir að þróast áfram á næstunni. Reksturinn hefur gengið vel til þessa, og áhugi á að færa út kvíam- ar. gVílGAPOfif REKKJAN í FJÓRUM LITUM Opiðí öllum deildum: mánud. — fimmtud. 9—18.30 föstud. 9—20 og laugard. 15. des. kl. 9—22. Jón Loftsson hf, Hringbraut 121 Sími 10600 Húsgagnadeild ^ Sími 28601 ^ SÆNSK GÆÐAVARA Litli liósálfurinn hefur sannað ágæti sitt á íslandi. Litli Ijósálfurinn gefur þér góöa birtu viö bóklestur án þess aö trufla aöra, frábær í öll ferðalög og sumarbústaö- inn. KJörin gjöf. Litli Ijósálfurinn er léttur og handhægur, getur jafnt notað rafhlöður og 220 volta rafstraum. Honum fylgir aukapera, hylki fyrir rafhlöður og straumbreytir. Einnig fást geymslutöskur. Litli Ijósálfurinn fæst í næstu bóka- og gjafavöruverslun og i Borgartúni 22. HILDA Borgartúni 22, Reykjavík i KULDAFATNAÐUR frá MAX Allir kannast vió frábæra einangrun átpoka og álteppa. Nú kemur álfóðraður fatnaður frá MAX með sömu eiginleika. *k Álfilman er stungin með DAKRON vattefni v/öndunar líkamans. "k Heldur stöðugum líkamshita. ★ Frábært einangrun- argildi (frábær ein- angrun). ★ Þunnir og þægilegir k Hentar öllurn^ Ármúla 5 / viö Hallarmúla S:82833 Brúðuleikhús í Borgarbókasafni — Sögusvuntan I dag, 11. desember, í aðalsafni kl. 15.00 og 16.30, fimmtudag- inn 13. desember í Sólheimasafni kl. 15.00 og 16.30 og mánudaginn 17. desember í Bústaðasafni kl. 15.00 og 16.30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Sögustundir Sögustundir í hverri viku í Borgarbókasafni: Aðalsafni, Þing- holtsstræti 29 A, þriðjudaga kl. 10.30—11.30. Bústaðasafni, Bústaðakirkju, miðvikudaga kl. 10.00—11.00. Sólheimasafni, Sólheimum 27, miðvikudaga kl. 11.00—12.00. Ykkur er óhætt aö líta inn því margt getur skemmtilegt skeð í sögustund. Fóstrur og dagmömmur athugið að ef þið komið með hópa, látið okkur vita í tíma. Borgarbókasafn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.