Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1985, Side 40
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu
efia vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
_ í _ _ rhvert fréttaskot,
SliyillMl sem birtist eða er
nrsg notafl í DV, greifl-
ast 1.000 krénur og
&LDRFI 3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
SEFUR hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og rfreifing, sími 27022.
er gætt. Vifl tökum
vifl fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
_____________ 1
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 1985
Fjármálaóreiða hjá Framtfðinni f MR:
Eyddu tugum þúsunda á veit
ingahúsum og í leigubíla
Uppvíst hefur oröiö um allmikla
fjármálaóreiöu hjá málfunda-
féiaginu Framtíðinni í Mennta-
skólanum i Reykjavík. Stjórn félags-
ins hefur sagt af sér vegna málsins.
Standa nú yfir nákvæmar athuganir
áfjárreiðumþess.
Ofangreint mál var tekiö fyrir á al-
mennum skólafundi í MR í fyrradag.
Var hann haldinn í framhaldi af
rannsókn Tómasar Guðbjartssonar
inspectors á fjárreiðum félagsins.
Enn er ekki nákvæmlega vitað um
hversu háar fjárhæðir hafa verið
misnotaðar. Þó er ljóst að 60—70 þús-
und krónum hefur verið varið á veit-
ingahúsum og í leigubilakostnaö. Þá
þykja ýmsir þættir varðandi starf-
semi félagsins hafa verið keyptir
heldur dýru verði, miðað viö það sem
hægt hefði verið að komast af með.
Samkvæmt heimildum DV eru það
forseti og gjaldkeri félagsins sem
hafa átt hlut að máli varðandi hinn
mikla risnukostnað Framtíðarinnar.
Tómas Guðbjartsson inspector
vildi sem minnst um máliö segja er
DV ræddi við hann.” Þetta er leið-
indamál, alveg niður í rót,” sagði
hann. Kvaðst hann vilja taka það
skýrt fram að málefni Framtíðarinn-
ar væru ekkert viökomandi skóla-
félagi MR og færu f járreiður þessara
tvegg ja f élaga i engu saman.
Guðni Guðmundsson rektor var
einnig fáorður um málið. Hann sagði
þó að viðkomandi aðilar yrðu látnir
greiða umræddar fjárhæðir til baka.
Að öðru leyti hefði engin ákvöröun
ennveriðtekinumviðurlög. —JSS
Látum skynsemina ráða, hafa Trabanteigendur kyrjafl einum rómi um árabil. Aftur á móti getur varla
verifl skynsamlegt að aka um í topplausum Trabant — sérstaklega ekki í rigningu. -EIR /DV-mynd KAE
Þjóðarfram-
leiðslan jókst
um 2,5% 1984
Þjóðarframleíðslan er nú talin
hafa aukist um 2,5% á síðasta ári eft-
ir stöðugan samdrátt frá árinu 1982.
I bráðabirgðayfirliti Þjóðhagsstofii-
unar er spáð 10% hagvexti á þessu
árí. Meginskýring batans á siðasta
ári er aukin útflutnlngsf ramleiðsla.
Otflutningsframleiðslan á árinu
1984 jókst í heild um 12% af raun-
verulegu verðgildi. Framleiðsla til
útflutnings jókst i öllum helstu grein-
um. Framleiösla sjávarvöru til út-
flutnings jókst um 11%, ál um 5,5%,
kísiljárn um 22% og framleiðsla ann-
arrar iðnaðarvöru um 21%.
En þrátt fyrir aukningu útflutn-
ings er enn mikill halli á viðskiptum
við útlönd. Því veldur mikil aukning
útflutnings og mikil vaxtaby rði af er-
lendum skuldum. Talið er að við-
skiptahallinn hafi verið um 6% af
þjóðarframleiðslu á siðasta ári og er
þetta erfiðasta efnahagsvandamáliö
sem að íslendingum steðjar að því er
segir í yfirliti Þjóðhagsstofiiunar.
OEF
Vinsældalistí rásar2
setursímann
úrsambandi:
Reynt aö hringja
yfír20þúsund
sinnumásama
klukkutímanum
Stundum er sagt aö símalinur séu
glóandi. En þegar reynt er aö
hringja yfir 20 þúsund sinnum í sama
númeriö á einni klukkustund er
óhætt að segja að síminn sé rauðgló-
andi. Þannig er það með síma vin-
sældalista rásar 2,687123, á fimmtu-
dögum.
„Alagið hefur veriö ótrúlegt og
valdið miklum erfiðleikum i kerf-
inu,” sagði Oli Thorstensen, verk-
' stjóriiMúlastöðPóstsogsíma.
„Við gátum ekki annað en haft
samband við rásina og beðið um úr-
bætur, eins og þær aö auglýsa listann
ekki jafnstíft á þessum tíma og að
bæta við fleiri línum, úr 4 í 6, og
lengja símatímann til kl. 19.
Og þeir hafa brugðist vel við og
farið að óskum okkar. Siðasta
fimmtudag, í fyrsta skiptið eftir úr-
bætumar, var ástandiö vel viðun-
andi.”
Oli sagði að hið mikla álag á númer
• vinsældalistans komi þannig út að
miklir erfiðleikar voru að ná í númer
sem byrja á tölustafnum 6. Eifis hef-
ur álagið valdið sónleysi í öðrum
stöðvum sem ekki byr ja á sex.
Það fyrirtæki sem hefur ient í
mestu erfiðleikunum vegna vin-
sældalista rásar 2 er Hreyfill, 685522,
Enda mun fyrirtækið hafa kvartað
formlega við Póst og síma. Og nú er
bara að sjá hvemig næsti fimmtu-
dagurverður. —JGH
Gluggagægir
í gæruskinni
Ungur maöur íklæddur gæmskinni
var tekinn í Flúðaseli í Breiðholti um
miönætti í gær grunaöur um aö hafa
verið að gægjast á glugga í íbúðar-
húsi þar.
Var lögreglunni tílkynnt um að
maðurinn hefði veríö að rýna inn um
glugga og hegöað sér á allan hátt
undarlega. Var hann mikið ölvaöur
og raglaður. Maðurinn gisti fanga-
geymslur lögreglunnarí nótt.
-EH.
Bílstjórarnir
aðstoða
ssnDiBíLRSTOÐin
LOKI
Varla hefur Skugga-
Sveinn verið á ferli i
Breiðholtinu?
Akureyringar og Mýrdælingar:
KUAST VM BLEIUR
06 DÖMUBINDI
Efnaverksmiöjan Sjöfn á Akureyri
og hlutafélagiö Víkurklettur í Vík í
Mýrdal kljást nú um hvort þeirra
eigi að fá að setja upp hérlendis
sænska bleiu- og dömubindaverk-
smiðju. Þingmenn Sunnlendinga,
þar á meðal einn með ráðherratitil,
hafa beitt sér í málinu fyrir hönd
Mýrdælinga.
Sunnlendingar fengu danskt ráð-
gjafarfyrirtæki, Skancy, til að kanna
hagkvæmni þess að koma á fót
bleiu- og dömubindaframleiðslu í
Vík. Danska fyrirtækið skilaði
skýrslu um máliö gegn 560 þúsund
króna þóknun um leið og það til-
kynnti Mýrdælingum að búið væri að
tryggja að þeir gætu fengið vélasam-
stæðu til framleiöslunnar frá sænsku
fyrirtæki, Dambi að nafni. Fylgdi
með aö sænska fyrirtækið myndi
ekki selja öðrum aðila á íslandi slik-
ar vélar. Eitt fyrirtæki myndi full-
nægja markaðnum.
Mýrdælingar voru minnugir þess
hvemig þeir misstu álpönnuverk-
smiðju til Eyrbekkinga og hvemig
Þorlákshöfn missti steinullina til
Sauöárkróks. MýrdæHngar fóru því
mjög leynt með sín bleiu- og dömu-
bindaáform, unnu hljóðlega að
undirbúningi og greiddu inn á véla-
samstæðuna. Og í janúar síðastliðn-
um héldu svo tveir menn frá Víkur-
kletti utan til Svíþjóðar til að ganga
frá kaupunum.
Meðan þeir voru á leiöinni út
birtist í DV frétt þess efnis að Efna-
verksmiðjan Sjöfn ætlaöi að hefja
framleiöslu á dömubindum og
barnableium. Sjöfn hefði fest kaup
á vélum frá sænska fyrirtækinu
Dambi, því sama og Mýrdælingar
voraaösemja viö.
MýrdæUngar urðu skiljanlega
furðu lostnir. Og enn þann dag í dag
hafa þeir ekki fengiö skýringu á því
hvað raunverulega gerðist. Þeir hafa
þó beðið norðanmenn um að hætta
við. Benda MýrdæUngar á slíkt sex
manna fyrirtæki, sem bleiuverk-
smiöjan er, sé álíka möcUvægt Vík og
200 manna fyrirtæki á Akureyri.
Akureyringar telja sig hafa veriö á
undan. „Þeir voru nokkrum mán-
uðum á eftir okkur. Við gengum frá
þessu í fyrra,” sagði Aðalsteinn
Jónsson, verksmiðjustjóriSjafnar.
„Það er allt of seint að biðja okkur
um að hætta við. Vélarnar eru að
koma í næsta mánuði og við stefnum
að því að hefja framleiðslu í maí,”
sagði Aöalsteinn. Sjöfn mun kalla
vöru sína i Sjafnar-bindi og Bamba-
bleiur.
Sænska fyrirtækið er búið aö
endurgreiða MýrdæHngum það sem
þeir vora búnir að borga inn á vél-
arnar. MýrdæUngar era hins vegar
langt frá því að vera sáttir. Þeir voru
búnir að leggja í þó nokkurn kostnað
við undirbúning.
FuUtrúi danska ráðgjafarfyrirtæk-
isins er staddur á landinu tU að ræða
við Mýrdælinga um stöðu málsins og
hvort sænska fyrirtækið hafi brotið
samninga.
-KMU.