Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Blaðsíða 16
16 DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985. Spurningin Hverjir heldurðu að hreppi íslandsmeistara- titilinn í körfuknattleik? Bragi Guðjónsson slökkviliðsmaður: Það verða Njarðvíkingar sem vinna að þessu sinni. Vigdís Þorvaldsdóttir jarðfræðingur: Nú veit ég ekki. Ætli ég veðji samt ekki á Valsliöið. Ingvar Guðjónsson starfsmaður: Ég fylgist ekkert meö körfubolta og stendur alveg á sama um hverjir hreppaþarsigur. Plútó, gæludýr í Giæsibæ: Eg hef alveg tröllatrú á liöi Hauka úr Hafnarfirðin- um. Þeir taka Njarðvíkingana í úr- slitaleiknum. Árni Níelsson verslunarmaður: Það er ekki gott að segja. Helst hef ég trú á liöi Njarövíkinga. Málfríður Amórsdóttir verslunarmær: Ég hef ekki hugmynd um þaö og treysti mér ekki til aö veðja á neitt sér- staktlið. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Svargrein: STEINDÓRSMÁUÐ Kominn tími til að leigubílstjórar taki þátt i eðlilegri og heiðarlegri samkeppni, segir Guðmundur m.a. í svargrein sinni. Guðmundur R. Ásmundsson, fram- kvæmdastjóri á Sendibílum hf. á Steindórsplaninu skrifar: I DV föstudaginn 8. mars bhtist grein, undir fyrirsögninni Steindórs- stöðinni verði lokað, skrifuö af Skildi Eyfjörð leigubílstjóra sem er þekkt- ur fyrir allt annaö en prúömennsku. Efni bréfsins þykir mér staðfesta aö umræddur leigubílstjóri hugsar ekki eins og annað fólk, hvað þá aö hann fari meö rétt mál. Leigubílstjórar hafa stundaö þann ósóma í áratugi aö aka út vörum og eru nú komnir meö sérstaka skutbíla í þannig verk! Sendibílstjórar hafa reynt aö standa á rétti sínum og fá leigubílstjórana til að hætta þessari iöju en jafnan veriö svaraö á leið aö viðskipta- vinurinn réöi viö hvem hann verslaði og þaö væri eðlilegt aö leigubílar stunduöu þessa vinnu þar seiu þeir væru ódýrari. Þegar Sendibílar h/f hófu rekstur sendibíla á Steindórs- planinu byrjuðu þeir meðal annars meö nýja stærö sendibíla sem viö höfum kosið að kalla greiöaþjónustu- leigubifreiðar. Það eru smásendi- bílar sem bera 650 kg og eru 3mJ aö innanmáli. Þessir bílar em ódýrari í innkaupum en leigubifreiðar til mannflutninga og þess vegna eru þeir með talsvert lægri taxta. Þessu hefur fólk áttaö sig á og mörgum finnst hagkvæmt aö skutlast á milli staða á svona bíl. Viö skulum athuga að lægsta kaup verkamannsins er í dag ekki meira en 81,20 á tímann. Startgjald leigu- bíla til mannflutninga er kr. 95.00 en greiðaþjónustuleigubifreiðar kr. 75.00. En hvað segir einokunar- hringur ieigubílstjóra viö þessu? Þeir reka upp mikinn harmagrát og væla um lögbrot og annaö í þeim dúr og nú er ekki lengur eölilegt að við- skiptavinurinn leiti þangaö sem þjónustan er ódýrust. Er ekki kominn tími til að þessir menn taki þátt í eölilegri og heiðarlegri sam- keppni um markaðinn eins og aörar stéttir þjóðfélagsins? Varöandi þá atburöi er geröust aö- faranótt sunnudágsins 3. mars skal tekið fram aö alvarlegast af öllu er þegar leigubílstjórar tóku sér vald sem þeir ekki hafa meö því að svipta menn ferðafrelsi sínu. Svo langt gengu þeir í þessum kjánaskap sínum að þeir ollu eignatjóni með því aö aka á eina af bifreiðum okkar. Skjöldur segir að einn þessara bíl- stjóra sé réttindalaus meö öllu, en umræddur bílstjóri hefur öll réttindi til aksturs leigubíla og samkvæmt stjómarskrá Islands er óheimilt aö hefta atvinnufrelsi hans þar sem al- mannaheill krefst þess ekki. Þess má enn fremur geta að þessi maður er óumdeilanlega meö upp undir heilu ári lengri starfstíma í leigu- akstri en Þorgils Þorvarðarson, leigubílstjóri á BSR, úthlutunar- maöurinn sem úthlutaði sjálfum sér atvinnuleyfi viö seinustu úthlutun at- vinnuleyfa síöastliðið haust. Um- ræddur Steindórsmaöur hefur ítrekaö reynt aö leita réttar síns til samgönguráðuneytisins sem hefur ekki einu sinni haft fy rir því að svara málaleitanhans. Magnús varð fyrir óskemmtilegri reynslu í sambandi við víxlaviðskipti. Válegur víxill Magnús Guðmundsson skrifar: Snemma á síöasta ári lagöi ég leiö mína í bankastofnun, (viö getum kallaö bankann B.bankann) og fékk þar fyrirgreiðslu, kr. 30.000,- til tveggja mánaöa, sem ekkert var nema gott um að segja. Þetta var nánast helmingur af því sem ég fór fram á en þaö virðist vera háttur bankanna að lána einstaklingum aldrei meira en helming þess sem þeir fara fram á. Nú líður tíminn og komið aö gjalddaga þessa ágæta víxils en í millitíðinni haföi mér áskotnast sjálfskuldarábyrgöar- bréf (bankamál) aðupphæðkr. 63.500,- og var þetta bréf til sex mánaða. Hugs- aði ég mér nú gott til glóðarinnar og hélt meö bréfiö mitt á fund banka- stjóra í þessum ágæta banka (við getum kallað bankastjórann S.P.) og sýndi honum bréfiö mitt sem ég baö hann um aö kaupa af mér og gera þar meö upp skuld mína viö bankann, ásamt annarri smáskuld sem var þar fyrir og var mér viðkomandi. S.P. tók mjög vel í þessa málaleitan mína, bað mig um aö skilja bréfið eftir og sagði mér aö þetta mundi allt vera í góðu lagi. Eg fór hinn ánægöasti úr bankanum og dásamaöi þessa öölinga við alla sem á mig vildu hlusta því aö við svona banka átti maður aö eiga viðskipti. En því miöur var Adam ekki lengi í paradís því aö ekki var liðinn nema ea mánuður þegar ég fæ bréf frá lögfræö- ingi B. bankans þar sem mér er tjáö að ég skuldi bankanum víxil og ef ég ekki borgi innan ákveðins tíma veröi mér veitt aöför samkv. lögum. Mér brá aö sjálfsögðu og flýtti mér á fund S.P. sem rámaöi í málið og lét fletta upp hvenær hann hefði veitt mér viötal, sagöi hann mér bara að vera rólegum, þetta væru smá vægileg mistök og aö B. bankinn mundi hafa samband viö mig, sem auövitaö var gert, því strax næsta dag hringdi til min maður sem kynnti sig sem yfirmann verðbréfadeildar B. bankans. Hann sagöi mér að eitthvað heföi fariö úrskeiðis hjá bankanum og þeir heföu því miöur tapaö eða mislagt bréfiö mitt, en ég skyldi engar áhyggjur af þessu hafa þar sem þeir mundu auglýsa bréfið glataö og væri ég laus ailra mála. En eitthvað hefur þetta nú breyst á þessum tíma því ég hélt áfram aö fá vinsamlegar orðsendingar frá lögmanni bankans og þar sem vinsamleg tilmæli hræra allt- af mitt litla hjarta lagði ég fyrir hann málið eins og það gekk fyrir sig jafnframt því aö láta hann hafa ljósrit af skuldabréfinu. Þessi ágæti lögmaður tjáöi mér að hann skyldi kanna máliö og ég mundi fá að heyra um lyktir þess innan skamms, sem aö sjálfsögöu var rétt hjá honum. Eg hef fengiö aö heyra frá þeim sem ábyrgðust greiöslu víxilsins sem ég upphaflega fékk lánaöan hjá B. bankanum því aö þaö var verið aö gera hjá þeim lögtak fyrir kr. 30.000,- auk vaxta og kostnaöar. Svo aö í dag stend ég uppi 63.500,- kr. fátækari því S.P. kannast ekki lengur viö málið, skuldugur við B. bankann og búiö að gera lögtak hjá tveim vinum mínum bara fyrir þann aulaskap minn aö treysta S.P. fýrir bréfinu mínu og heimta ekki hjá honum kvittun þegar ég á sínum tima afhenti honum bréfiö. Toskutal yfiiiæknis Kristrún Guðmundsdóttir hringdi: Þegar ég las fyrirsögn á forsíöu DV 7.3. þar sem stóö: „Yfirlæknir um barnaruglinginn: Eins og aö taka vit- lausa tösku” hélt ég aö þama væri á ferðinni óráðshjal óvita manns. Þegar maður les áfram kemst maöur aftur á móti aö því aö hér er um aö ræöa mann í mjög ábyrgri stöðu og þaö aö hann skuli álíta börn landsins ekki merkari en einskisnýtar töskur, sem maður tekur í misgripum, er forkastanlegt. Eg vorkenni mjög f jölskyldum þeirra manna sem álíta börn ekki meira virði enþaö. Yfirlæknirinn getur aö vísu ekkert gert aö mannlegum mistökum er starfsfólk hans gerir, en mér finnst hann ekki mega láta svona orð út úr sér. Bréfritari álitur böm landsins merkari en einskisnýtar töskur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.