Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 9
DV. ÞREÐJUDAGUR11. DESEMBER1984.
9
Útlönd Útlönd
Handteknir
fyriraö
taka ofan
Lögreglan handtók tíu manns, sem
að árlegum sið efndu til þögulla
mótmæla á einu aðaltorginu í miðborg
Moskvu í gær í tilefni mannréttinda-
dags Sameinuðu þjóðanna.
Fjöldi einkennisklæddra lögreglu-
manna og leynilögreglumanna
safnaðist á torgið viðbúinn
mótmælum, sem eru orðin fastur
árlegur viðburður. Mótmælend-
ur gera þó ekki annað en taka ofan
höfuðfötin til að votta hryggð sina
vegna ástandsins í mannréttinda-
málum í Sovétrikjunum.
Vanalega sleppa yfirvöld fljótlega
lausum aftur þeim sem handteknir
eru á Pushkintorgi fyrir að taka ofan 9.
desember.
Grænlendingar:
SLÁ frá sér
í FYLURÍINU
Ofbeldi er meginorsök líkams-
meiðsla á Grænlandi. Á tveggja mán-
aða tímabili skráðu grænlenskir lækn-
ar 342 slys af völdum líkamsárása af
ýmsu tagi. I flestum tilfellum var um
að ræða áflog manna undir áhrifum
áfengis.
A sama tímabili skráðu læknarnir
946 slys. Það þýðir að 36 prósent slysa
voru af völdum ofbeldis.
Samkvæmt skýrslu læknanna voru
það í langflestum tilfellum karlar sem
ollu meiðslunum. Fómardýrin voru
hins vegar bæði karlr r og konur.
Læknamir bera tölarnar saman viö
sams konar tölur frá Danmörku. Þar
kemur í ljós að í meðalstórum græn-
lenskum bæ, Narsaq, er 20 sinnum
meira ofbeldi en í Esbjerg.
I nær öllum tilfellum meiddust menn
eftir hnefabardaga í fylliríi. Einnig
komust læknamir að því að hinn mikli
kynsjúkdómafaraldur í Grænlandi
orsakast að miklu leyti af hinum tíðu
samförum fólks undir áhrifum.
Grænlenskur blaðamaður skrifar
um þessa skýrslu í Atuagagdliutit
blaðið: „Enn einu sinni fáum við stað-
fest að Grænlendingar drekka. 1 þetta
skipti bætist þaö krydd við að við slá-
um líka frá okkur í fylliríinu.”
„We shall overcome,” söng Tutu í gærkvöldi með Norðmönnum.
Friðaryerðlaun Nóbels afhent:
Walesa býður
Tutu til Gdansk
Lech Walesa hefur boðið nóbels-
verðlaunahafanum Desmond Tutu í
heimsókn til sín í Gdansk. Pólski
verkalýðsforinginn og sjálfur fyrrver-
andi nóbelsverðlaunahafinn sagði í
gegnum aðstoðarmenn að slík heim-
sókn biskupsins myndi gefa þeim kost
á að sýna hversu miklir skyldleikar
væru með mannréttindabaráttunni í
heimalöndum þeirra.
I gær þurfti að seinka afhendingu
friðarverðlauna Nóbels í klukkutíma
vegna sprengjuhótunar. Tutu, Olafi
Noregskonungi og öllu ráðuneyti Káre
Willoch þurfti að koma út úr hátíðarsal
Oslóarháskóla þar sem athöfnin átti að
fara fram. Eftir að engin sprengja
f annst hófst athöfain á ný.
Tutu sagði eftir atvikiö að þaö sýndi
örvæntingu þeirra sem ynnu gegn friði
og sannaöi mikilvægi friðarverðlauna
Nóbel?. Hann sagðist taka við verð-
laununum fyrir hönd allra í heima-
landi sínu. Tutu hyggst nota pening-
ana, um sjö og hálfa milljón króna, til
að setja upp sjóö til að hjálpa svörtum
ungmennum í Suður-Afríku til mennt-
unar.
Venjulega er sendimönnum heima-
lands verðlaunahafans boðið að vera
viðstaddir afhendinguna, en í þetta
skiptið var engum boðið frá Suður-
Afríku.
I gærkvöldi ávarpaði Tutu fjölda-
fund. Með logandi kyndla á lofti söng
fólk með honum bandaríska baráttu-
sönginn „We Shall Overcome”.
Skipuleggjendur fundarins urðu fyr-
ir vonbrigðum með fundarsókn. Fá-
menniö skýrðu þeir með því að vitna til
sprengjuhótunarinnar.
Maðurinn sem varaði við sprengj-
unni hringdi í norska Dagbladet og tal-
aðilélega norsku.
HERRA
SKÓR
Kr. 1.795,-
Kr. 1.795,-
Kr. 1.695,-
Við póstsendum
r
FYRIR
JffK dömur
1 OG
HERRA
Teg. Ecco Joint 1.
Litir: hvítt eða blátt.
Stærðir nr.
28-34 kr. 540.
35 - 39 kr. 660.
40-46 kr. 695.
Teg. Ecco Joint2.
Litir: hvítt eða blátt.
Stærðir nr.
28-34 kr. 540.
35-39 kr. 660.
40-46 kr. 695.
Teg.318.
Litir: svart/grátt,
Stærðir nr.
28-33 kr. 458.
34-39 kr. 475.
40 - 45 kr. 490.
(17a)R
Teg. 586.
Litur: hvítt leður
Stærðir nr.
35-39 kr. 395.
40-45 kr. 410.
Teg.587.
Litur: hvítt leður
Stærðir nr.
35-39 kr. 395.
40—45 kr. 410.
Póstsendum
Kr. 1.695,-
SKÓVERSLUN ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR
LAUGAVEGI95, SÍMI 13570. KIRKJUSTRÆTI8. SlM114181