Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS1985.
3
Reuter skoðar efnahagsástand og hugsanlegar
kosningará íslandi:
Nordal kennir
öfundinni um
Fréttamaður Reuter fréttastofunn-
ar, Richard Wallis, sendi í gær frá sér
fréttaskeyti þar sem hann fjallar um
ástandið á Islandi um þessar mundir.
Hann veltir fyrir sér likunum á kosn-
ingum innan skamms og kemst að
þeirri niðurstöðu að ekki sé spurning
um hvort heldur hvenær kosningar
verði. Fréttamaðurinn ræddi við Jó-
hannes Nordal, bankastjóra Seðla-
bankans, og hefur eftir honum að það
sé rétt að megn óánægja sé með stefnu
ríkisstjórnarinnar. Kenndi hann þar
aöallega öfund tslendinga um en engu
að síður væri hann allbjartsýnn á
f ramtíðina í efnahagsmálum.
Fréttamaðurinn gerir örlitla úttekt á
íslendingum og segir þá vinnufúsa
með afbrigðum og vilji vinna mikla
aukavinnu, bæði hjón vinni iðulega úti
og þannig haldi menn lífsgæðunum
sem eru að sögn fréttamannsins há.
Ungt fólk eyði miklum tíma í að
skemmta sér og sé tiltölulega blint á
ástandið. Fréttamaðurinn hefur eftir
Svavari Gestssyni að hér á landi sé
enginn sem kalla mætti mjög fátækan.
Talað er um miklar skuldir Islendinga
—
Við höfum framleitt
ÞAKRENNUR
í 83 ár!
Leilið upplýsinga:
BREIÐFJÖRÐ
BUKKSMHUA-STEYPUMÓT-VBgXPALLAW
SICTUNI 7 - 121 REYK JAVlK- SlMI 29022
við útlönd og þá láglaunastefnu sem
hér sá rekin, sifallandi gengi og fleira í
þeim dúr.
Fréttamaðurinn telur að lífsgæðin
hér á landi séu mjög mikil og nefnir
þessu til staðfestingar að hér sé bíla-
eign mun meiri en t.d. í Svíþjóð, þ.e.
408 bif reiðir á hver ja 1000 íbúa hérlend-
is, á móti 353 í Svíþjóð.
Fréttamaðurinn gerir að umtalsefni
þá aöferð sem ríkisstjórnin beitti við
aö koma verðbólgunni niður. Hann tel-
ur að alvarleg skyssa hafi verið að
gefa álagningu frjálsa, það hafi orðið
til þess að verö á vörum hækkaði meira
en góðu hófi gegndi og þröngur hópur
manna í verslunar- og kaupsýslustétt
hafi komist í verulegar álnir á kostnað
hinna.
Fréttamaðurinn telur engum vafa
undirorpið að hér verði kosningar
bráðlega, aðeins sé spuming um nán-
ari tímasetningu. Skoðanakannanir
leiði í ljós fylgishrun annars stjómar-
flokksins, Framsóknarflokksins, en
Sjálfstæðisflokkurinn haldi sínu og líti
nú hýru auga til Alþýðuflokksins (soci-
al demokrats) varðandi nýtt stjómar-
samstarf.
Menn, sem f réttamaðurinn ræðir við,
segja að þeir óttist um framtíð lýðræð-
is í landinu. Fólkið sé orðið langþreytt,
allir flokkar hafi verið við völd og allt-
af séu sömu vandamálin.
Richard Wallis segir svo í lok frétta-
skeytisins að framtíð lands og þjóðar
ráðist að verulegu leyti af verði því
sem fæst fyrir Atlantshafsfiskinn sem
haldið hefur líftómnni í þessari vík-
ingaþjóðílOOOár. -JÞ
Sumarbústaðurinn umdeildi sem farið hefur veriö fram á að verði rifinn.
0
Ofullgerður sumarbústaður rif inn?
Af hálfu Mosfellshrepps hefur
ítrekaö verið farið fram á að sumar-
bústaður, sem byggður var í óleyfi í
landi Mosfellshrepps, veröi fjar-
lægður. Ásbjörn Þorvarðarson,
byggingarfulltrúi Mosfellshrepps,
sagði í samtali við DV að landið, sem
bústaöurinn stæði á, væri ekki skipu-
lagt sem sumarbústaðaland. Farið
hefði verið fram á það við eiganda
bústaðarins að hann fjarlægði hann,
en það hefði ekki verið gert. Að
öðrum kosti yrði hann fjarlægður á
kostnað og ábyrgð eiganda hans.
DV hafði samband við eiganda
bústaðarins, Pál Sveinsson, og
kvaðst hann ekki vera ánægöur með
ákvörðun byggingarfulltrúans.
„Sumarbústaðurinn minn er
byggður í óleyfi eins og önnur hús á
þessu svæði, til dæmis við Hafra-
vatn. I þessu tilviki eru það tvær
reglugerðir sem stangast á, annars
vegar frá árinu 1960 sem leyfir sölu
sumarbústaðalands í landi Olfars-
fells og er bústaöurinn minn byggður
á því landi, hins vegar var gerð
samþykkt árið 1971 sem bannar allar
byggingar á þessu landi nema með
leyfi hreppsins. Mér sýnist helst að
um einræðisákvörðun byggingarfull-
trúa Mosfellshrepps sé að ræða því
að oddviti hreppsis hafði ekki frétt af
þessu þegar haft var samband við
hann.”
Páll sagði að ekki væri hægt að rífa
bústaðinn nema gjöreyðileggja hann
því að hann væri byggður úr sverum
bjálkum sem væru skeyttir saman.
„Eg þyrfti ekki að flytja bústaðinn
nema um 100 metra, inn á land
Ulfarsfells, ef mér væri gefinn
frestur fram á vor. Bóndinn þar
hefur gefið mér leyfi til þess. Á
þessum tima er ekki hægt að koma
neinum tækjum við því að landið er
alltblautt.”
Síðasta ár var byggt við sumarbú-
stað sem stendur nálægt bústaði Páls
' og var eigandinn látinn óáreittur að
hans sögn.
! -ÁE.
TOYOTA
Nybylavegi 8 200 Kópavogi S. 91—44144
Opið á laugardögum kl. 13 til 17.
NOTAÐIR BÍLAR TIL SÖLU
Honda Civic árg. '81, sjálfsk.,
ekin 87.000, grá. Verð 220.000.
Toyota Tercel árg. '80, 4ra dyra,
Ijósbrún. Verð 185.000.
Mazda 929 árg. '81, sjálfak., ekin
40.000, blá. Verð 280.000.
Toyota Corolla disil árg. '84, ekin
85.000, rauð. Verð 380.000.
Toyota Land-Cruiser disil árg. '84,
ekin 8.500, hvít. Verð 1.050.000
Toyota HI-ACE disil, m/gluggum,
árg. '80, ekin 99.000, gul. Verð
320.000.
Einnig Toyota Cressida disii, 5
gíra, ekin 135.000, rauð. Verð
350.000.
Ford Bronco árg. '74, ekinn
124.000, blár. Verð 180.000.
Toyota Carina DL árg. '80, ekin
80.000, gullsans. Verð 220.000.
Toyota Cressida árg. '80, 5 gíra,
ekin 63.000, grá. Verð 250.000.
Toyota Corolla GL árg. '83, sjálf-
sk., ekin 35.000, rauð. Verð
315.000.
Toyota Cressida station árg. '80,
ekin 100.000, brún. Verð 250.000.
Toyota Cressida disil árg. '82,
sjálfsk., ekin 126.000, Ijósblá-
Verð 370.000.
Daihatsu Charade árg. '80, ekinn
43.000, grár. Verð 160.000.
Toyota Camry árg. '83, 5 gira,
vökvastýri, framhjóladrif, ekin
26.000, vinrauð. Verð 410.000.
Toyota Land-Cruiser disil árg. '83,
ekin 40.000, Ijósblá , sans. Verð
900.000.
Toyota Tercel árg. '82, 2ja dyra, 5
gira, blá. Verð 270.000.
CoupóXE
Toyota Carina XE árg. '82, 3ja
dyra, ekin 53.000, Ijósbrún. Verð
330.000.
Einnig Toyota Cressida disii árg.
'81, 5 gira, ekin 156.000, drapp-
lituð. Verð 320.000.