Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1985, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1985, Page 3
DV. FÖSTUDAGUR 22. MARS1985. 3 Þrátt fyrír228milljón króna hagnað: Flugleiðir sleppa við tekju- og eígnarskatt Flugleiðir munu hvorki greiöa tekjuskatt né eignarskatt á árinu 1985 þrátt fjrir 228 milljóna króna hagnaö á árínu 1984. Astæðan er sú aö skattalögin heimila fyrírtækjum aö flytja áfram ójafnaö tap frá fyrri árum. Flugleiöir geta þannig flutt ójafnað tap upp á 1.408 milljónir króna áfram og dregiö hagnaöinn frá. Þetta gat félagiö einnig gert í fyrra. Hagnaður ársins 1983 nam 108 milljónum króna. Hvorki tekju- né eignarskattur var þá lagður á fyrir- tækiö. Framreiknað tap erfiöleikaár- anna 1979 tU 1980 kom til f rádráttar. Eins og skýrt var frá í DV í gær námu rekstrartekjur Flugleiöa á síðastliðnu ári 4.197 milljónum króna. Þá hafa verið dregin frá um- boöslaun feröaskrifstofa og annarra upp á 250 milljónir króna. Stærsti tekjuþátturinn er farþegaflugiö. Þaö gaf 3.236 milljónir króna í tekjur. Af vöru- og póstflutningum komu 345 milljónir króna, af leiguflugi 243 milljónir króna, af hótelrekstri 240 milljónir króna og flugvéla- og áhafnaleiga skilaöi 194 milljónum króna. Rekstrarútgjöldin námu alls 3.945 milljónum króna. Beinn flugrekstur kostaöi 1.547 milljónir króna, viöhald flugvéla kostaði 435 milljónir króna og hótelrekstur kostaöi 186 milljónir króna. Afskriftir námu 148 milljónum króna. Liðurinn fjármunatekjur og fjár- magnsgjöld var neikvæður um 173 milljónir króna. Gengismunur var neikvæður um 479 milljónir króna og vaxtagjöld og verðbætur neikvæðar um 185 milljónir króna. Reiknaöar tekjur vegna verðbreytinga námu hins vegar 442 milljónum króna. Athygli vekur aö eiginfjárstaöa félagsins er orðin jákvæö um 50 milljónir króna. Slíkt hefur ekki gerst frá því erfiðleikarnir hófust á síöasta áratug. I fyrra voru skuldimar til dæmis 163 milljónum króna hærri en eignimar. Þaö mun einnig þykja tíðindi að stjórn Flugleiða hyggst leggja til á aðalfundinum næsta fimmtudag aö tíu prósent aröur verði greiddur af hlutfé. -KMU. Kjartan Ragnarsson, leikari í Gísl: Fótbrotnaði á sviðinu Á sýningu á leikritinu Gísl í Iönó á sunnudaginn varö Kjartan Ragnarson leikari fyrir því slysi aö detta og fót- brotna í miöri sýningu. Þetta gerðist þegar fyrsti þáttur var hálfnaöur og pindi Kjartan sig á leiksviöinu þangaö tilsýningulauk. „Eg er á dansskóm meö nælonsól- um í leikritinu. Það er komið nýtt teppi á pall fyrir utan sviöiö og þegar ég var aö fara-út af sviöinu féll ég einn metra niður af pallinum. Eg var svo vitlaus að ég hélt aö ég hefði tognað en ekki brotnaö og hélt áfram aö leika. Eg plataöi áhorfendur og sleppti öll- um erfiðum hreyfingum. Fóturinn dofnaði fljótt en margoft var ég að því kominn aö láta stoppa sýninguna. Þaö var ekki fyrr en tveimur og hálfum tíma seinna aö ég komst upp á spítala. Þá var fóturinn á mér oröinn allbólginn. Eg var drifinn beint í aögerð meö brotinn sperrilegg alveg niöurviööklann. Ég verö f rá í sex vikur. Jón Hjartar- son leikari tekur viö hlutverki mínu í Gísl og Karl Ágúst Ulfsson leikur Hvin físibelgjastagara en þaö hlutverk hef ég veriðaðæfa. Kjartan sagði að það hefði aldrei gerst svo hann vissi aö hætt hefði verið leik í miöri sýningu. Það væri svo mik- iö mál aö endurgreiða öllum miöana og setja upp aukasýningar. Svo yröi auð- vitaö einhver leikaranna aö koma fram á sviðið og segja áhorfendum tíö- indin. -EH. Ratsjárstöðvar: Fæla þá frá sem hér fara með illum hug „Tilgangurinn meö ratsjárstöðvun- um er fyrst og fremst til vamar. Til að tryggja fullveldi landsins og fæla þá frá sem ef til vill fara hér um með Ul- um hug,” sagöi Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra í umræðum á Al- þingi í gær. Steingrimur J. Sigfússon, Alþýðu- bandalagi, og Kolbrún Jónsdóttir, Bandalagi jafnaðarmanna, hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að falliö veröi frá hugmyndum um aö reisa nýja hemaðarratsjárstöðvar á Islandi eins og stendur í tillögunni. Steingrímur mælti fyrir tillögunni í gær. Hann sagöi m.a. aö aukin umsvif á sviöi hernaöar hérlendis brytu alger- lega í bága viö þann almenna friðar- vilja og háværar kröfur um afvopnun sem risiö heföu á siöustu árum. Utanríkisráðherra sagði aö vissu- lega væri ástæða til aö fylgjast meö ferðum Sovétmanna í okkar flughelgi og gera gagnráðstafanir. Því væri eöli- legur áhugi Islendinga á aö koma á ný upp ratsjárstöðvum á Vestfjörðum og á Noröausturlandi sem starfræktar vom fyrir 20 árum. -ÞG Límdi hassið við líkamann — úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald Tæplega þrítugur maöur var í gær ússkurðaður í 30 daga gæsluvarðhald eftir aö hafa verið tekinn með 1,6 kíló af hassi á Keflavíkurflugvelli. Var maðurinn farþegi með vél sem var aö koma frá Lúxemborg. Fann hasshundurinn lykt af töskum manns- ins. Flygst var með manninum þegar hann sótti töskumar og hann síöan gripinn í tollafgreiöslunni. Var hann þá meö hassið innanklæða, límt utan á líkamann. Hefur hassiö sennilega komist í snertingu viö farangurinn á einhvem hátt og skilið eftir lyktina. Yfirheyrslur standa nú yfir hjá fíkniefnalögreglunni. -EH. Hluti Fella- og Hólakirkju vígður Á sunnudaginn kemur mun biskup að innrétta sjálft kirkjuskipiö. Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, Þetta verður fyrsta kirkjan sem vígja hluta af kirkju Fella- og Hóla- vígð verður í Breiöholti en þar búa um safnaöar. Búiö er aö ganga frá 25.000 manns. Kirkjan stendur viö safnaöarsal, kennslustofu, skrifstof- Hólaberg88. AE. um, anddyri og fleiru. Aöeins er eftir ' Sviðsmynd úr Gisl. Kjartan Ragnarsson i hlutverki sinu, aftarlega til hægri. ÞEIR NERIO OGMAimZIO eru komnir tíl að taka við borðapöntunum! f Gestgjafarnir eldhressu á La Traviata veitinga- staðnum á Rimini, íslandsvinirnir Nerio og Maurizio skelltu sér rakleitt til íslands þegar við sögðum þeim að Riminiferðir sumarsins væru nú að fullbókast hver af annarri. Þeir verða á söluskrif- stofu Samvinnuferða-Landsýnar í Austurstræti á mánudaginn til að létta undir með starfsfólki italíudeildarinnar og til að gefa gestum og gang- andi góð ferðaráð. Á morgun, laugardag, verða Nerio og Maurizio „gesta- gestgjafar“ á Sælkeranum í Austurstræti frá kl. 13-18. Þeir bjóða alla gamla, nýjaog væntanlega kunningja frá Rimini hjartanlega velkomna, og ef við þekkjum þá rétt verður börnunum sérstaklega vel tekið. Og f Sælkeranum segjast þeir ætia að taka við borðapöntunum fyrir gesti La Traviata I sumar!!! ÍSælkeranum kl.13-18 laugardag Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.