Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Side 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. MARS1985.
19
VIKAX^
ÁEYJU \
RÖBINSONS
0 KRÚSÖ /j
I KONUR
' HINRIKS
ÁTTUNDAI
.HEIMSREISU
' ER x
HÆTTULEGT
AÐHAFA
YFIRSKEGG?
f GETUR '
SKINIÐ Á
NÖTTUNNI
Y KYNLIF TIL >
HEILSUBÓTAR '
EÐA HEILSUBÓT
v AFKYNLÍFI? I
ER HÆGT AÐ
STJÖRNA
SNJÓKOMU?
Nýtt heimsmet í
pönnukökubakstri
Siðastliðinn laugardag var sett heimsmet i pönnukökubakstri i verslun-
inni Viði i Breiðholti. Það var Gunnar Ómar Gunnarsson sem bakaði 2504
pönnukökur á átta klukkutimum. Hann hefur bætt heimsmetið sem var
sett ekki alls fyrir löngu um 612 pönnukökur.
-ÁE/DV-mynd Jóhannes Long.
STARFSLAUN TIL
RITHÖFUNDA
Nýlega var úthlutað starfslaunum úr
Launasjóði rithöfunda fyrir áriö 1985.
Alls bárust sjóðnum umsóknir frá 160
höfundum um 830 mánaöarlaun en þau
eru miðuð við byrjunarlaun mennta-
skólakennara sem eru 20.136 á mánuöi.
Fjárveiting til sjóðsins nam 302 mán-
aðarlaunum og var þeim úthlutað til 93
rithöfunda. Eftirtaldir höfundar hlutu
starfslaun:
Til sex mánaða:
Einar Már Guðmundsson, Einar
Kárason, Guðbergur Bergsson, Krist-
ján Karlsson, Nína Björk Arnadóttir,
Oddur Björnsson, OlafurGunnarsson.
Til fimm mánaða:
Omar Þ. HaUdórsson, Pétur Gunn-
arsson, Sigurður A. Magnússon, Sig-
urður Pálsson, Svava Jakobsdóttir,
Thor Vilhjálmsson, Þórarinn Eldjám,
Þorgeir Þorgeirsson, Þorsteinn frá
Hamri.
Til fjögurra mánaða:
Anton Helgi Jónsson, Asgeir Jakobs-
son, Fríða Á. Sigurðardóttir, Gyrðir
Elíasson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Is-
ak Harðarson, Jakobína Sigurðardótt-
ir, Olga Guðrún Árnadóttir, Olafur
Haukur Símonarson, Steinar Sigur-
jónsson, Stefán Höröur Grímsson,
Steinunn Sigurðardóttir, Sveinbjörn I.
Baldvinsson, Vésteinn Lúðvíksson,
Vigdís Grímsdóttir.
Tilþriggja mánaða:
Ármann Kr. Einarsson, Auður Har-
alds, Baldur Oskarsson, Birgir Sig-
urðsson, Birgir Svan Símonarson,
Bjarni Bernharður Bjarnason, Dagur
Siguröarson Thoroddsen, Eövarð Ing-
ólfsson, Einar Guðmundsson, Einar
Olafsson, Einar Bragi, Guðlaugur Ara-
son, Guðmundur Daníelsson, Guð-
mundur (Gíslas.) Steinsson, Gylfi
Gröndai, Hrafn Gunnlaugsson, Indriði
Ulfsson, Ingimar Erl. Sigurðsson, Jón
Oskar, Jón úr Vör, Jónas Guðmunds-
son, Kristján frá Djúpalæk, Magnea J.
Matthíasdóttir, Magnús Þór Jónsson
(Megas), Oskar Aðalsteinn Guðjóns-
son, Sigfús Bjartmarsson, Sigfús
Daöason, Sigrún Eldjárn, Sigurður Á
Friðþjófsson, Sigurjón Birgir Sigurðs-
son, Valdís Oskarsdóttir.
Til tveggja mánaða:
Aðalsteinn Asberg Sigurðsson, Alf-
rún Gunnlaugsdóttir, Andrés Indriða-
son, Arni Bergmann, Arni Larsson,
Birgitta Hrönn Halldórsdóttir, Einar
Kristjánsson, Erlendur Jónsson, Er-
lingur E. Halldórsson, Geir Kristjáns-
son, Geirlaugur Magnússon, Guðberg-
ur Aðalsteinsson, Guðjón Sveinsson,
Guðmundur L. Friðfinnsson, Gunnar
Dal, Jón Ormur Halldórsson, Jón frá
Pálmholti, Kristján Jóhann Jónsson,
Lilja K. Möller, Magnús Jóhannsson
frá Hafnarnesi, Njörður P. Njarðvík,
Olafur Ormsson, Pálmi örn Guð-
mundsson, Pjetur Hafstein Lárusson,
Sigvaldi Hjáhnarsson, Snjólaug
Bragadóttir, Stefanía Þorgrímsdóttir,
Stefán Júliusson, Stefán Valdemar
Snævarr, Vigfús Björnsson, Þráinn
Bertelsson. JKH
Endumýjun innan frá
Vinnuveitendasamband Islands mun
á næstunni halda námskeið fyrir
stjórnendur fyrirtækja. Ber námskeið-
iðheitiðEndumýjun innan frá.
Esther Guðmundsdóttir hjá VSI
sagði að námskeiðið my ndi veröa hald-
ið í tveimur hlutum. „Fyrsti hlutinn
fer fram hinn 30. mars og hinn síðari
18. til 20. apríl í Borgamesi. Fyrri hlut-
inn er eins konar kynningarfundur.
Þar munu þátttakendur fá námsgögn
sín í hendumar og verður vinna þeirra
næstu tvær vikumar fólgin í því að
komast aö því hvað betur megi fara í
fyrirtækjum þeirra. Á þessum tíma
munu einnig ráögjafar hjálpa þeim aö
skoða fyrirtækin ofan í gmnninn og
benda þeim á ýmsilegt sem betur
mætti fara.”
Á námskeiöinu verður samin fram-
kvæmdaáætlun og reynt að breyta upp-
byggingu fyrirtækjanna innan frá.
„I stuttu máli mætti segja aö stjórn-
endur setji upp sína óskastöðu sem
reynt verður að ná á námskeiðinu.
Þegar því er lokið hafa ráðgjafamir
eftirlit með því hvernig aögerðunum er
framfylgt til þess að trygg ja að settum
markmiðum um breytingar og fram-
leiðsluþróun verði náð,” sagöi Esther
aðlokum.
Nánari upplýsingar um námskeiöið
má fá hjá VSI.
-ÁE
TÓIMSKOLINN
ÍVlK
auglýsir eftir skólastjóra næsta skólaár, '85—'86. Æski-
legar kennslugreinar píanó og/ eða blásturshljóðfæri.
Upplýsingar í símum 99-7130, 7214, 7309.
Skólanefndin.
HIN SIVINSÆLA OG
MYNDARLEGA
FERMINGAR-
GJAFAHANDBÓK
- 40 SÍÐUR -
fylgir bladinu
Á MORGUN
Þú œttir ciö geta fundið réttu
FERMINGARGJÖFINA
í henni