Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Side 14
14
DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985.
Getum afgreitt með stuttum fyrir
vara rafmagns- og dísillyftara:
Rafmagnslyftara, 1,5-4 tonna.
Disillyftara, 2,0-30 tonna.
Ennfremur snúninga- og hliöarfærslur.
Tökum lyftara upp í annan.
Tökum lyftara í umboössölu.
Flytjum lyftara um Reykjavík og nágrenni.
Littu inn — viö gerum þér tilboð.
LYFTARASALAN HF.,
Vitastig 3, simar 26455 og 12452.
1 x; l-1 l x; í- 1 esi x 1
28. leikvika — leikir 9. mars 1985
Vinningsröð: 1 X X -X"2 X - X X 1 - 1 X X
1. vinningur: 11. réttir, kr. 71.960,-
698 86279(6/10)+ 89840(6110)+
61474(4/10)+ 87347(6/10) 54096(4/10) - úr 27. viku
2. vinningur: 10 réttir, kr. 1.434,-
294 11535 41721 54198+ 86240+ 90027 35505(2/10)
3733+ 15187 41722 54364+ 86245+ 90393 41208(2/10)+
3904 15498 42187+ 54374+ 86273+ 90704 41637(2/10)
5296 16167 43698 57047 + 86992 91037 52055(2110)
5307 17535 44477 57129+ 87207 91712+ 58734(2/10)+
6974 1B751 44621 61477+ 87344 92447 63386(2/10)+
6978 19273 44743 63057 87348 93906 88398(2/10)
7442 35954 45021 63286 87709+ 94354 90112(2/10)
7782 38257 46736 64557+ 88993+ 94422 183150(2/10)+
9081 38258 47932 64684+ 89836+ 94425
9086 39260 51318+ 66356 89838+ 94427 Llr 27. viku:
9094 40243+ 51908 66360 89839+ 95634 50209
9635 40246+ 52515 85211 89844+ 95829+
9923 40858 53837 85951 + 89919 165768
Kærufrestur er til 1. apríl 1985 kl. 12.00 á hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöð fást
hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykja-
vík. Vinningsupphæðir geta lækkað ef kærur
verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að fram-
vísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýs-
ingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir
lok kærufrests.
Getraunir — íþróttamiðstöðinni — Reykjavík
Sjálfsvörn
Ruddaleg árás
á gamlan mann
, ||lit>. .» ■ w« í*m»ll 0»»
mt >«> .1. •i„» 1.1..I1.I. í« >»•• h»iu> w* >•> hrí«f '«•»<*»* » íu**»'
BeJíi með
síálgödd-
u/n beitt í
íólsku-
kgri árás
'l'veir ungir
menn réd-
W á 85
Vegna mikillar eftirspurnar mun Karatefélagið Þórshamar
gangast fyrir námskeiði í sjálfsvörn sem stendur yfir í 3
mánuði. Eingöngu munu verða kennd valin sjálfsvarnar-
atriði sem byggjast að mestu á karate. Kennarar hafa allir
stundað karate í 3—8 ár. Aldurstakmark 16 ára og eldri.
Bæði fyrir konur og karla.
Tímar: Mánudaga kl. 8 —9 e.h. og
föstudaga kl. 8—9 e.h.
að Skipholti 3, 2. hæð.
Ath.: Lokað námskeið þar sem kennt verður það sem að
notum kann að koma í sjálfsvörn, t.d. vörn gegn hnífa-
árás, losun ýmissa hengingartaka og fallbrögð. Auk þess
varnir gegn höggum og spörkum.
Innritun og uppl. í símum 20626 og 16288 kl. 17.00—
21.00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Menning Menning Menning
„Leikur hljómsveitarinnar var eins og hann gerist bestur, hljóðfœraleikararnir lögðu sig alla fram og
greinilegt var að vel hafði verið unnið."
Wagner
í Háskólabíói
Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar Islands í Há-
skólabíói fimmtudaginn 7. mars 1985.
óperan Hollendingurinn fljúgandi eftir Wagner
flutt (konsertformi.
Flytjendur auk hljómsveitarinnar:
Lisbeth Balslev, Sylvia Stone, Hartmut Welk-
er, Manfred Schenk, Ronald Hamilton, Sigurfl-
ur Björnsson.
Söngsveitin Fflharmonia, kórstjóri Guömundur
Emilsson, og Karlakór Reykjavikur, kórstjóri
Páll P. Pálsson. Stjórnandi Klauspeter Seibel.
Fram til þessa hafa íslenskir tón-
listarunnendur þurft aö leita út fyrir
landsteinana til aö heyra og sjá
Wagneróperur, en síðastliðinn
fimmtudag var Hollendingurinn
fljúgandi fluttur í Háskólabíói. Það
var því að vonum að menn ruku upp
til handa og fóta, og var uppselt á
tónleikana viku fyrr en þeir voru
haldnir. Og áheyrendur urðu sannar-
lega ekki fyrir vonbrigðum.
Hollendingurinn fljúgandi var
saminn á aöeins 7 mánuðum og var
frumfluttur í Dresden í byrjun árs
1843. Þá vakti verkið enga sérstaka
hrifningu og náöi ekki verulegum
vinsældum fyrr en allmörgum árum
síöar. Wagner skrifaöi óperutextann
sjálfur, svo sem í öðrum óperum sín-
um, og byggði hann á þjóðsögu sem
Heine færöi í letur. Þar greinir frá
manni sem hefur með yfimáttúrleg-
um hætti hlotið þann örlagadóm að
sigla um heimshöfin uns hann hljóti
endurlausn vegna ástar konu.
Stíll Wagners líkist oft leikhúsi
stefjanna, þar sem þau birtast eins
og persónur í rás verksins og reynd-
ar samhliða viðeigandi persónum
óperunnar. Ymsum hefur þótt þetta
heldur þreytandi tónsmíðaaðferð en
koma þá e.t.v. ekki auga á drama-
tískan tilgang verkanna. Markmið
Wagners var nefnilega að skapa
músík-drama og hér eru því ekki á
ferðinni venjuleg tónverk; reynslan
sýnir að annaðhvort taka menn
þeirri hugmynd vel eða illa.
í Hollendingnum er leiðistefjahug-
myndin ekki oröin jáfnáberandi og í
síðari verkum Wagners en þó má
segja aö stef hollensku sæfaranna sé
notað sem leiðistef, orðið vel kunnugt
í lok verksins.
Skemmst er frá því að segja að
flutningur óperunnar var með mikl-
um ágætum. Farið var hægt af stað,
en eftir því sem á leið magnaðist
spennan og flytjendur sýndu meiri
áræðni í viðureigninni við þessa
dramatísku tónlist. Þannig var for-
leikurinn vel spilaður en kannski
varfæmislega um of, og raunar má
segja að Hollendingurinn næði ekki
fluginu fyrr en í 2. þætti. — Leikur
hljómsveitarinnar var eins og hann
gerist bestur, hljóðfæraleikaramir
lögöu sig alla fram og greinilegt var
að vel hafði verið unnið. Strengja-
Tónlist
Atli Ingólfsson
Hanna G. Sigurðardóttir
sveitin var vel samhæfö og átti eftir-
minnilega spretti í stormmótívunum
hröðu. Gjaman hefðu strengirnir þó
mátt vera fleiri og var skorturinn
einkum áberandi framan af, en þá
bar við að málmblásarar næðu yfir-
höndinni á köflum. Tréblásarar léku
vel svo sem þeirra var von og vísa og
stóðu sig best þegar mest á reyndi, í
hinum veikt leiknu og viðkvæmu
tengiköflum.
Söngsveitin Fílharmonía og Karla-
kór Reykjavíkur lögðu saman krafta
sína og mynduðu heljarmikinn söng-
flokk. Reyndar syngur kórinn sjald-
an allur í einu en er oftast nær skipt
upp í karla- og kvennakór. Upphafs-
söngur karlakórsins í fyrsta þætti
var með hressilegum sjómannsbrag
svo sem hæfði, en ekki náði kórinn að
hljóma alvegsaman; var frekar eins
og um stakar raddir væri að ræða en
eina heild. Þetta lagaðist þó og í
þriðja þætti stilltu kariarnir saman
raddir sínar og náðu ágætis sam-
hljómi. Kvennakórinn kom aðallega
við sögu í öðrum þætti og var söngur
hans einkar hljómfagur. Það var
áhrifamikiö atriði þegar draugakór
Hollendinganna var leikinn af segul-
bandi á móti kór norsku sjómann-
anna, og komst hinn annarlegi blær
vel til skila með því að láta drauga-
kórinn hljóma úr hátölurum. Erfið-
leikamir í samstillingu flytjenda á
sviði og segulbands juku óneitanlega
á spennuna, ekki hvað síst hjá hljóm-
sveitinni sem lék af þvílíkum krafti
að strengjafæð gleymdist áheyrend-
um með öllu.
En það voru einsöngvararnir sex
sem stóðu í eldlínunni öðrum fremur,
allt miklir ágætissöngvarar. Ekki
mun á neinn hallað þó sagt sé að Lis-
beth Balslev hafi verið stjarna
kvöldsins. Söngur hennar var alveg
makalaus og túlkunin áhrifamikil.
Þá var Hartmut Welker eftirminni-
legur í hlutverki Hollendingsins og
sömuleiðis Ronald Hamilton í hlut-
verki hins örvæntingarfulla Eriks.
Einnig er vert að geta þáttar Sigurö-
ar Bjömssonar sem tók að sér hlut-
verk stýrimannsins með nánast eng-
um fyrirvara og skilaði sínu með
mikilli prýði. Jafnvægi söngs og
hljómsveitar var oftast nær gott en í
fyrsta þætti bar þó við að hljómsveit-
in yfirgnæfði söngvarana þegar
sterkast var leikið. — Vandinn við
konsertuppfærslu sem þessa er aö
koma til skila heildaráhrifum óper-
unnar með hljómlistinni einni sam-
an, án þess að hafa stuðning af sviðs-
mynd og leikrænum tilþrifum. Flest-
ir söngvararnir notuöu látbragð án
þess þó að yfirdrífa og gæddu
persónumar auknu lífi með því móti.
Mestan heiðurinn af þessari ágætu
óperuuppfærslu hlýtur stjórnandinn,
Klauspeter Seibel, að eiga, en hann
hefur áður örvað hljómsveitina til
dáða og er mikill fengur í að fá hing-
að slíka afbragðs gestastjómendur.
Þessi fyrsti heildarflutningur Wagn-
eróperu á Islandi var öllum aðstand-
endum til hins mesta sóma.
ATL/HGS.
Flautuleikur á Kjarvalsstöðum
lokaprófstónleikarÞórunnar Guðmundsdóttur fiautuleikara
Þórunn Guðmundsdóttir þreytir í
kvöld að Kjarvalsstöðjim fyrri hluta
einleikaraprófs í flautuleik frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík. I samtali
við DV sagðist Þórunn ætla aö leika
verk eftir Bach, John Speight, Georges
Enesco og Prokofieff. „Þegar próf-
verkefni er annars vegar er reynt að
hafa efnisskrána fjölbreytta og bjóða
upp á bæði gamalt og nýtt,” sagði Þór-
unn. „Það sakar auðvitað ekki að allt
eru þetta gullfalleg verk.”
— Þú hefur valiö þér flautuna sem
hljóðfæri. Er flautuleikur að verða
tískufyrirbæri?
„Jú, það eru töluvert margir að læra
flautuleik um þessar mundir. Það er
samt ekki hægt að kaila flautuna tísku-
fyrirbæri því hún hefur verið vinsæl
lengi. Það kemur margt til að hún er
sérlega vinsæl núna. T.d. hefur
Manuela Wiesler vakið athygli og
áhuga á þessu hljóðfæri hér á landi.”
— Ereinleikarapróferfiöþraut?
„Ja, það þarf ekki endilega að vera
það en auðvitaö er þetta svolítið átak
þegar þaö bætist við önnur störf. Eg
kenni líka á flautu og aö auki læri ég
m.a. söng í Tónlistarskólanum. Eg læt
sönginn sitja á hakanum fram yfir
prófið en verð að taka hann föstum
tökum eftir það því ég stefni einnig að
prófi í söngnum í vor. Síðan fer ég
vonandi út í haust að læra meira,”
sagði Þórunn að lokum.
Undirleikarar á tónleikum Þórunnar
verða Elín Guðmundsdóttir sembal-
leikari og Dagný Björgvinsdóttir
píanóleikari. Tónleikamir hefjast kl.
21.00 á Kjarvalsstööum. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.