Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Blaðsíða 1
DAGBLADIЗVÍSIR
67. TBL. - 75. og 11. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 1985
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar:
Þessi hollenska kaf bátaleítarflugvél blasti viA blaðamanni og Ijósmy ndara DV
é Keflavikurflugvelli I g»r. Þé vaknar sú spurning hvort hollenskar áhafnir
sem rœtt hefur verið um að verði staðsettar hér é landi séu þegar komnar.
Sverrir H. Gunnlaugsson, deildarstjóri Varnarméladeildar, sagði að flugvélar
fré öðrum NATO-löndum stöldruðu oft hér vfð til að hvíla éhafnir sínar og taka
þátt í æfingum með varnarliðinu i nokkra daga. Hins vegar vœri ekkl um aö
ræða að hér væru éhafnir hollenskra flugvéla til lengri tima. Fyrir liggur um-
sókn fré Hollendingum um að hér verðf ein flugvél ésamt áhöfn og viðhalds-
fólki.
-AE- DV-mynd GVA.
Skuldimar hrikalegri
Skuldir Bæjarútgerðar Hafnar-
f jarðar eru hrikalegri en upplýst var
fyrir áramót er ákveðið var að stofna
hlutafélagiö Otgerðarfélag Hafn-
firðinga um reksturinn. Núna hafa
menn komist að því að heildar-
skuldirnar eru 477,7 milljónir, þar af
eru skammtímaskuldir 257,8
milljónir, að því er Helgi Númason
bæjarendurskoðandi tjáði DV.
„Það er alltaf að koma upp svart-
ari og svartari mynd af þessu,”
sagði Þorsteinn Steinsson bæjarrit-
ari.
Orðiö veðsvik kemur fram í
plöggum sem gengiö hafa á milli
banka og bæjarútgerðar.
Miklar umræður eru í stjóm
bæjarfélagsins þessa dagana um út-
geröina. Bæjarstjórnarfundur var í
gærkvöldi og snemma í morgun
hittust áhrifamenn á skrifstofu
bæjarstjóra.
Góöir
öskukallar
ÍAmeríku
— sjábls.7
Lyfgegnherpes
— sjábls.9
Dýrtsúkkulaði
ífíugvél
— sjábls.7
Bco
ífangelsi?
I — sjá fþróttirbls. 21
Veiddilax j Ólympiumeist-
með biásýru ararnirsigruðu
— sjá bls.8 — sjá bls. 2
Hlýrsjór Stjómhinna
lofargóðu vinnandistétta
— sjá bls. 18 1 1 — sjá bls. 14
Aðgerðirnemenda:
Setuverkfall
íráðuneytinu
Hópur nemenda úr ýmsum skólum
haföi ákveðið að setjast að i f jármála-
ráðuneytinu í morgun. Setan átti aö
hefjast klukkan 11. Ekki var vitað
hvort orðið hefði úr þessum áætlunum
þegar blaöiö fór í prentun. „Við erum
bara orðin þreytt og ætlum að gera
eitthvað til að sýna að við séum til,”
sagði einn nemandi úr MH í morgun.
Kristján Thorlacius, formaður HIK,
ætlar að mæta á fund í dag hjá fjár-
málaráðherra og ræða kennaramál.
Þannig að í dag beinist athyglin að
fjármálaráðuneytinu.
APH
Bændamál
f ríkisst jórn
I gærmorgun samþykkti ríkisstjórn-
in að endurkaup Seðlabankalslandsá
afuröalánum landbúnaðar og iðnaðar
verði felld niður. Verða lánin að öllu
leyti flutt til viöskiptabankanna. Er
þetta gert í samræmi við stefnuyfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar frá 26. maí
1983.
Á sama fundi samþykkti ríkisstjóm-
in að viðskiptaráðherra skipi nefnd til
aö gera tillögu um að bændur geti frá 1.
mai nk. fengiö innlagða mjólk greidda
aö fullu innan mánaðar og sláturafurð-
ir um næstu áramót.
-EK.
Alþjóðaskákmótið:
Lein er enn
efstur
Fimmta umferð skákmótsins á
Húsavík var tefld í gær. Enduðu allar
skákimar meö jafntefli nema ein.
Zuckerman gerði jafntefli við Helmers
eftir 10 leiki, Áskell Kárason gerði
jafntefli við Helga Olafsson. Skák Jóns
L. Arnasonar og Guðmundar Sigur-
jónssonar lyktaði með jafntefli. Þá
sigraði Karl Þorsteins Sævar Bjarna-
son.
Eftir síðustu umferð er staöan sú að
Lein er efstur með 4 vinninga, þá kem-
ur Helgi Olafsson með 3 vinninga meö
eina skák frestaða viö Guðmund Sigur-
jónsson. Þrjá vinninga hafa Jón L.
Arnason, Lombardy og Zuckerman.
Jón L. Ámason sagði aö þessi um-
ferð hefði veriö heldur leiðinleg fyrir
keppendur. Hann sagði að keppendur
hefðu kvartað yfir slæmri lýsingu og
hefðu forláta lampar verið settir upp í
gær í salnum sem annars byði upp á
ágæta aðstöðu.
-AE
468 milljónir
í útflutningsuppbætur
Samkvæmt bráðabirgðayfirliti ríkis-
bókhalds vom samtals greiddar 468
milljónir króna i útflutningsbætur á ár-
inu 1984. Þetta kom fram í svari fjár-
málaráðherra við fyrirspurn frá Sig-
hvati Björgvinssyni og Eyjólfi Konráö
Jónssyni á Alþingi í gær.
Þessi upphæð skiptist þannig að 82,5
milljónir króna fóru til greiðslu út-
flutningsuppbóta á mjólkurafurðir, 318
milljónir á kindakjöt, 13,1 milljón á
innmat og 2,3 milljónir á hrossakjöt. Af
þessari upphæð fóru síðan 47 milljónir
króna í vaxta- og geymslugjald, 4,5
milljónir í vexti og tæpar 700 þúsund
krónur í niðurgreiðslu á ull.
ÖEF