Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Qupperneq 2
2 DV. MIÐVIKUDAGUR12. DESEMBER1984. Fyrirspurn um norsktsjónvarp Eiður Guönason, þingmaður Alþýðu- flokksins, lagði fram á Alþingi í gær fyrirspum til menntamálaráðherra um móttöku á norsku sjónvarpsefni. Sendingar norska sjónvarpsins munu innan skamms sjást hér á landi ef viö- eigandi móttökubúnaður er fyrir hendi þar sem Norömenn munu senda sjón- varpsdagskrána um gervihnöttinn ECS2tilSvalbarða. I fyrirspurninni er óskaö svara viö hvort menntamálaráðherra hafi í nafm ríkisstjórnarinnar hafið samn- ingaviöræður við norsk stjórnvöld um móttöku á þessu sjónvarpsefni hér á landi og hvort það liggi fyrir hvaða kostnað það mundi hafa í för með sér fyrir Islendinga ef hafin yrði móttaka og dreifing á dagskrá norska sjón- varosins hér á landi. ÓEF 0-3400 snún./mín., snýst afturábak og áfram, 650 vött. Verð kr. 7.500. sagardýpt í stál 3 mm, í tré 50 mm, 350 vött. 3000 slög/mín. Verð kr. 3.900. PSS 230 slípivél (juðari), 150 vött, slípiflötur 92x182, sveifluhraði 10.000 snún./min. Verð kr. 3.215. PSP 70 sett: málningarsprauta, 30 vött, afköst 70 gr/mín., könnustærð 0,341. Veró kr. 1.728. PKP15 límbyssa, límir öll efni fljótt og vel, t.d. tré, fataefni, málma, gler, leður og fleira. Límnotkun 15 gr/min. Verð aðeins kr. 998. GunnarÁsgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200 Vélasalur frystihússins eftir brunann. Bruni frystihússins á Raufarhöfn: „Þriðjungur starfandi fólks er atvinnulaus” „Þetta kemur þannig út að á miili 50 og 70 manns missa vinnuna en það er um þriðjungur starfandi fólks í bænum,” sagði Gunnar lidmarsson, sveitarstjóri á Raufarhöfn, í samtali við DV er við inntum hann eftir af- leiðinguin bruna hraðfrystiiiússins á bæjarlífið. „Þetta atvinnuleysi bitn- ar aðallega á kvenfólkinu, á milli 35 og 40 missa vinnuna.” Hvaö úrbætur fyrir þetta fólk varð- aði sagði Gunnar að ljóst væri að báðir togararnir inyndu landa afla sínum á Þórshöfn og nú þegar væri búið aö ráða á milli 10 og 15 manns þangað frá Raufarhöfn. Yröi það keyrt á milli staöanna á hverjum degi. „Þessi bruni er ákaflega bagaleg- ur fyrir bæjarfélagið því aö við höfð- um séö fram á vinnu í frystihúsinu fram aö jólum og höfðum keypt við- bótarkvóta tii að svo yrði,” sagði Gunnar. „Við erum að athuga nú livaö við getum gert. Annar frystiklefinn slapp og eldurinn náði ekki inn í vinnslusalinn svo það er spurning hvort við getum sett frystipressuna í gang til bráöabirgða.” -FRI Framkvæmdasjóður samþykkir aðild að uppbyggingu nýs frystihúss á Raufarhöfn: Beðið var um 10 millj. kr. aðstoð nýlega Framkvæmdasjóður hefur sarn- þykkt aðild aö uppbyggingu nýs frystiliúss á Raufarhöfn í samvinnu viö Fiskveiðasjóð og heimamenn. Forráöamenn frystihússins Jökuls hafa lengi átt inni beiðni hjá Fram- kvæmdastofnun um aöstoð viö upp- byggingu frystihússins, nú síöast í lok nóvember sóttu þeir um 10 milljónirkr. tilslíks. Samþykktin, sem afgreidd var á stjórnarfundi hjá Framkvæmda- stofnun í gærmorgun, er svohljóð- andi: „Stjórn Framkvæmdastofnun- ar samþykkir að Byggðasjóður taki þátt í uppbyggingu hraðfrystihússins á Raufarhöfn í samvinnu við Fisk- veiðasjóð og heimamenn. Fram- kvæmdastofnun fylgist náiö með undirbúningi og framkvæmd verks- ins.” S/ökkvistarf i fullum gangi og menn á þaki hússins. DV-myndir: Arnþór Páisson, Raufarhöfn. Kristinn Zimsen, annar fram- kvæmdastjóra stofnunarinnar, sagöi í samtali viö DV aö beiðni Jökuls uin aðstoð heföi hingaö til strandaö á fjármálum fyrirtækisins.. . „þaö hefur komiö fyrir að fjármál fyrir- tækisins væru ekki á réttum kili,” sagði hann. Bruni frystihússins í fyrradag set- ur strik í reikninginn og sagöi Krist- inn að vegna hans væri erfitt að segja til um framhald þessa máls. Áður en húsið brgnn var rætt uin aö koma upp viðbyggingu viö þaö en nú þarf sennilega að byggja það aö miklu leytifrágrunni. „Næstu skref okkar verða aö setja inenn í að skoöa þetta mál allt og nýja stöðu í þvi eftir brunann,” sagöi hann. -FRI Trén eru ódýrari en í fyrra Stórkostlegt verð á eðalgrenitrjám Eðalgrenimarkaðurinn M/Miklagarð Tækifæris- gjafir ríkis- stofnana — verði bundnar reglum Jóhanna Siguröardóttir, þingmaður Alþýðuflokksins, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að settar veröi reglur um notkun ríkisstofnana á almannafé til tækifærisgjafa. Tillaga þessi var flutt á síöasta þingi eftir uin- ræöui- um gjafir Landsvirkjunar og Seðlabanka til Jóhannesar Nordal seðlabankastjóra. Með tillögunni fylgja reglur sem settar hafa verið í Noregi og Dan- mörku um þetta efni. I Noregi gildir sú regla að starfsmanni, sem starfað hef- ur hjá norska ríkinu í 30 ár eða lengur, má veita heiöursgjöf að verðmæti alit aö 900 krónur norskar eöa um 4 þúsund islenskar krónur. Þeim sem unnið hafa skemur má færa gjöf fyrir allt aö 1300 krónuríslenskar. ÓEF

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.