Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1985, Qupperneq 36
36
DV. MIÐVIKUDAGUR13. MARS1985.
Þekkið þið hana Barbie? Barbie
er dúkka sem allar stúlkur þrítug-
ar og yngri þekkja. Astæða þess að
við crum að tala um Barbie hér er
að hún er 26 ára á þessu ári. Barbie
ber aldurinn vei og bætir sifeilt föt-
um í kiæðaskápinn.
Hún hefur meðal annars klæðst
gelmfarabúningi, læknaslopp o.fl.
o.H.
Stórsöngvarinn Julio Iglesias
hefur fengiö boð um að halda sér
saman í náinni framtið. Astæða
þess er að kverkaskitur mun herja
grimmilega á söngvarann og fyrr-
greint boð fyrirskipun frá læknum
hans. Julio hefur ekki komið fram
nýiega og mun ástæðan vera þessi
ræma og skítur sem þjáir kappann.
★ ★ ★ *
Sneggsti tölvuprentari sem sögur
fara af var prófaður á dögunum i
Kaliforníuháskóla. Hann reyndist
geta prentað Bibliuna á 65 sekúnd-
um. Til gamans má geta þess að
Biblían telur ails ríflega 773.000
orð.
Tímarnir breytast og mennirnir
með. Bob Gnccione, sá sem gefur
út tímaritið Penthouse, segist hafa
verið mjög trúaöur sem barn.
Hann hafi jafnvel hafið prestsnám
en hætt við það fljótlega. Naumast
hafa það verið sinnasklptin. Ur
prestskap í kiámblaðaútgáfu.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Svii
Já, það getur tekið á að vera blaðaljósmyndari. Myndin er tekin á ræðukeppni framhaldsskóla sem greint
var frá í gær og er af Ijósmyndara á einu dagblaðanna. DV-mynd KAE.
TTXj
<■ - i
■ > j
i- j
Þaðmávístekki
bjóða yðurte?
Aztekar hinir fornu virðast hafa
vitað lengra en nef þeirra náði, ef
marka má nýlegar uppgötvanir
vísindamanna. Komið hefur í ljós
að þeir notuöu sérlegt jurtate sem
getnaöarvörn, e.k. getnaðar-
varnarte. Vísindamenn sýna þessu
nú mikinn áhuga og aö sögn dr.
Xavier Losoya, sem er fræðimaður
viö mexikanskan háskóla, vonast
menn til að rannsóknir á teinu, eöa
öllu heldur þeim jurtum, sem not-
aðar voru við tilbúning þess, geti
orðið til þess að hægt verði að bæta
og auka öryggi getnaðarvamarpill-
unnar, „P-pillunnar” svokölluöu.
Aztekar gátu með góðu móti haldið
aftur af bameignum með aðstoö
tesins góða. Máske viö sjáum nýja
gerð af Melroses-tei á markaðnum
innan skamms.
\
Stjúpsystur
Til eru þrjár heiðurskonur hér á
landi sem kalla sig Stjúpsystur eða
„stupid” systur, eins og sumir vilja
nefna þær. Þær skemmta lands-
mönnum með gleði og söng og hafa
gert það um tíma. Þær stöllur taka
þátt í „Þórskabarett” sem sýndur er
á einu veitingahúsanna í Reykjavík
nú í vetur sem undanfarna vetur.
Þær hafa einnig skemmt á árshátið-
um og viðlíka skemmtunum að und-
anförnu. Þær Stjúpsystur eru: Guð-
rún Alfrcðsdóttir, Saga Jónsdóttir og
Guðrún Þórðardóttir. Hér eru syst-
urnar að skemmta slökkviliðsmönn-
um með söng sínum og sprelli.
FAÐU ÞER
SOPA,
VÆNI
Þetta litla grey er riyfæddur
broddgaltarungi sem fannst á
vegarkanti nálægt borg einni i
Austurriki. Það var góðhjörtuð
kona sem tók hann að sér og
nefndi hann ,,Hr. heppinn"
Hann er nu á sérstakri fæðis
blöndu, en þegar hann hefur
náð 3 mánaða aldri fær hann
það að borða sem ungbörnum
er gefið
Áútopnu
Segja má að þessi mynd slái allt
út. Myndin sýnirKioshi Nakahata í
hita leiksins. Hann spilar meö einu.
besta homaboitaliöi heimalands
síns, „Tokyo Giants”. Mun herra
Nakahata vera með skotfastari
mönnum þarlendis. Myndin er tek-
in í leik liðanna Tokyo Giants og
Atlanta Braves, sem fram fór ný-
lega í West Palm Beach í Banda-
ríkjunum.