Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Page 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR11. DESEMBER1984. S Símvirkjar segja sig úrBSRB — fá 30 til 50% hærri laun innan Sveinafélags rafeindavirkja Símvirkjar eru þessa dagana aö segja sig úr Félagi íslenskra síma- manna og þar meö BSRB til þess að ganga í Sveinafélag rafeindavirkja. Ætlunin er aö ná samningum milli sveinafélagsins og fjármálaráðu- neytisins og hafa símvirkjar hótaö aö ef slikir samningar náist ekki muni þeir segja upp störfum sínum. Starfandi símvirkjar eru nú tæplega 300, þar af eru flestir hjá Pósti og síma en einnig starfa þeir hjá Ríkisút- varpinu og Flugmálastjórn. Fyrir fjórum árum var sett reglugerð um aö kennsla í útvarpsvirkjun, símvirkjun og skriftvélavirkjun skyldi falla undir eina grein, rafeindavirkjun. Aö sögn Leós Ingólfssonar, formanns sím- virkjadeildar Félags islenskra síma- manna, myndu símvirkjar hækka um aö minnsta kosti 30% í launum frá því sem nú er viö þaö aö taka laun sam- kvæmt töxtum Sveinafélags rafeinda- virkja og þessi hækkun gæti numiö allt aö50%. „Upphaflega var þetta til þess eins aö sameina stéttina í eitt félag. En nú er þetta fyrst og fremst að verða launaspursmál því ríkið hefur haldiö svo illa á samningamálum við BSRB,” segir Leó Ingólfsson. „Viö eigum eftir að gera samning milli sveinafélagsins og fjármálaráðuneytisins, eins og raf- virkjar hjá RARK hafa gert, en náist þaö ekki held ég aö meirihluti manna hætti.” Engir samningafundir milli þessara aöila hafa verið tímasettú- en aö sögn Leós leggja símvirkjar áherslu á aö þessu veröi lokið á fyrri hluta næstaárs. -ÖEF. Ragnar önundarson, bankastjóri Iðnaöarbankans, tekur við viðurkenningunni úr höndum formanns dómnefndar, Stefáns Svavarssonar. Til hliðar er Sigurður R. Helgason, formaður Stjórnunarfélags Islands. DV-mynd Bjarnleifur. Iðnaðarbankinn með bestu ársskýrsluna Iönaöarbanki Islands hf. skilaði bestu ársskýrslu fyrirtækja á síðasta ári. Þaö er niöurstaöa dómnefndar Stjórnunarfélags Islands. Árs- skýrsluverölaunin voru veitt í fjóröa sinn í hófi í Þingholti í síöustu viku. Alls tóku sextán fyrirtæki þátt í sam- keppni þessari. Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoöandi og formaöur dómnefndarinnar, afhenti Ragnari önundarsyni, bankastjóra Iönaöar- bankans, viðurkenningu fyrir árs- skýrsluna og gat þess aö hún væri framúrskarandi. Ragnar þakkaði heiðurinn og gat þess til gamans aö konur ættu þakkirnar skyldar, því Kristín Guðmundsdóttir, endurskoö- andi bankans, og Jónína Michaels- dóttir ráðgjafi heföu unnið skýrsluna. Hún bæri þess greinilega merki aö konur heföu höndum um f ariö. Auk Iðnaöarbankaskýrslunnar voru verölaunaðar tvær ársskýrslur. Kaup- félag Austur-Skaftfellinga fékk þá um- sögn aö ársskýrsla félagsins væri eins og áöur „öll hin vandaðasta." Hennann Hansson kaupfélagsstjóri tók viö viðurkenningu félagsins. Þá tók Þóröur Ásgeirsson, forstjóri Olíu- verslunar Islands hf., við viðurkenn- ingu fyrir ársskýrslu Olís. Umsögn um þá skýrslu var sú að í heild væri hún mjög vönduö. -JH Tækniminjasafn Austurlands stof nað Þann 21. október sl. var stofnað á Seyðisfiröi safn er hlotið hefur nafnið Tækniminjasafn Austurlands. Safnið mun verða til húsa í einu merkasta húsi kaupstaöarins, Wathneshúsi. Hlutverk safnsins er aö safna og varö- veita muni og mannvirki er snerta sögu tækniþróunar á Austurlandi. Formaöur stjórnar Tækniminja- safns Austurlands er Pétur Blöndal. -ÞJV DREIZACK SOUNGEN DreizacK HIMÍFAR SKÆRIOG MARGT PÓSTSENDUM ___________ FLEIRA Sérverslun meö gjafavörur. Hafnarstræti 11. Simi 13469. NÍGÚND E Hann cr íslenskur! Hannerlagaður að líkamanum! Hann fæst í mörgurn litum með hvaða áklæði sem er! Ef þú gætir fengið hann 2000 krónum ódýrari en innfluttan stól, mundir þú vilja kaupa hann? Þú getur það. Við opnum klukkan 8 á morgnana og lokum ekki fyrr en klukkan 6 á kvöldin. Vertu velkominn. STALIÐJAN hf SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211 psiiKnii ■ SKRIFS7ÖFU HUSGOGN HALLARMÚLA 2 - SlMI 83211

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.