Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Blaðsíða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985. Neytendur Neytendur > Neytendur Neytendur Fermingarundirbúningur á fullu: Smókingföt á stelpur og stráka vinsælasti kosturinn í ár Fermingarveislan heima eða að heiman? Eigum við að hafa kalt borð — eða eigum við að hafa kaffiboð? Kannski við ættum aö hafa veisluna í leigðum sal — eða bjóða bara nánustu fjöl- skyldu huggulegar veitingar heima við. Spumingar eins og þessar fara nú án efa í gegnum huga foreldra um f jögur þúsund fermingarbama sem fermast eigaálandinuívor. Sumir eru svo forsjálir að sníöa veislur sínar eftir pyngjunni og eru sennilega þeir sem eiga ánægjulegustu minningar frá fermingu barna sinna. Aðrir eyða um efni fram og vilja helst hafa veislur sínar þannig aö þegar gestirnir fara standi þeir á blístri og geti sig ekki hreyft. Meðalvegurinn er bestur í þessu efni eins og öðru. Á næstu dögum ætlum við á neytendasíðunni að leita ýmissa upp- lýsinga sem við teljum hagkvæmar fyrir fólk í fermingarundirbúningi. Við athugum á hvaöa verðbili vinsælasti fermingarfatnaðurinn er — allt frá ,,hatti ofan í skó”. Við ætlum að kynna ykkur verð á aðkeyptum veislu- föngum, bæði í mat og tertum. Hvað varðar fermingargjafirnar vísum við á fermingargjafahandbókina sem væntanleg er með DV í þessum mán- uði. A.Bj. Smókinglínan frá Karnabæ á bæði kynin. Verð 3.750 krónur. í verslunni Bó Bó rákumst við á tvær fermingarstúlkur máta spariskó. Verð á þessum skóm er 900 krónur. Af samtölum við verslunarfólk að dæma þá virðist engin ein lína vera áberandi við fataval. Það væru þó kannski helst strákarnir sem héldu sig viö svipaða línu, en hjá stelpunum væri engin sérstakur klæðaburður áber- andi, ekki nema helst aö ljósir litir væru vinsælir í ár og væri bleiki litur- inn sá vinsælasti. Stuttir smókingjakkar vinsælir á bæði kynin I verslun Kamabæjar á Laugavegi 66 var mikið úrval af ýmiss konar fermingarklæðnaði á bæði kynin. Að sögn Hansínu Gísladóttur verslunar- stjóra virtist sem stutt smókingjakka- föt væru einna vinsælasti kosturinn og þá ekki síður á dömumar en herrana. Hin hefðbundnu drengjajakkaföt hreyfðust lítiö. Stúlkumar virtust mun frjálslegri í sínu klæöavali, fyrir utan smókinglínuna bæri mikið á léttum vor- og sumarklæðnaöi í ljósum litum, t.d. pils og skyrta með opnum frjáls- legum jakka. Ljósu litirnir væru vin- sælastir, t.d. bleikur og grænn, en einn- ig hefði borið mikið á svokölluðum ferskjulit. Örfá dæmi um verð hjá Karnabæ. Smókingjakkaföt, 3780 kr. Skyrtur á bæði kynin, 895—980 kr. Leðurslaufur, 330 kr. Bindi á bilinu 250—390 kr. Dömuhanskar á 290—350 kr. I versluninni Bó Bó, glænýrri tísku- verslun á Laugavegi, var einnig mikið úrval af alls konar sparifatnaði á f erm- ingarbamaaldurshópinn. Að sögn verslunarstjórans, Sigríðar Einars- dóttur, hafa samfestingar í ljósum sumarlitum verið vinsælir, en einnig stretsbuxur og sams konar jakki úr bómull. Samfestingurinn er á 2350 kr. en stretsklæðnaðurinn, jakkinn og bux- umar, á samtals 3030 kr. Bo Bó hefur einnig gott úrval af skóm á bæði kynin. Algengustu kven- skórnir eru á 900 kr., en allt upp í for- láta leðurbomsur á 3100 kr. Skómir á strákana kostuðu yfirleitt í kringum 2100 kr. I Torginu, Austurstræti, var einnig mikið framboð af fermingarfötum. Að sögn verslunarstjórans, Áma Sigurðs- sonar, hafa smókingjakkaföt í „Duran Duran” stíl verið vinsælust og það á bæði ky nin. Kosta þau 4900 kr. Ámi kvað nýjustu tískulínur vera Að sögn séra Bernharðs Guðmunds- sonar, fréttafuUtrúa þjóðkirkjunnar, verða fyrstu fermingar vorsins á pálmasunnudag, 31. mars, og síðan um hverja helgi út allan aprílmánuö. Á orðnar allsráðandi í vali unglinga á spariklæönaði. Hin heföbundna og gamalkunna lína í jakkafötum á karl- menn virtist á undanhaldi í yngri ald- urshópnum. I Torginu voru spariskyrtur með brotnum flibba á 795 kr. mjög vinsælar og passa þær vel viö smókinglínuna. Hin venjulega gerð af spariskyrtum kostaði aftur á móti um 500 kr. Leðurbindi voru á bilinu 395—465 kr. en úr taui á 395 kr. Gott skóúrval er í Torginu, dömu- og herraskór á bilinu 1190-1695 kr. Glæstir gallar Það er óhætt að fullyrða að væntan- leg fermingarböm og forráðamenn þeirra þurfa ekki að kvarta fyir ónógu framboði glæstra fermingargalla. Ur- síðasta ári fermdust rúmlega 4000 unglingar á landinu og er reiknað með að sá f jöldi verði svipaður í ár, eða að meðaltali um 98% af árgangnum. hhei. valið er mikið og verðiö viröist y fir höf- uð vera sanngjamt og í fullu samræmi við aðra sams konar vöruflokka fyrir eldri kynslóðina. Annars er tískan duttlungafull, það sem þykir gjald- gengt í dag er hallærislegt á morgun. Þegar undirritaður fermdist fyrir tíu áram þóttu þeir menn ekki meö mönnum er ekki fjárfestu í forláta „stultubomsum”, þ.e.a.s. spariskóm með sem allra hæstum botni og enn hærri hæl. Á þessum penu skóm skrölti mannskapurinn við öll tækifæri og á svona skófatnaði fermdust heilu ár- gangarnir og voru stoltir af. Það er ómögulegt að segja upp á hverju við- undur tískunnar taka næst en sú tíska er nú viröist ríkjandi er smekkleg mjög og líkleg til að ganga um ókomin ár. hhei. Vildi ekki láta „okra” á sér „Mér datt aldrei í hug að kaupa þessa varahluti sem mig vantaði í Chevrolet Malibu, ég læt ekki draga mig á asnaeyrunum,” sagði maðurinn, sem vantaði varahluti í amerískan bíl og við sögöum frá á mánudaginn. Hann sagðist skömmu síðar hafa farið til Amsterdam og þar hefði hann gáö að þessu hjá umboðinu þar. Þetta var ekki til, en þeir buðust til að sérpanta þetta fyrir hann frá Bandaríkjunum og þaö fyrir minna en 200 gyllini sem er um 2 þús. kr. ísl. sami hlutur kostar 4900 kr. hjá SIS. Ramminn, eða hluti af þessu sem vantaði, var til hjá ÖS varahlutum á kr. 1100,00. Þessi rammi átti að kosta 2200 kr. hjáSlS. Athygli bíleigenda er vakin á verð- könnun Verðlagsstofnunar á bíla- varahlutum en hún er mjög viða- mikil. A.Bj. Fermingin er stór stund í lifi hvers einstaklings. í ár verða fermingarbörnin rúmlega fjögur þúsund. Fyrstu fermingar á pálmasunnudag Fyrir stúlkurnar frá Bó Bó. Vinstra megin er stretsklæðnaður á 3.030 krónur. Til hægri eru vinsælir samfestingar i sumarlitum á 2.350 krónur. DV-myndir Kristján Ari. Nú styttist veturinn óðum, framund- an er langt og bjart vor með einum föstum dagskrárlið á þeim árstúna, fermingu íslenskra ungmenna, stað- festingin á skíminni og formleg inn- ganga í söfnuöi hinnar Lslensku þjóö- kirkju. Feimingin sem slík hefur löngum veriö mikill merkisatburður í lífi flestra Islendinga og því yfirleitt um að ræða mikinn undirbúning fyrir þessi merkilegu tímamót bæði er varðar gjafir og undirbúning veisluhalda. Það hefur löngum þótt vel sæma aö klæða hin tilvonandi fermingarböm vel upp fyrir hinn mikla dag, ekki duga neinir larfar á sjálfan fermingardag- inn. Strákarnir fengu sín fyrstu alvöru- jakkaföt og stúlkurnar klæddu sig upp í nýja kjóla, skó og pils. A síðari áram hefur undirbúningur fermingarinnar vel komið fram í miklu auglýsingaflóði verslana er höndla með föt og vandaðar gjafavörur. Hver kannast ekki við klisjuna „tilvalin fermingargjöf” í auglýsingum á þess- umárstíma? Mönnum verður stundum á orði hvort hinn eini og sanni tilgangur fermingarinnar fari ekki fyrir ofan garð og neðan í öllu auglýsin^aflóðinu, sú'spuming er í raun efni í aðrar grein- ar og verður ekki gerð f rekari skil hér í bili. Einn fyrsti þáttur í feFmingarandir- búningnum er að fata fermingarbarn- ið. Viö val á fallegum, hentugum ferm- ingarklæönaöi er um auðugan gai ð að gresja, a.m.k. hér á höfuðborgarsvæð- inu en hér bjóða ófáar verslanir upp á allar gerðir af fermingarfötum á bæði kynin. Ljósir litir vinsælir Neytendasíðan fór á stúfana og kannaði örlítiö brot af markaðnum í Reykjavík og hvað upp á væri boöiö.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.