Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Qupperneq 31
DV. MIÐVIKUDAGUR12. DESEMBER1984.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Kratií
vígahug
Framámenn ihalds, alla-
balla og framsóknar eru nú
sagðir sitja sem á glóðum.
Stafar vanlíðan þeirra af
þeim miklu vinsældum sem
Jón Baidvin Hannibalsson,
formaður krata, hefur náð
meðal landsmanua á skömm-
um tima.
Jón Baldvin hefur farið
sem tófusprengur landshorn-
anna á milli að undanförnu.
Hefur hann haldið fundi með
ibúum hinna ýmsu staða úti á
landsbyggðinni. Þar hefur
hann m.a. rætt lausnir á
vandamálum þjóðarinnar í
nútíö, framtíð og jafnvel á
æðri tUverustigum, að því er
gárungarnir segja.
En aUt um það. Málflutn-
ingur Jóns Baldvins hefur
hlotið fádæma góðar undir-
tektir. Segir sagan að hinir
hrifnustu séu farnir að nefna
krataformanninn í sömu and-
Jón Baldvin Hanníbolsson.
rá og endurkomu frelsarans.
Formenn hinna flokkanna
eru því að vonum skítsmeyklr
nm að Alþýðuflokkurinn hirði
ótæpUega af þeim fylgið i
næstu kosningum. Á það eink-
um við um s jálf stæðismeun.
Video í verkfalli
Það er ekki ofmælt að segja
að videoleigur um aUt land
Videospólurnar ruku út« verkfallinu.
hafi blómstrað i verkfalli
opinberra starfsmanna og
prentara. En liklega gera
fæstir sér grcin fyrir þeim
ógnarupphæðum sem
ieigurnar veltu á þeim vikum
sem verkfaUið stóð yfir.
Timaritið Samúel komst á
dögunum i tæri við mann
einn, reikningsglöggan og
kunnugan þessum málum.
Fullyrðir sá aö hvern verk-
fallsdag hafi íslendingar leigt
sér videospólur fyrir um tvær
mUljónir króna! Veltan hjá
videoleigunum hefur með
öðrum orðum farið eitthvað
yfir 50 mUljónir þann tíma
semverkfallið stóð
Ein flaska
Hafnfirðingur einn brá sér
tU Reykjavikur um daginn tU
að kaupa i jólamatinn. Hann
snaraðist inn í matvöruversl-
un, að búðarborðinu og sagði
ábúðarmikUl:
„Ég ætla að fá eina flösku
af kartöflum!”
Kaupmaðurinn reyndi að
útskýra fyrir honum að kart-
öflur væru aðeins seldar í
pokum. En ailt kom fyrir
ekki. Hafnfirðingurinn skUdi
ekki baun.
Kaupmaðurinn vUdi ekki
gefast upp. Hann stakk upp á
því að þeir tveir hefðu hlut-
verkaskipti. Hafnfirðingur-
inn afgreiddi en hann sjáifur
keypti.
Þegar Hafnfirðingurinn
hafði komið sér fyrir innan
við búðarborðið gekk kaup-
maðurinn hægt og virðulega
að því og sagði með áherslu:
„Ég ætla að fá cinn poka af
kartöflum.”
Hafnfirðingurinn kveikti
strax og spurði kurteislega:
„Ertumeðgler?”
SÍS sækir á
Mörgum blöskrar sá upp-
gangur sem verið hefur hjá
Sambandinu að undanförnu.
Fer það einkum fyrir brjóstið
á hinum sömu hversu gild-
andi SÍS-ið hcfur gert sig i út-
gerð og markaðsöflun erlend-
is. Er í þessu sambandi bent
á að það sæki nú verulega á
SH á Bandarikjamarkaði,
sem þykir vont mál. Enn-
fremur að SÍS hafí á skömm-
um tíma eignast fimm skut-
togara, sem þykir enn verra.
Loks, að Sambandið hafi
augastað á Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar sem er i lama-
sessi um þessar mundir.
En það eru fleiri fiskar í
sjónum. Segja kunnugir að
KEA hafi ætlað sér að komast
yfir rafeindafyrirtækið DNG
á Akureyri. Það var sem
kunnugt er á heijarþröminni.
Segir sagan að forkólfar KEA
hafi aðeins beðið þcss að
DNG færi á hausinn og ætlað
að kaupa þaö að þeim hrak-
förum afstöðnum. En þá
greip Féiag islenskra iðnrek-
enda sem kunnugt er inn í og
stofnaði hlutafélag um rekst-
ur DNG. Þar með var KEA-
draumurinn úr sögunui.
Þorsteinn Pálsson. formaður:
nHHHH
10 tegundir
iiiiII
Alvöru-jólaservíettur og pappírsvörur
frd Bandaríkjunum.
^-----■■ébhhhí
BHBHBIBHhBhBí h w- mmSBBSSmSBMKBtBmSKaKKL
Leikföng
í úrvali
Getum afgreitt með stuttum fyrir-
vara rafmagns- og dísillyftara:
Rafrnagnslyftara, 1,5-4 tonna.
Disillyftara, 2,0-30 tonna.
Ennfremur snúninga- og hliöarfærslur.
Tökum lyftara upp í annan.
Tökum lyftara í umboðssölu.
Flytjum lyftara um Reykjavík og nágrenr.i.
Littu inn — við gerum þér tilboð.
LYFTARASALAN HF.,
Vitastíg 3, , símar 26455 og 12452.
MEGAVISION
Nú geta allir notiö þeirrar ánœgju aö
horía á stœrri mynd í sjönvarpinu.
Sérstakur skermur sem settur er fyrir íraman
sjónvarpiö og stœkkar myndina verulega.
Petta gerir t.d. sjóndöpru íólki auöveldara
að íylgjast meö mynd og texta.
Beamscope er til í þremur mismunandi
stœrðum. Komiö og kynnist þessari frá-
bœm nýjung írá Japan.
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
l SENDUMÍ
í PÓSTKRÖFU
HF
LAUGAVEGI 170-172 SIMAR 11687 - 21240