Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Blaðsíða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. DESEMBER1984. 3 Stórauka á skatta- frádrátt húsbyggjenda —viðræður hafnar við bankastof nanir um nýja innlánsreikninga fyrir húsbyggjendur Nefndir frá félagsmála-, f jármála- og viðskiptaráöuneytum hafa nú haf- ið viðræður við lífeyrissjóði og banka um endurskipulagningu á fjármögn- un húsnæðislánakerfisins. Að sögn Alexanders Stefánssonar félags- málaráðherra er ætlunin að auka skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna hjá byggingarsjóðunum og samhæfa betur útlán bankanna viö húsnæðis- lánakerfiö. Jafnframt eru í undir- búningi breytingar á skattalögum til að stórauka skattfrádrátt hús- byggjenda og kaupenda. Alexander Stefánsson sagði í sam- tali við DV að hvaö skattfrádráttinn varöaöi væri um stórt mál að ræða. Nú fengju aðeins um 16 þúsund fram- teljendur frádrátt frá skatti vegna fjárfestinga í íbúðum en 29 þúsund framteljendur, sem einnig ættu rétt á þessu, fengju ekki frádrátt. Sagði hann að svo virtist sem þessar frá- dráttarreglur væru of flóknar og fólk veldi frekar fastan 10% frádrátt. A vegum félagsmálaráðuneytisins er nú unniö að útreikningi á hvemig frádrætti húsbyggjenda og húskaup- enda yrði best hagað og er búist við aö þetta liggi fyrir innan skamms. „Ætlunin er að stórauka þennan frá- drátt fyrir þá sem þurfa á honum aö halda,” sagöi Alexander. Nefnd á vegum félagsmála- og fjármálaráðuneyta hefur rætt við bankastofnanir um að lán þeirra til húsbygginga verði meira samhæfö öðrum húsnæðislánum. Að sögn fé- lagsmálaráðherra er það stefna rík- isstjórnarinnar að húsnæðislánin færist í auknum mæli yfir til banka- kerfisins. Það sem nefndin hefur meðal annars rætt er að stofnaö verði til nýrra innlánsreikninga við bankastofnanir sem gæfu kost á lán- um til húsbyggjenda og væru innlán þessi að einhverju leyti frádráttar- bærtilskatts. öEF Loðnuskipið Jón Finnsson selttilChile Frá Ómari Jóhannssyni, fréttaritara DVíKeflavík: Jón Finnsson RE 506, sem um árabil hefur verið eitt mesta loönuveiöiskip landsins, hefur nú verið selt til Chile. I samtali við DV sagði Gísli Jóhann- esson, eigandi skipsins, að það yrði af- hent hinum nýju eigendum um miðjan janúar. Munu þeir ætla aö nota skipið til ansjósuveiða. Gísli sagði aö áhöfn- in sem sigla myndi skipinu út væri Chilebúar nema hvað með skipinu færu íslenskur skipst jóri og vélstjóri. Jón Finnsson er nú á loðnuveiðum og á eftir 2000 tonna kvóta. Sagði Gísli að því væru næg verkefni fyrir skipið þangaðtilþað færi. -EH Jón Finnsson á leið inn í heimahöfn sína í Reykjavík. Næsta heimahöfn skipsins verður einhvers staðar í Chile í Suður-Ameríku. Notaðir bflar JÓLATILBOÐ SKIPTIVERSLUN ÞÚ KEMUR Á ÞEIM GAMLA OG EKUR í BURTU Á NÝRRI BÍL. VIÐ LÁNUM ÞÉR MILLIGJÖFINA. AN UTBORGUNAR f ^ vV\\ ^ Séfelldbjlasala. Vetrar-og sumardekk með öllum notuðum bíluml bílar í eigu umbodsins EGILL VILHJÁLMSSON Smiðjuvegi 4c, Kópav., símar 79944—79775. Srfelld þjónusta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.