Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1985, Blaðsíða 5
DV. MANUDAGUR15. APRIL1985.
5
Jenný Guðmundsdóttir á tírœðie-
afmœiinu ðrið 1979.
^ Var elst
íslendinga
Jenný Guömundsdóttir lést aö
morgni sunnudags á Vífilsstaöa-
spítala. Hún var á hundraðasta og sjö-
unda aldursári og elst Islendinga.
-GK
Selfoss:
60 nemendur
hætta námi
Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara
DV á Selfossi:
Ég átti nýlega tal viö skólameistara
Fjölbrautaskóla Suöurlands, Þorlák
Helgason. Hann sagði að 60 nemendur
hefðu hætt námi á vorönn 1985 og tölu-
vert stór hópur að auki muni sennilega
ekki taka próf.
Kunnugt er að í kennaraverkfallinu
fóru margir nemendur í vinnu og
tímdu þeir ekki að hætta í vinnunni
þegar loks náðist samkomulag við
kennarana.
Það getur enginn dæmt nemendur
hart eftir þessi miklu átök sem áttu sér
staö tvisvar á þessum vetri. Jafnframt
bjuggust nemendur við því að þegar
loks yröi samiö gæti þriðja verkfallið
skollið á þegar kjaradómur kvæði upp
sinn dóm.
Mötuneytis-
fæði misdýrt
Allt að helmings mismunur er á
verði fæðis í mötuneytum á höfuöborg-
arsvæðinu.
Þetta er niðurstaða könnunar sem
Starfsmannafélag ríkisstofnana gerði
á dögunum í mötuneytum hjá ríki og
einkafyrirtækjum.
Matur í mötuneytum ríkisins er nær
undantekningalaust ódýrari en í mötu-
neytum einkaaðila enda niðurgreiddur
afþví opinbera. Þómunarsumsstaðar
ekki miklu, t.d. er kjötmáltíð hjá sjón-
varpinu aðeins fjórum krónum ódýrari
en máltíð hjá Miðfelli h/f og heit máltíð
hjá Eimskip er tíu krónum lægri en í
mötuneyti Amarhvols.
Ödýrasti fiskurinn fæst í mötuneyt-
inu Borgartúni 7. Þar kostar máltíðin
50 kr. en 63 kr. í mötuneyti sjónvarps-
ins. Odýrasta kjötmáltíöin kostar 57
kr. í mötuneyti Landsbankans og Hús-
næðisstofnunar við Laugaveg 77. Dýr-
asta kjötmáltíðin er hins vegar á boð-
stólum í Miðfelli hf. Þar kostar kjöt-
máltíðin 128 kr. eða helmingi meira en
sambærileg máltíö hjá Landsbanka og
Húsnæðisstofnun.
-ÞJV
Ný erlend lán
Undirritaður hefur veriö í London
nýr lánssamningur Landsbanka Is-
lands og 18 erlendra banka til fimm
ára.
Samningurinn er í því fólginn að
Landsbankinn gefur út innlánsskír-
teini, víxla og aörar skuldaviðurkenn-
ingar til skamms tíma og mega allt að
110 milljónir Bandaríkjadollara vera í
umferð á hverjum tíma. Erlendu bank-
amir munu hver fyrir sig géra tilboð í
þessi skuldaskjöl og Landsbankinn
mun taka tilboöum að því marki sem
hann telur hagkvæmt. Náist ekki með
þessum hætti sú upphæð sem Lands-
bankinn hefur þörf fyrir hverju sinni
eru erlendu bankarnir skuldbundnir til
að lána Landsbankanum þaö sem á
vantar, allt að 77,5 millj. Bandaríkja-
dollara á umsömdum hagstæöum
kjömm.
-h.heL
YSI
Lýsi hf. Grandavegi42, Reykjavík.
ARGUS<€>