Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1984, Qupperneq 6
6
DV. ÞRIÐJUD AGUR11. DESEMBER1984,
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Á kjötmarkaði á Kirkjusandi:
Bragi Jónsson hefur sóð um kjötmarkaö SIS þau tvö og háift ár sem hann hefur verið starfræktur. Sama
verð er á iœrum og hryggjum í heiiu eða niðurskornu. Fallega er frá kjötinu gengið á markaðnum.
Lif ur á 55
kr. og slög
á 29 kr. kg
„Þaö hefur verið mikil ös hérna
undanfarna daga, fólk hefur verið að
birgja sig upp fyrir búvöruverðshækk-
unina. Það hefur keypt alveg óheyri-
legt magn af kjöti. Sumir kaupa tvo
skrokka en aðrir allt upp í fimm,”
sagði Bragi Jónsson sem sér um kjöt-
markaðSambandsins á Kirkjusandi.
Það þarf talsvert til að geta gert slík
innkaiip því að skrokkur getur kostað
allt upp í 2 þús. kr. Auk þess þurfa
heimilin rúmt frystikisturúm.
I kjötmarkaðnum er | hægt að| fá
bæði lamba- og svínakjöt, auk ýmissa
unninna áleggsvara. Veröiö er eins og
það er ákveðið frá sexmannanefnd-
inni en álagning á lærum og hryggjum
er3,9%.
,,Það getur gert að verkum að sumir
hlutar séu aðeins dýrari hér hjá okkur
en aörir aftur ódýrari,” sagði Bragi.
Sama verð er í markaönum hvort
heldur lærið er keypt heilt eöa í
sneiðum og sömuleiðis er hryggurinn á
sama verði hvort heldur hann er heill
eöa sneiddur í kótelettur.
Áleggsvörumar eru seldar meö 10%
afslætti á markaðnum vegna þess að
það eru vörar sem eru framleiddar í
húsinu sjálfu og flutningskostnaöur því
enginn. Sem dæmi um verð sáum við
ósoðnar rúllupylsur á 100 kr. stykkið,
sem er hreint g jafaverð.
Bestu kaupin eru sennilega í árs-
gamalli lifur, en kg af henni kostar
ekki nema 55 kr. (kostar 107,50 frá í
ár). Þá má nefna súpukjötið, en það
kostar 116,10 (einnig til eldra kjöt á 109
kr.) og slögin eru seld eftir vigt á 29 kr.
kg. Svið kosta 72 kr. kg , en þvegnir
hausar90kr.kg.
Bragi sagðist hafa birgt sig mjög vel
upp af kjöti fyrir búvöru-
veröshækkunina þannig aö hann ætti
nóg af kjöti, að minnsta kosti út
þennan mánuö og sennilega fram í
næsta mánuð.
-A.Bj.
<«»
wm
Svið eru til á mjög hagstæðu verði en iifrin er iangódýrust, kostar ekki Aiiar kistur i kjötmarkaðnum voru fuiiar af gómsæt um steikum, m.a. ladolambi frá Húsavik.
nema 55kr. kg. D V-myndir Bjarnieifur Bjarnleifsson
HVERNIG FARA SKAL MEÐ NÓVEMBERKAKTUS
Nóvemberkaktus — eitt afbrigði af
jólakaktus — er auðveldur stöngul-
kaktus, ekki ólíkur páskakaktus en
aðgreinir sig frá honum m.a. á
blómunum.
Blómaverslanir hafa að mestu hætt
sölu á nóvemberkaktusum nú, en fólk
hefur hringt til neytendasíðunnar og
beðið um leiðbeiningar í sambandi við
þá.
Krónublöð kaktussins eru í tveim
pípukrönsum, ýmist rauð, rauðblá eða
hvít. Eftir blómgun þarf aö hvíla plönt-
una. Það er gert með því að minnka
verulega vökvun, liðirnir mega þó alls
ekki skorpna. Um miðbik sumars þola
plöntumar útivist í skjóli eöa í skugga,
en hafa skal gát á sniglum. Gefiö áburð
þar til í byrjun ágúst. Takið hann þá
inn og vökvið gætilega uns blómhnapp-
ar koma í ljós. Fjölbað með liðgræðl-
ingum.
Svolítil sólarglæta sakar ekki, en
vægur skuggi er æskilegri. Meðalhiti
(nótt 10—16°C), svalt og þurrt frá
september uns blómhnappar sjást.
Vökvist eðlilega nema á hvíldartíma.
Hefur mætur á loftraka og tíðri úöun.
Glj úp mómold, leir og sandur.
Þegar nóvemberkaktusinn er í
blóma skal hann vera í birtu, hitastig-
ið skal vera 15—20 °C, jafn raki og eng-
an áburð þarf. Eftir blómgun þarf
kaktusinn að standa á þurrum og svöl-
um stað í 5—7 vikur. Einnig þarf hann
ríflega vökvun og áburöargjöf.
JI