Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 39
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. DESEMBER1984.
39
Útvarp
Þriðjudagur
11. desember
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman. Umsjón: Sigrún
Jóna Kristjánsdóttir.
13.30 Þýskt og danskt popp.
14.00 Á bókamarkaöinum.
14.30 Miðdegistónleikar.
14.45 Upptaktur. — Guömundur
Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.10 Síödegisútvarp. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvölds-
ins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Barna- og unglingaieikrit:
„Antilópusöngvarinn” eftir Ruth
Underhiil.
20.30 Lestur úr nýjum barna- og
unglingabókum. Umsjón: Gunn-
vör Braga. Kynnir: Sigurlaug M.
Jónasdóttir.
21.05 tsiensk orgeltónlist.
21.30 Utvarpssagan: Grettis saga.
Oskar Halldórsson les (12).
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Frá tónleikum íslensku hljóm-
sveitarinnar í Bústaöakirkju í sl.
mán.
23.30 Tónleikar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Rás 2
14.00—15.00 Vagg og velta. Létt lög
leikin af hljómplötum. Stjórnandi:
Gísli Sveinn Loftsson.
15.00—16.00 Með sínu iagi. Lög leikin
af íslenskum hljómplötum. Stjórn-
andi: SvavarGests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur. Komið
við vítt og breitt í heimi þjóðlaga
tónlistarinnar. Stjórnandi: Krist-
jánSigurjónsson.
17.00—18.00 Frístund. Unglinga-
þáttur. Stjórnandi: Eðvarð
Ingólfsson.
Sjónvarp
Þriðjudagur
11. desember
19.25 Sú kemur tíð. Fjórði þáttur.
Franskur teiknimyndaflokkur í
þrettán þáttum um geimferða-
ævintýri. Þýðandi og sögumaður
Guðni Kolbeinsson. Lesari með
honum Lilja Bergsteinsdóttir.
19.50 Fréttaágrlp á táknmáii.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Rauði kross íslands 60 ára. Um
þessar mundir eru liðin sextíu ár
frá því að Rauði kross Islands var
stofnaður. Samtökin hafa af því
tilefni látiö gera þessa stuttu
mynd sem lýsir hinu fjölþætta
starfi sem nú fer fram á vegum
þeirra.
21.15 Njósnarinn Reilly. 10. Samtök-
in. Breskur framhaldsmynda-
flokkur í tólf þáttum. Reilly heldur
áfram afskiptum sínum af baráttu
rauðliða og hvítliða, innan Sovét-
ríkjanna sem utan. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
22.20 Þingsjá. Talsmenn stjórn-
málaflokkanna og samtakanna
mæta í sjónvarpssal. Umsjónar-
maður Páll Magnússon.
23.30 Fréttirídagskrárlok.
ÞaO mæta allir fyrír framan sjónvarpiö þegar foríngjar og talsmenn stjórnmálaflokkanna koma fram þar,
er álit útvarpsráös. En þaö eru víst ekki allir á sama máli.
Sjónvarp kl. 22.20— Þingsjá:
Harmleikurinn út
— foringjamir inn
Á síðasta útvarpsráðsfundi — en út-
varpsráð er eins og flestir vita skipað
fulltrúum stjórnmálaflokkanna — var
ákveðið að timi væri kominn til að
þjóöin fengi að sjá og heyra í
foringjum stjórnmálaflokkanna í sjón-
varpi. Var ákveðiö þar að ekki mætti
bíða með þetta lengur en fram yfir
helgi og allt efni látið víkja fyrir þessu
einstaka sjónvarpsefni.
Varð úr að bresku heimildarmynd-
inni, Harmleikurinn í Varsjá, var fórn-
að, en hún átti að vera í sjónvarpinu í
kvöld kl. 22.20. I staöinn fær þjóðin að
heyra enn einu sinni í foringjum stjórn-
málaflokkanna. Sjálfsagt er þetta
einhvers konar plástur á sáriö hjá
þeim sem verið hafa að kvarta yfir því
að fá ekki aö koma fram í sjónvarpi. Sú
kvörtun hefur þegar kostað opinbera
kæru eins og frægt er nú orðið.
Það verður sjálfur Páll Magnússon
sem mun stjórna þessum yfirheyrslum
yfir foringjunum. En þaö er eins gott
að hann hafi vald á þeim og áhorfenda-
skaranum í salnum. Hver flokkur og
samtök fá nefnilega að hafa þar 5
manns frá sér og eiga þeir aö spyrja
„andstæðingana” spjörunum úr — eða
þannig eða svoleiðis.
Eitthvað verður þetta að ganga hratt
fyrir sig ef allir eiga að spyrja og
foringjarnir síðan að svara og einnig
að auglýsa sig og sinn flokk. Þátturinn
er aðeins rúmlega klukkustundar
langur og er það nú ekki mikill tími
fyrir sex foringja og þrjátíu spyrj-
endur.
-klp.
Við fáum að kynnast margþættri starfsemi Rauða krossins í
myndinni í kvöld.
Sjónvarp kl. 20.40:
RAUÐIKROSS
ÍSLANDS f 60 ÁR
I gær átti Rauði kross Islands 60 ára
afmæli. Var ýmislegt um að vera af því
tilefni í gær hjá samtökunum. En í
sjónvarpinu í kvöld verður starfsemin
kynnt fyrir landsmönnum.
Starfsemi Rauða krossins hefur
breyst mikið á síðustu árum. Er nú þar
rekin allt önnur starfsemi en á árum
áður, þó svo að tilgangurinn hjá
Rauða krossinum sé sá sami og hann
var fyrir 60 árum.
I tilefni afmælisins hefur Rauði
krossinn látið gera þessa mynd sem
við sjáum í kvöld. Þetta er ekki
heimildarmynd um þessi 60 ár heldur
kynning á starfseminni eins og hún er í
dag.
Er þetta án efa fróðleg mynd, enda
standa að gerð hennar vanir menn og
flinkir.
-klp-
titvarp, rás 1, kl. 20.00
— Antilópusöngvarinn:
Síðasti hluti
framhalds-
leikritsins
I kvöld kl. 20.00 verður fluttur sjötti
og síðasti þáttur Antilópusöngvarans
eftir Ruth Underhill í útvarpsleikgerð
Ingebrigts Davik. Þessi þáttur heitir
Græni dalurinn.
I síðasta þætti sagði frá dvöl Hunt
fjölskyldunnar í vetrarbúðum
indíánanna. Þar fékk hún að taka þátt í
hinum miklu haustveiðum Peyút-
ættbálksins. Toddi var meö flokki
indíána sem hafði umkringt stóran
antiiópuhóp sem Nummi háfði seitt til
þeirra með söng sínum.
Leikendur í 6 þætti eru: Steindór
Hjörleifsson, Kristbjörg Kjeld, {iókon
Waage, Jónína H. Jónsdóttir, Stefán
Jónsson, Þóra Guðrún Þórsdóttir, Arni
Benediktsson, Þórhallur Sigurðsson og
Jóhann örn Hreiðarsson. Leikstjóri er
Þórhallur Sigurðsson og tæknimenn
eru Friðrik Stefánsson og Hörður Jóns-
son.
i?
Veðrið
Sunnan- og suðvestanátt, all-
hvöss eða hvöss vestanlands en
hægari austanlands, skúrir um
vestan- og sunnanvert landiö en
jurrt að mestu norðanlands.
Veðrið
hérogþar
tsland kl. 6 i morgun: Akureyri
skýjað 8, Egilsstaðir skýjað 5, Höfn
skúr á síðustu klukkustund 5,
Keflavíkurflugvöllur rigning og
súld 8, Kirkjubæjarklaustur rign-
ing 7, Raufarhöfn rigning 3,
Reykjavik rigning 8, Sauöárkrókur
skýjað 6, Vestmannaeyjar rigning
8.
Utiönd kl. 6 í morgun: Bergen
léttskýjað 1, Helsinki snjókoma 0,
Kaupmannahöfn léttskýjaö 6, Osló
lieiðskírt 4, Stokkhóhnur heiðskírt
1, Þórshöfn alskýjað 8.
Utlönd kl. 18 í gær: Algarve
alskýjað 15, Amsterdam léttskýjað
8, Aþena heiðskírt 11, Bareelona
(Costa Brava) léttskýjaö 10, Berlín
súld 7, Chicago heiöskírt 7,
Glasgow léttskýjaö 7, Feneyjar
(Rimini og Lignano) léttskýjað 4,
Frankfurt léttskýjaö 4, Las Palinas
(Kanaríeyjar) léttskýjaö 9, London
léttskýjað 6, Los Angeles alskýjaö
15, I.úxemborg þokuinóða 3,
Madrid léttskýjaö 10, Malaga
1 (Costa DelSol) skýjað 16, Mallorca
.(Ibiza) heiðskírt 10, Miami skýjað
22, Montreal alskýjað 3, New York
'þoka 6, Nuuk snjóél —11, Paris
heiðskírt 5, Róm heiðskírt 7, Vín
skýjað 6, Winnipeg alskýjað —2,
, Vaiencia (Benidorm) léttskýjað 14.
Gengið
Gengisskráning nr. 238.
11. desember 1984 kl. 09.15.
Eining kl. 12.00. Kaup Sala Tollgengi
Doltar 39.930 40,040 40.010
Pund 48.066 48,198 47.942
Kan. dollar 30,256 30,339 30.254
Donsk kr. 3,6058 3,6158 3.6166
Norsk kr. 4,4760 4,4883 4.4932
Sænsk kr. 4,5372 4,5497 4.5663
Fi. mark 6,2245 6,2416 6.2574
Fra. franki 4,2232 4,2348 4.2485
Belg. franski 0,6425 0,6442 0.6463
Sviss. franki 15,6773 15,7205 15.8111
Holl. gyllini 11,4675 11,4991 11.5336
V-þýskt mark 12,9349 12,9705 13.0008
It. lira 0,02099 0,02105 0.02104
Austurr. sch. 1.8414 1,8464 1.8519
Port. Escudo 0,2413 0,2419 0.2425
Spá. peseti 0,2332 0,2339 0.2325
Japanskt yen 0,16166 0,16211 0.16301
Irskt pund 40,349 40,460 40.470
SDR (sérstök 39,5510 39,6599
dráttarrétt.
Símsvari vegna gengisskráningar 22190
Nú eru það 11 Fisher Price
Explorer bílar með drifi á tveimur
jafnfljótum frá Kristjánsson hf.
Númerin eru: 179756 - 188282 -
126544 - 135884 - 180240 - 24304 - 220234
- 26038 - 91153 - 201977!- 112919.__
Vinningshafar hafi samband við
skrifstofu SÁÁ i sima 91-82399.
Vinningsnúmerin í gær 10/12 vwSP
- 218432 - 223429 - 116639 - 212768 -
- 106799 - 163688 - 27705 - 71432 - 52950
62691 -
Ps. Það skiptir engu máli hvenær
miðarnir voru borgaðir.
JÓLAHAPPDRÆTTI SÁÁ