Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Blaðsíða 12
12 DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985. Frjáist.óháÖ dagblað Utgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaóur og útgáfustjóri: SVEINN R. E YJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖROUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoóarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HAR ALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍDUMULA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgroiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerð: HILMIR HF., SÍDUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð 6 mánuði 330 kr. Verð i leusasölu 30 kr. Helgarblað 35 kr. Staða „litla bróður” Flóö pappírs og hanastél einkenndu þing Norðurlanda- ráös eins og jafnan áöur. Viö bættust nokkrar uppá- komur, sem heppnuöust misjafnlega. Páll Pétursson for- seti þingsins telur þetta hafa verið eitt hið merkasta af Norðurlandaþingum. Fyrir crfckur íslendinga skiptir þingið þó ekki sköpum. Samþykkt var efnahagsáætlun fyrir stóru bræöurna okkar. Þetta getur orðiö þeim hagstætt. Viö vorum spyrtir viö Grænlendinga og Færeyinga í minniháttar aðgeröum fyrir „noröur-vestur Norðurlönd”, svona eins og til málamynda. Tillaga okkar manna um stöö hérlendis fyrir lífefna- iönað var auðvitað fryst. Við viljum vinna meö öðrum Norðurlöndum. Af því getum viö margt lært, og þeir af okkur. Viö getum haft samstöðu víöa. En við viljum ekki leggjast undir neitt ok, sem stóru bræðurnir kunna aö vilja setja á okkur. Viö viljum ekki fylgja blindandi þeirri leiösögn, sem þeir bjóöa litla bróöur. Sumir kvarta yfir, aö ekkert náöist fram um sjónvarps- samvinnu Norðurlanda. En spyrja má: Viljum viö íslendingar greiða fyrir að fá eitthvaö af sjónvarpi frá öðrum Noröurlöndum, til dæmis norskt síðdegis- sjónvarp? Líklegt er, aö viö vildum heldur fá aðgang að brezku sjónvarpi, svo aö dæmi sé tekið. Líklegt er, aö viö séum sízt verr komnir, þótt viö sleppum viö Nordsat. Við höfum haft samvinnu viö Noröurlöndin í starfi Sameinuöu þjóöanna. Það samstarf hefur verið of mikið, ekki of lítið. Viö eigum enga samleið meö þeim forystu- mönnum á Norðurlöndum, sem styöja einræðisríki þriðja heimsins í tilraunum til að kúga fjölmiölun í þróunar- ríkjunum. Tvö önnur Norðurlanda, Noregur og Danmörk, eru meö okkur í Atlantshafsbandalaginu. En Svíþjóö og Finnland standa utan þess. Stjórnvöld í Svíþjóö og Finnlandi reyna gjarnan aö biðla til Sovétríkjanna, sennilega af ótta viö voldugan granna. Margt er brogaö í hlutleysisstefnu þessara ríkja. Ekki er ástæöulaust að tala um „finnlandiseringu”, þegar rædd eru samskipti Finria viö Rússa. Þarna kemur fram skýr munur á þeirri utanríkisstefnu, sem meirihluti íslendinga styður, og utanríkisstefnu tveggja stóru bræöranna. Margt er líkt í utanríkisstefnu íslendinga og þeirra hægri manna, sem nú stjórna í hinum NATO-ríkjunum, Noregi og Danmörku. En meirihluti íslendinga hafnar undirlægjuhætti stjórnarandstæðinga í þessum löndum við Sovétveldiö. Viö eigum aö stunda samstarf viö öll þau ríki, þar sem hagsmunir og viðhorf fara saman. En í hvívetna verðum við, lítil eyþjóð, að gæta þess að varöveita okkar eigin málstaö. Viö megum ekki blindast svo af norrænni væmni, aö þetta gleymist. Uppákomur settu nokkurn svip á þessa samkomu Noröurlandaráðs, „græningjar”, Jón Baldvin Hannibals- son og Árni Johnsen. Margt er til í því, sem þeir Jón Baldvin og Árni lögöu til mála. Ástæðulaust er aö gera mikiö úr því, aö þeir hafi „móðgað” einhverja. Verst er fyrir Jón Baldvin, aö hann klúöraði sínu máli með rugli og svardögum um, aö hann heföi ekki sagt það sem hann hafði sagt svo og með ótímabærri afsökunarbeiðni viö Finna vegna hins alþjóðlega hugtaks „finnlandisering”. Haukur Helgason. Kjallarinn Sólarkveðja með átthagarembu Fyrsti mars. Þaö er logn, skýjaö og hitinn átta gráöur. Sólskin var í gær. Svosem ekkert sérstakt veöur, en menn mega þó þokkalega við una þegar tillit er tekiö til árstímans. Rás 2 var eitthvaö aö tala um rok og rigningu fyrir sunnan í gær. Þetta getur varla staðist. Slíkt veðurlag hélt maöur aö væri óþekkt í hinum sælu, sólríku Suöurbyggðum. Selstöðukaupmenn Þaö er upphafið á veldi hinna sælu Suöurbyggöa aö í þeim stað er þá var nefndur Hólmskaupstaður, eða bara Hólmurinn, reis dönsk selstöðuversl- un, og aðrir verslunarstaöir risu til dæmis í Hafnarfirði og á Suðurnesj- um. Þá tóku ýmsir æöstu umboðs- menn hins erlenda einveldis sér ból- festu á þessu svæöi og útrýmdu hinum fornu og merku höfuðstööum REYNIR ANTONSSON STJÓRNMÁLAFRÆÐIIMGUR AKUREYRI fullkomnustu forrit, þá er alls ekki víst aö hin kalda rökvísi tölvanna gefi þau svör sem óskaö er. Þaö er nefnilega engan veginn víst aö þessir þjóöflutningar séu eins hagkvæmir eins og menn vilja vera láta. Þaö eru mörg rök sem hníga aö því að hagkvæmt sé aö halda öllu land- inu í byggö. Hér skal ekki frekar fjallað um hin mannlegu rök sem engar tölvur, hversu fullkomnar sem þær eru geta metið. Þessi mannlegu rök kalla sumir einu nafni átthaga- rembu og virðast ýmsir Reykvíking- ar engir eftirbátar annarra í þeirri list. Víkjum þá aö þeim beinu hag- rænu rökum sem færa má aö byggða- stefnu. Þá ber fyrst aö nefna öll þau verömæti sem fara myndu í súginn ef þjóöin öll yröi flutt til Suöur- byggða, öll milljónamannvirkin sem stæðu ónotuö þegar þjóöin væri komin „suður á bankanna vald”. Þá ber aö nefna öll þau vandræði sem af því myndu hljótast ef eitthvaö brygöi út af meö veöurfar á því takmarkaða svæöi sem ætlaö væri til landbúnað- ar, en sem kunnugt er, þá er það sjaldgæft svo ekki sé meira sagt að illa ári samtímis í öllum landshlutum. Vísast um þetta mál til Veðurstofu Islands sem staðsett er í Reykjavík og ætti því ekki aö gefa rangar upplýsingar landsbyggöinni í hag. Þá hef ég ekki enn heyrt þess getið aö virkjanir sem því nafni geta heitiö hafi veriö reistar í Reykjavík. „Mörgum sveitarstjórnarmönnum á sjálfu höfuðborgarsvæöinu er farið að óa við útþenslu þess og vilja breytta stefnu, enda sjálfsagt enginn leikur að stjórna borgarskrimsli." Almannavarnir Hér skal aö lokum nefndur einn þáttur sem lítið hefur farið fyrir í allri umræðunni um byggöamál. Reykjavík stendur á mörkum tveggja hættusvæða. Annars vegar hins mikla jarðskjálftasvæöis á Suðurlandi og hins vegar eins virkasta eldgosasvæðis landsins á Reykjanesi. Svo gæti hæglega farið aö neyöarástand skapaðist í hinum blómlegu Suðurbyggöum vegna náttúruhamfara, og yröi því ekki lítiö öryggi í því að vita af allstórum, blómlegum þéttbýliskjörnum í öörum landshlutum, þó ekki væri nema til aö koma í veg fyrir hungurs- neyð, að ógleymdum þeim mögu- leika aö til staðar væru í landinu fullkomin sjúkrahús sem slyppu alf arið viö skemmdir. Þaö kann aö vera aö eitthvaö þurfi aö grisja byggðina í landinu og lík- lega er sú stefna í byggðamálum hagkvæmust aö byggja upp þrjá til fjóra öfluga höfuðstaði í landinu 9 „Þessi mannlegu rök kalla sumir einu nafni átthagarembu, og virðast ýmsir Reykvíkingar engir eftirbátar annarra í þeirrilist.” landsins og menningarsetrum Hólum og Skálholti, aö ógleymdum sjálfum Þingvöllum. Allt þetta gerðist á mesta afturfararskeiöi þjóðarinnar fyrr og síöar. Sú söguskoöun Baldurs frænda míns Hermannssonar að hengja ætti stór- riddarakross á danska selstöðukaup- menn og embættismenn ásamt íslenskum leiguþýjum þeirra, aö sjálfsögöu aö þeim látnum, kann að eiga fullan rétt á sér. Að minnsta kosti verður því ekki neitað aö frum- leg er hún. Tilviljanir Ef frá er talin þjóðsagan um ribb- aldaforingjann Ingólf Arnarson sem vann sér þaö helst tii frægðar aö myröa þræla bróður síns fyrir þá sök eina aö þeir losuðu sig viö kvalara sinn, þá verður að segjast aö vöxtur og viögangur Reykjavíkur og ná- grennis hefur aö miklu leyti oröið fyrir röö meira og minna samverk- andi tilviljana. Framsýni einstakra manna eöa náttúrugæði, hvaö þá veöursæld, eiga þarna sáralítinn þátt. Hér gefst ekki rúm til að f jalla um þessa þætti, en nefna má í þessu sambandi þilskipaútgerö einkaaöila sem leiddi til hrikalegrar rányrkju á Faxaflóanum, hermangsgróöa, og síðast en ekki síst gífurlega sam- þjöppun efnahagslegs og pólitísks valds sem á síðustu áratugum hefur leitt til hreinnar nýlendustefnu meö tilheyrandi fjármagnsflutningum, oft á tíðum jafnvel í nafni byggða- stefnu, sbr. höll framkvæmdastofn- unar viö Rauðarárstíginn. Af hverju byggðastefnu Það kann aö vera aö hinir tölvu- væddu hagspekingar á Nordalsstöð- um (þaö musteri mun reyndar aö verulegu leyti vera reist fyrir lands- byggöarfé) kunni aö meta þær nýju hugmyndir sem litið hafa dagsins ljós, aö best sé aö flytja allan skrílinn á gósenheiöar Suöurbyggöa. En þó þeir þykist hafa búiö til heimsins (þar á meöal Isafjörð) ásamt nálægum sveitum. En fara verður varlega í slíka grisjun og taka fuUt tiUit til mannlegra sjónarmiöa. Annars eru þaö ekki landsbyggðar- menn einir sem nú tala um nauðsyn jafnvægis í byggð landsins. Mörgum sveitarstjómarmönnum á sjálfu höfuöborgarsvæöinu er fariö aö óa viö útþenslu þess og vUja breytta stefnu, enda sjálfsagt enginn leikur að stjórna borgarskrimsli. Svo viö tökum nú bara eitt dæmi. Hvar á aö fá heimdislækna handa öllum Isfiröingunum þegar þeir eru komnir í Breiöholtið. Og hvar á að taka peninga tU aö byggja fyrir þá skóla, félagsmiöstöövar eUUieimUi og annaö það sem ómissandi véröur að teljast í nútíma borgarsamfélagi? Reynir Antonsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.